Málshöfðunin á hendur Geir Haarde

Frá upphafi hef ég verið dálítið hissa á því þekkingarleysi á stjórnarráði Íslands, sem fram kom í störfum Alþingi í kjölfar skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis varðandi bankahrunið.

Þegar lögin um stjórnarráð Íslands eru skoðuð, má þar sjá að HVERGI er gert ráð fyrir að forsætisráðherra taki fram fyrir hendur annarra ráðherra í sínum málaflokkum. Og eins og segir í fyrstu grein laganna um stjórnarráð Íslands: "Ráðherrar fara með og bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum, hver á sínu málefnasviði."      Eins og þarna kemur fram er það ófrávíkjanlegt að ráðherrar bera ábyrgð á sínu sviði.

Það svið efnahagslífs þjóðarinnar sem hrundi haustið 2008, var fjármálakerfið, þ. e. bankakerfið og Seðlabanki landsins. Fagráðherra  fjármálakerfisins er viðskiptaráðherra og lögin um stjórnarráð Íslands gera ekki ráð fyrir öðrum heimildum til að taka fram fyrir hendur hans, en frá þeim aðila sem hann sækir umboð sitt til, þ. e. Alþingis. Hafi Alþingi einhverjar athugasemdir við fagstjórnun ráðherra, verður það að koma fram í þingsal svo það verði bókað.

 Sá ráðherra sem augljóslega átti mestan þátt í hruninu, var því viðskiptaráðherra. Síðustu 18 mánuði fyrir hrun, skipaði Samfylkingin  mann í embætti viðskiptaráðherra.  Á þessum 18 mánuðum nánast tvöfölduðust erlendar skuldir þjóðarinnar. Segja má að það einstaka tímabil hafi verið ein samfelld helreið til glötunar, sem gat á engan hátt endað öðru vísi en með hruni fjármálakerfis þjóðarinnar.

 Eins og að framan er getið, átti Geir Haarde enga stjórnskipaða leið til að takast á við ranga fagstjórnun viðskiptaráðherra, fyrst Alþingi  gerði engar athugasemdir. Menn virðast auðveldlega gleyma því að ráðherrar starfa í umboði Alþingis svo það er Alþingi sjálft sem hefur eftirlitsskylduna.

 Þó ekki sé kafað dýpra í þessi mál en hér hefur verið gert, vekur það umtalsverða furðu að Alþingi, sem sjálft bar skyldu eftirlitsaðila, skuli ásaka Geir Haarde fyrir brot á embættisskyldum, en ekki ásaka þann fagráðherra sem beinlínis er ábyrgur  gagnvart Alþingi fyrir þeirri skuldasöfnun sem varð á síðustu 18 mánuðum fyrir hrun, sem beinlínis olli hruni fjármálakerfisins okkar.

Það er meira en sorglegt að sá stjórnmálaflokkur sem ber pólitíska ábyrgð, gagnvart Alþingi, á viðskiptaráðherra síðustu 18 mánuðina fyrir hrun, leggja höfuðáherslu á að koma ábyrgðinni af herðum eigin flokksmanns og Samfylkingarinnar sjálfrar, yfir á herðar aðila sem ekki hafði stjórnskipulega heimild til beinna afskipta af  ákvörðunum viðskiptaráðherra, fyrst Alþingi gerði engar athugasemdir við störf hans.

Það lítur því þannig út að Samfylkingin beiti þingstyrk sínum og aðstöðu, til þess að sakfella mann sem ekki hafði lagaheimild til afskipta af viðskiptaráðherra, fyrst Alþingi gerði engar athugasemdir. Það er því í raun fyrrverandi meirihluti Alþingis, þ. e. Sjálfstæðismenn og Samfylking, sem bera höfuðábyrgð á að ekki var gripið til aðgerða í tíma, en einnig ber stjórnarandstaðan mikla ábyrgð, því hún lét ekki bóka harða gagnrýni á störf viðskiptaráðherrans á síðustu 18 mánuðum fyrir hrun.

Það er dálítið merkilegt að ætlast til þess að Geir Haarde gengi fram með gagnrýni á samráðherra sinn, þegar enginn þingmaður og ekkert stjórnmálaafl á Alþingi hafði sett fram neina gagnrýni á störf viðskiptaráðherrans. Til að geta vikið ráðherranum frá völdum, með atbeina Frseta, hefði Geir orðið að hafa alvarlegar ásakanir á stöf viðskiptaráðherra úr ræðustól Alþingis. Engu slíku er til að dreifa. Niðurstaðan er því sú að Samfylkngin kýs að bjarga æru mannsins sem hún ber ábyrgð á, en fórna í hans stað manni sem Alþingi hafði ekki fært neinn rétt til að skipta sér af störfum viðskiptaráðherra.

Mikið drengskaparbragð, eða þannig.              


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Guðbjörn; æfinlega !

Nokkuð til; í þessu - en,......... eftir stendur samt, lögmál gömlu snitttappa settanna (í tommu og millimetra málinu), svo ég vísi til míns viðskipta- og áhuga umhverfis, þar sem kveður á um : Byrjun - mið og endatappa = einn fyrir alla - og allir fyrir einn, Guðbjörn.

Nema; þar sem um Vélatappa svonefnda, er að ræða, þar sem þeir - stakur; hverrar stærðar, vinnur verk, allra hinna 3a, með Borvélarinnar, eða Renni bekkjarins hjálp, eftir atvikum.

Svo; ég komi með lítilsháttar skírskotun, úr Málmiðnaðar fræðunum.

Auðvitað; átti / og hafði Geir, með Verkstjórnina á hendi, að gera, og hefði hans athygli óbjöguð verið, á sínum tíma, hefði hann átt að koma Björgvin G. Sigurðssyni í skilning um, í hverju starfi hans - sem ábyrgð fælist, fornvinur góður.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /     

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 23:05

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hefðin á meginlandinu er sú að kóngur skiptir heildar grunnskatttekjum til endurveitinga í geira í hlutfallslega fasta fjölæra skiptingu, og yfirhverjum geira er einn herra sem best vit hefur á sínum geira.  Svo sem einn forfaðir minn var í Dana ríki á sínum tíma af prússneskum Riddara ættum. Þetta er líka grunnurinn í Miðstýringu EU, Þegar búið er draga frá á hverju föstu fjölæru grunn póstanna, sem þarf ekki að rífast um eða ræða, eru 5 ára skuldbindingar teknar frá, afgangstekjur það árið fara svo í kjaftæðið [varsjóði og fjárfestingar] sem er í samanburði mikið minna en á Alþingi Íslendinga. Sérstaklega þegar raun samtíma afgangur er engin. Allir skilgreindir geirar [ráðuneyti] minnka eða vaxa hlutfallalega jafnt. Hjá Kóngi voru engar afgangstekjur. Varnir gegn skammtíma lýðræðisráðherrum voru Ráðneytiðsstjórar með hæfi og reynslu.

Júlíus Björnsson, 27.12.2011 kl. 05:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 164725

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband