Bretar vilja ekki óvilhallan úrskurð, sem þýðir??????

Það er afar athyglisvert að Bretar skuli ekki vilja óvilhallan úrskurð í deilum sínum við okkur.  Athyglisvert er einnig, að allar þjóðir ESB skuli taka málsstað Breta, í ljósi þess að þeir VILJA EKKI úrskurð hlutlauss aðila.

Þarna birtist okkur umbúðalaust sú jafnræðisstaða sem við myndum mæta inna ESB, ef hagsmunir okkar stönguðust á við hagsmuni hinna stóru aðila innan þessa sambands. Er ekki tilhlökkun að komast í slíkar þrælabúðir?

Ég held að ESB hafi nokkuð sýnt sitt rétta andlit í þessum deilum. Frekja stóru þjóðanna ræður greinilega allri tjáningu. Þar er tvímælalaust skýringin á því hvers vegna Danir og Svíar hafa haldið sig til hlés í þessum átökum og ekkert látið hafa eftir sér sem kæmi okkur að haldi. Þrælsóttinn við þá stóru er afar augljós og lítt eftirsóknarvert að komast í þessar þrælabúðir.                    


mbl.is Enginn góður kostur í stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyndist þér að esb löndin ættu að vera sundruð? Þetta sýnir styrk esb, sameinuð standa þau. VIÐ ERUM FYRIR UTAN ESB og það að EIGIN vali. Við viljum vera einangruð upphrokuð þjóðrembuð - Við erum fífl og höfum sáð sem slík, hví eru men hissa á uppskerunni?

Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 16:18

2 identicon

Finnst þér þetta trúverðug skýring. Ætli ekki sé líklegra að menn séu að heimta að ríkisstjórnin segi af sér? En kannski best að segja engum frá því.

Doddi (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 16:22

3 identicon

Mér finnst nú umræðan vera farin að líkjast "allir hinir eru asnar" leikskólamáltækinu. Getur ekki verið að við höfum all rækilega rangt fyrir okkur hér?

Þetta hér er holl lesning fyrir alla: http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/13/munu_islendingar_axla_abyrgd/

Thor Svensson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 16:51

4 Smámynd: Anna Þórdís Guðmundsdóttir

Finnst þér virkilega að BRETAR eigi að borga brúsann fyrir fyllerí íslenskra auðmanna ... flott þá get ég farið á fyllerí á þinn kostnað ... SKÁL

Anna Þórdís Guðmundsdóttir, 13.11.2008 kl. 17:05

5 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sælt veri fólkið og fyrirgefið að ég gat ekki svarað strax.

Sæll Gaui! Ég vona að hugsun þín sé dýpri en þetta komment gefur til kynna. Að mínu viti er það lítt eftirsóknarverður félagsskapur sem gengst upp í því að cóa einn félagsmanna sem EKKI VILL leysa ágreining við samstarfsaðila með sáttatillögu frá þriðja aðila, heldur beita samstarfsaðilann þvingunum til að falla frá réttlætisvitund sinni.  Álit þitt á þjóð okkar læt ég þig einan um, enda líklega sögð í reiði. 

Sæll Doddi!   Já, mér finnst það sem ég segi í pistlinum mjög í anda þess sem margítrekað hefur orðið vart við hjá ESB þau 15 ár sem ég hef fylgst nokkuð vel með vinnubrögðum þeirra.  Erlendir opinberbir aðilar segja ekkert og gera ekkert sem hægt væri að flokka sem íhlutun í innanríkismál okkar. Það er almenn samskiptarela þjóða.

Takk fyrir innleggið Thor Svensson

Sæl Anna!   Í mínu bloggi er hvergi minnst á að Bretar eigi að borga. Eins og þú sérð, ef þú lest það vel, fjallar það um að Bretar vilja ekki fá hlutlausan aðila til að leggja fram sáttatillögu. Eins og málin opinberast fyrir okkur, virðist það vera vegna þess að þeir vita að þeir hafi þvingunarvald yfir öðrum ESB löndum, þannig að þau styðji Bretana í því að vilja ekki sáttalausn, heldur þvinga okkur til uppgjafar. Ég hef aldrei valið mér vini úr hópi slíkra aðila.  Deila okkar og Breta snýst ekki um  fyllerí íslenskra auðmanna  Sú deila snýst um innistæðueign sparifjáreigenda; ekki áfengi, því miður fyrir þig?

Guðbjörn Jónsson, 13.11.2008 kl. 20:57

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Solla hefur fengið Geir til að beyja sig fyrir Bretum.

Sigurður Þórðarson, 16.11.2008 kl. 19:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband