Þeir hljóta að breyta þorskkvótanum líka

Fyrst nú er orðið svona augljóst hve veiðibann Hafró byggist á léttvægum og litlum upplýsingum, hljóta þeir hjá Hafró að fara túr núna til að mæla allan þann þorsk sem er utan við þessa gömlu punkta sem þeir hafa haldið sig við að toga á. Það er gífurlegt magn af þorski víðast hvar, nema á þessum auðnarpunktum sem sem þorskurinn er flúinn af.

Fyrst þeir hleyptu loðnuveiðum aftur af stað vegna loðnu sem var á öðrum stað en þeim sem þeir mældu, á líka að auka þorskkvótann vegna þorsksins sem er á öðrum stöðum en þeir mældu. Annað er þeim ekki stætt á, vegna jafnræðis innan atvinnugreinarinnar.

 Einar: Reglugerð á morgun um auknar þorskveiðar.        


mbl.is Einar: „Mjög ánægjulegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Já Kristinn. Það hefur verið margfallt meira af þorski við Vestfirði t. d. undanfarin ár en voru bæði fyrir og eftir settningu kvótakerfisins.  Þá var ekki vaðandi þorskur inn um alla firði, eins og maður heyrir af nú. Það versta við ástandið er ætisleysi fyrir fiskinn, svo hann er á slíkri fljúandi ferð í ætisleit. Kannski þarf að bera niður fyrir hann, líkt og refinn, til að stoppa hann svo hann náist á króka.  Það finnast ráð, ef menn mega bara veiða.

Guðbjörn Jónsson, 27.2.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég er alveg hlessa á öllum umræðum um ráðaleysið í fiskveiðum. Er fylgjandi banni við friðuðum tófum á Vestfjörðum, banni við friðuðum sel og hval innann 200 mílna lögsögu. Skil ekki að leyfa risaeðlur og rándýr sem veiða meira en allur fiskifloti íslendinga samanlagt. Af hverju voru þessur fáu fallegu ísbirnir sem hafa slæðst hingað, ekki friðaðir? Bara skotnir! Þeir  sem eru svo falleg dýr, bara af því að þeir gætu hugsanlega drepið einn og einn bónda sem eru til ama fyrir þjóðfélagið með öllum niðurgreiðslum...

Óskar Arnórsson, 29.2.2008 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband