Tæplega von mikils áhuga erlendra aðila á að reka banka hér.

Það væri nánast óskiljanlegt ef erlendir aðilar sýndu því raunverulegan áhuga að hefja bankastarfsemi hér. Innanlandsmarkaður er afar lítill og viðskiptasiðferðið það lægsta sem þekkist í því sem kallast siðuð samfélög.

Núverandi bankakerfi er alltof stórt fyrir þá tekjusköpun sem þjóðfélagið hefur upp á að bjóða. Erlendar skuldir þjóðarinnar gleipa alla greiðslugetu hennar næstu áratugina, svo veltuaukning viðskiptaumhverfisins verður afar lítil á því tímabili. Útlánum til tekjuskapandi stórframkvæmda gætu þessir erlendu bankar tekið þátt í, án rekstrarkostnaðar hér á landi.

Varla er við því að búast að erlendur banki setji hér upp starfsstöð eða útibú, til þess að stunda meirihluta viðskipta sinna á erlendri grundu. Slíkan kjánaskap væri einungis hægt að ætla Íslenskum "sérfræðingum" í fjármálum.                    


mbl.is Bankar einkavæddir innan 5 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Útlánsform mjög framandi. Inflation index Mortgage Loans. Algjörlega ónauðsynilegt ef þekking er og skilningur er fullnægjandi þegar vaxtir eru ákveðnir eða þeir leiðréttir með tillit til veðsins eða áhættunnar: afallanna. Þegar útlendingar sjá hvað stjórnvöld bjóða heimulunum uppá þá má búast við því að sömu stjórnvöld falli í áliti.

Svo er eitt með einkabankavæðingar þar sem um fákeppni er að ræða færri en 13 t.d. þá verður Bankamálráherra fljótt vinur þeirra sem eru í forsvari svona stórra fyrirtækja.

Vinskapur væri best sýndur með afskiptaleysi. Þögn er nú sama og samþykki.

Júlíus Björnsson, 24.6.2009 kl. 05:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 164725

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband