Óttast að þekkjast en samt er birt af henni mynd

Undarlegt ósamræmi í þessari frétt. Stúlkan óttast að þekkjast og það hafi afleiðingar í heimalandi hennar. En samt ákveður blaðið að birta mynd af henni, þar sem hún er vel þekkjanleg.

Sé saga hennar sönn, vona ég að hún fái hér hæli og að þessi kjánalega framganga blaðamannsins verði henni ekki til tjóns eða skaða.          


mbl.is Þarf ekki peninga heldur vernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Munurinn er helst sá að með fullu nafni eða hvaðan hún sé, er hægt að leita að henni á Mbl.is með hvaða leitarvél sem er. Að leita að manneskju eftir mynd er hinsvegar svo gott sem vonlaust nema maður hafi yfir að búa mikilli tækniþekkingu og meira að segja gríðarlega miklu tölvuafli. Það er því ólíklegt að myndbirtingin verði henni til ama. Prófaðu til dæmis að leita að "Paul Ramses" eða "Paul Ramses Odour" með Google, þú finnur hann strax á Mbl.is.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 11:22

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Kæri Helgi!  Þeir sem líklegir eru til að vilja gera henni mein, vita nafn hennar. Á internetinu er enginn vandi fyrir þá að vita í hvaða landi mbl.is er, því endingin ".is" gefur þeim upplýsingarnar. Að auki komu upplýsingar fram í fréttinni sem gæfu þessum aðilum færi á að finna aðsetursstað hennar á minna en einni klukkustund.

Myndbirting á netinu er alheimsbirting en ekki mynd í fjöslyldualbúmi. Sagt var að maðurinn sem hún var pínd til að giftast ætti næga peninga. Þá á hann einnig auðvelt með að kaupa sér liðveislu fagmanna sem kunna að leita. Þeir gætu t. d. verið með mynd af henni í leitarvél hjá sér, sem hugsanlega er núna búin að finna hana.

Svona axarsköft í fréttamennsku eru í raun ekkert grín. 

Guðbjörn Jónsson, 26.8.2008 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband