Fullkomlega óeðlilegt og ógild reglugerð

Einar minn blessaður, virðist ekki hafa áttað sig á að hann er ekki þingkjörinn ráðherra núna og hefur því engar heimildir til útgáfu svoa reglugerða, nema með meirihlutasamþykki Alþingis.

Það er afar leitt að sjá menn opinbera heimsku sína og virðingarleysi fyrir grundvallarreglum siðaðs samfélags, eins og þessi framkvæmd sjávarútvegsráðherra ber með sér.

Ég trúi því varla að forsetinn gefi þessa reglugerð út, með áritun sinni, en eins og segir í stjórnarskrá, njóta svona gjörningar ekki gildis fyrr en forsetinn hefur áritað reglugerðina með ráðherra.                  


mbl.is Hvalveiðar leyfðar til 2013
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Ráðherra er ráðherra á meðan ekki er kominn nýr ráðherra. þannig að þetta er fullkomlega löglegt. auk þess er ekki hægt að banna heila atvinnugrein, slíkt er gegn stjórnarskrá.

Fannar frá Rifi, 27.1.2009 kl. 18:30

2 identicon

Ég er mjög sammála þessu hjá þér. Hins vegar þarf ekki áritun forseta á reglugerðir. Þær eru aðeins framkvæmd og nánari útlistun á lögum  sem þegar eru til staðar og veita honum heimild til setningu reglugerða.  Alþingi er því löngu búið að veita ráðherra heimild til að taka vissar ákvarðanir.

Ég þekki samt ekki lögin sem reglugerðin er byggð á og veit því ekki hvort hún hefur lagastoð.

Ég (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 18:39

3 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Ráðherrann situr í starfsstjórn en er ekki á ábyrgð Alþingis.  Hann er á ábyrgð forseta. Heimildir hans lúta eingöngu að daglegum rekstri en ekki neinna pólitískra framkvæmda.  Reglugerð ráðherra starfsstjórnar, sem ekki er með undirritun forseta, hefur nákvæmlega EKKERT gildi.

Guðbjörn Jónsson, 27.1.2009 kl. 18:45

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Manngarmurinn hlýtur að skilja að maður gerir ekki svna, fimm mínútum áður en maður yfirgefur stólinn. Vona að hann komist aldrei í stjórn aftur.

Villi Asgeirsson, 27.1.2009 kl. 21:06

5 Smámynd: Haraldur Pálsson

Vonandi að þessi reglugerð standi svo við sköpum fleiri störf, öflum gjaldeyris og grisjum stærsta arðræningja fisksins.

Ef þetta verður dregið til baka þá eru þeir strax farnir að gera tóma steypu í þessari nýju ríkisstjórn. Sanna fáfræði sitt að þeir vita ekki hvernig gangur lífsins er.

Haraldur Pálsson, 27.1.2009 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 164725

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband