Má DRÓMI hf. stunda innheimtu ??

Eins og venjulega, þegar ég er beðinn um álit á innheimtuaðgerðum, byrja ég á að skoða fyrirtækið sem er að innheimta. Einkanlega skoða ég skráningu, starfsheimildir og ábyrgðartryggingar.

Þegar ég var beðinn um álit á innheimtuaðferðum DRÓMA hf. kom margt einkennilegt í ljós. Innheimtupappírar frá DRÓMA voru ekki merktir þeim. Þeir voru merktir Frjálsa fjárfestingabankanum eða SPRON.  Stundum voru merki beggja þessara stofnana á pappírunum.

Hjá Fyrirtækjaskrá kom í ljós að DRÓMI hf. er eignarhaldsfélag, til þess ætlað að halda utan um eignir eiganda síns. Og hver var þá eigandinn? Það var ekki hægt að fá uppgefið hjá Fyrirtækjaskrá. Það upplýstist hins vegar á vef Fjármálaeftirlitsins (FME). Eigandinn var SPRON hf.

Við lestur "Ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins um ráðstöfun eigna og skulda Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. kt: 540502-2770", kom ýmislegt í ljós. FME virðist taka SPRON hf. í gjörgæslu í byrjun október 2008.  SPRON hf. er síðan á endurteknum frestum fram til 18. mars 2009 en þann dag virðist stjórn SPRON hf. óska eftir aðgerðum FME, sem þá yfirtekur vald hluthafafundar og skipar skilanefnd.

Í "Ákvörðun" FME varðandi meðferð eigna SPRON hf. er skilanefnd falið að stofna dótturfélag. Í Ákvörðun FME segir svo um þetta efni:

"Stofnað verði sérstakt hlutafélag í eigu SPRON sem tekur við öllum eignum félagsins og jafnframt við öllum tryggingaréttindum, þ.m.t. öllum veðréttindum, ábyrgðum og öðrum sambærilegum réttindum sem tengjast kröfum SPRON. Dótturfélagið yfirtekur einnig skuldbindingu gagnvart Nýja Kaupþingi hf. vegna yfirtöku á  innstæðuskuldbindingum SPRON. Hið nýja dótturfélag gefur út skuldabréf til Nýja Kaupþings banka hf. sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu innlánsskuldbindingar skv. 1. tl. sbr. 2. tl. og ábyrgist hinar yfirteknu ábyrgðir skv. 3. tl.  Allar eignir hins nýja dótturfélags SPRON skulu veðsettar til tryggingar fyrir skuldabréfinu sem og hlutabréf í dótturfélaginu."

Þegar DRÓMI hf. er stofnaður í mars 2009, er hlutafé sagt vera 4 milljónir króna. Samkvæmt vottorði frá Fyrirtækjaskrá í desember 2011, er hlutafé DRÓMA orðið - Fimmtánþúsund og fjórar milljónir.   Hvaðan komu þessar fimmtánþúsund milljónir sem bættust við sem hlutafé?  Eini eigandi DRÓMA var SPRON hf., sem ekki er lengur til því samkvæmt tilkynningu FME frá 14. mars 2011, var starfsleyfi SPRON hf. afturkallað þann 23. febrúar 2011, þar sem kveðinn hafði verið upp úrskurður (í héraðsdómi) um slit fyrirtækisins.

Þessi staða vekur óneitanlega upp spurningar. DRÓMI hf. er sagt vera eign SPRON hf. sem nú hefur verið lagt niður og félaginu SPRON hf. slitið.  DRÓMI hf. er því munaðarlaus, enginn eigandi. Enginn veit hvaðan milljónirnar fimmtánþúsund komu, því allar eignir SPRON hf. auk hlutabréfsins í DRÓMA hf.  voru veðsett Nýja Kaupþingi. SPRON hf. hafði verið í gjörgæslu FME í marga mánuði, meðan gerð var tilraun til að auka eiginfé og/eða lausafé, sem ekki tókst. Varla hafa því milljónirnar fimmtánþúsund komið þá leiðina. Varla hefur hagnaður af rekstri DRÓMA orðið svo mikill á rúmlega einu ári að milljónirnar fimmtánþúsund hafi komið sem hagnaður af rekstri. Það er því full ástæða til að auglýsa eftir eiganda, eða eigendum, að þessum fimmtánþúsund milljónum ásamt núverandi eiganda DRÓMA hf. þar sem félagið sem var fyrrverandi eigandi, hefur með úrskurði héraðsdóms verið slitið og það þar með ekki lengur til.

Hér að framan var vísað til "Ákvörðunar" FME í kjölfar yfirtöku á SPRON hf. þar sem Nýja Kaupþingi var falið að annast innlán og fleira og skilanefnd SPRON hf. falið að stofna dótturfélag, sem hlaut nafnið DRÓMI. Svo virðist  sem einhver ágreiningur hafi komið upp varðandi lánasöfnin því FME tók aðra "Ákvörðun" þann 17. apríl 2009, sem viðbót við "Ákvörðunina" frá 21. mars, sem að framan er getið.  Ákvörðunin 17. apríl 2009 er í tveimur liðum. Fyrri liðurinn virðist staðfesting á ágreiningnum sem getið var um. Seinni liðurinn er hins vegar afar eftirtektar verður. Þar segir eftirfarandi:

2.   Við 6. töluliðfyrri ákvörðunar bætist nýr málsliður.  Skilanefnd SPRON er jafnframt falið að gera umsýslusamning um þjónustu á lánaeignum við Nýja Kaupþing banka hf.

Þarna kemur glögglega fram að  skilanefnd er gert að láta Nýja Kaupþing banka hf. (núverandi Arion banki) annast innheimtur lánanna. Þessu til staðfestingar er svo næst síðasta málsgrein FME úr svari þeirra til Hagsmunasamtaka heimilanna nú nýverið, en þar segir eftirfarandi:

Samkvœmt 2. mgr. 3. gr. innheimtulaga nr. 95/2008 er meðal annars viðskiptabönkum og sparisjóòum heimilt að stunda innheimtu án innheimtuleyfis. Arion banka hf. er því heimilt að innheimta fyrir aðra, þ. á m. Dróma hf.

Af svarinu má ráða að DRÓMI hf. hafi ekki innheimtuleyfi. Hvernig getur það þá átt sér eðlilega skýringu að þetta fyrirtæki DRÓMI hf. sé stöðugt með innheimtumál í gangi, aðfarir og uppboð hjá sýslumönnum og skráðir fyrir innheimtumálum bæði í héraðsdómi og Hæstarétti.  Ekki verður betur séð en FME beri ábyrgð á þessari framgöngu DRÓMA hf. og þá er það loka spurningin.

Hvað veldur því að svo virðist sem FME haldi verndarhendi yfir því sem virðist vera glæpastarfsemi, þar sem virðist gengið fram af meiri hörku en lög leyfa, í innheimtuaðgerðum sem fyrirtækið virðist ekki hafa heimildir til að sinna?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Varðandi hver er eigandi Dróma, þá liggur það í hlutarins eðli, að þegar fyrirtæki er tekið til gjaldþrotaskipta, þá eignast þrotabúið eignir þess.  Þrotabú SPRON er því eigandi Dróma.

Ársreikningar SPRON hf. vegna 2009 og 2010 ættu að skýra út hvort og þá að hve miklu leiti SPRON hf. lagði Dróma til hlutafé.

Ég hef verið að fletta á vef FME og þar birtast ekki skjöl, þó maður smelli á hlekki, og leitir skila auðum síðum.  Fyrirspurnum til stofnunarinnar  er ekki svarað, a.m.k. hef ég ekki fengið bofs frá þeim við þeim erindum sem ég hef sent.

Marinó G. Njálsson, 11.1.2012 kl. 16:21

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Þetta virðist nú ekki alveg sona einfallt. Eins og segir í ÁKVÖRÐUN, FME, yfirtekur dótturfélagið allar eignir og skuldir SPRON og leggur þær að veði til Nýja Kaupþings, ásamt hlutafé dótturfélagsins vegna rekstrarlegra framkvæmda Nýja Kaupþings, bæði við þau innlánasvið og útlánasvið sem kom frá SPRON. Í félaginu SPRON hf. voru því engar eignir eftir, enda er ekki úrskurðað um slit hlutafélags ef það er í þrotameðferð. Það verður að vera orðið sannanlega eignalaust þegar úrskurður er felldur um slit þess og það afmáð úr fyrirtækjaskrá. Ef SPRON hefði átt DRÓMA í febrúar 2011, hefði ekki verið hægt að úrskurða um slit SPRON og það fellt út af skrá.

SPRON fór í þrot vegna skorts á lausafjárstöðu. Í marga mánuði var búið að reyna samninga við kröfuhafa um greiðslufrest eða aukið fjármagn. Staða raunverulegra eigna SPRON á móti kröfum lánveitenda til þeirra, var slík að eignir dugðu ekki fyrir skuldum. Fyrirtæki í slíkri stöðu ræður ekki yfir miklum eignum til að leggja fram sem eiginfé í stofnun dótturfélags. Líklegt er að tækjabúnaður SPRON hafi verið metinn sem þessar 4 milljónir sem upphaflegt hlutafé DRÓMA var. Önnur verðmæti hafði SPRON ekki til að leggja fram við stofnun DRÓMA. Fimmtán þúsund milljónir í viðbótarhlutafé, eftir rúmt ár í eignaumsýslu (ekki rekstri því félagið er eingöngu stofnað til eignaumsýslu) er því afar athyglisverð loftbóla.

Staðreyndirnar eru engu að síður þær að DRÓMI hefur ekki enn fengið beint rekstrarleyfi, heldur einungis leyfi til umsýslan eigna eiganda síns, við stofnun dótturfélagsins. DRÓMI er þó í stöðugum rekstri, innheimtuaðgerðum og málaferlum, án tilskilinna leyfa til slíks, eins og sannast af tilvitnunum í gögn FME, sem vísað er til í pistli mínum. FME staðfestir í svarinu til HH að það sé Arion banki sem hafi innheimtuleyfi fyrir DRÓMA, en ekki DRÓMI sjálfur, og er það í samræmi við fyrri ÁKVARÐANIR sem FME hefur tekið. Hvers vegna FME stöðvar ekki það sem virðist ólögleg starfsemi DRÓMA, er afar athyglisvert að skoða í ljósi mikillar spillingara hér.

Guðbjörn Jónsson, 11.1.2012 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 164726

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband