Gera ekki greinarmun á eign eða veltu

Það er sorglegt þegar blaðamenn hafa ekki vit á hvað þeir eru að segja. Það er nú þegar vitað, að skuldir Íslendinga erlendis eru yfir 5000 milljarða. Af þeirri ástæðu er hæpið að tala um BEINA EIGN Íslendinga erlendis.

Hið rétta væri að fjármunavelta Íslendinga á eignamarkaði erlendis væri 1.732 milljarðar, sem þýddi þá að skuldir Íslendinga erlendis, umfram eignamyndun, væru vel á fjórða þúsund milljarðar.

Af fréttum undangenginna ára hefur verið augljóst að meginhluti svokallaðrar útrásar Íslendinga hefur verið framkvæmd með skuldsetningu, ef frá er talin fjárfesting lífeyrissjóðanna.

Það er dapurlegt ef einn virtasti og vandaðasti fjölmiðill landsins hefur ekki á að skipa fólki með raunverulega þekkingu á fjármálum, en byggir fréttaflutning sinn á villandi og röngum upplýsingum.

Við þurfum ekki fleiri villuljós í Íslensku efnahagslífi.                      


mbl.is Ein og hálf landsframleiðsla í erlendum eignum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

..a.m.k. tveir þriðju hlutar af skráðum skuldum, þ.e. 5000 milljarðar eru bara platskuldir sem menn í aðstöðu til þess hafa komið undan kerfinu. Að sjálfsögðu lenda skuldirnar á þjóðinni, enn peningarnir eru enn til. Bara í höndunum á skúrkum aftengdir frá opinberum tölum..allskonar fyrirtæki erlendis, með lánuðum nöfnum, baksamningar....allt sami hópurinn og ekkert sérlega stór..Ísland er svona Enron dæmi að mínu mati...takk fyrir góðan pistil að venju.

Óskar Arnórsson, 19.7.2008 kl. 04:40

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég trúi öllu á þá, því ég hef margoft séð þá rugla saman veltu og hagnaði.  Hvort tveggja tilheyrir Rekstrarreikningi þannig að það er frekar hægt að skilja svoleiðis rugl en þegar menn blanda saman eign, sem tilheyrir Efnahagsreikningi og svo veltu, sem tilheyrir Rekstrarreikningi, þá er málið orðið mun alvarlegra.  Kannski hefði átt að ráða Tryggva Þór Herbertsson á mbl.is?

Jóhann Elíasson, 20.7.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband