Undarleg viðbrögð Jóhönnu

Af fréttum að dæma eru viðbrögð Jóhönnu, vegna viðræðna Höskuldar og Sigmundar Davíðs, við Norska stjórnmálamenn, um hugsanlega lánveitingu til Íslands, afar undarleg. 

Í öllum fréttum hefur verið lögð áhersla á, að frá Íslandi hafi engin ósk borist um að Noregur láni Íslandi fé eftir öðrum leiðum en eftir stýringu AGS. En hins vegar, ef formleg ósk bærist frá Íslandi um slíka lánafyrirgreiðslu, yrði sú ósk tekin til jákvæðrar skoðunar.

Mikill munur er á því að fallast á formlega umsókn um lán, eða hinu - hvort Noregur sé tilbúinn að BJÓÐA ÍSALNDI lán. Spurning Jóhönnu, til forsætisráðherra Noregs var, samkvæmt því sem fram kom á Mbl.is, hvort Norsk stjórnvöld væru tilbúin að bjóða Íslandi lán, með öðrum skilmálum en í gegnum AGS.

Þetta var vægt til orða tekið kjánaleg spurning, því fram til þessa hafa Norsk stjórnvöld eingöngu talað um lán sitt, sem hluta af heildarláni AGS. Það væri því sérkennileg staða fyrir Norsk stjórnvöld, að fara nú AÐ BJÓÐA ÍSLANDI LÁN, eftir öðrum leiðum. Ekki hefur verið látið á það reyna formlega, hvort Ísland egi nú aðra möguleika en afarkosti AGS.

Þeir sem ekki skilja hve langur vegur er milli þess að bjóða af fyrra bragði lánafyrirgreiðslu, eða að taka til jákvæðrar skoðunar ósk frændþjóðar um aðstoð á neyðar- og ögurstundu, þeir eiga að mínu mati ekki mikið erindi í stjórnunarstörf á heilu þjóðfélagi.               


mbl.is Jóhanna beitti sér gegn láninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki legg ég eina sekúndu trúnað á orð framsóknarmanns. Hef aldrei á langri ævi kynnst heiðarlegum framsóknarmanni. Held þeir séu einfaldlega ekki til.

Grjónapungur (IP-tala skráð) 10.10.2009 kl. 13:27

2 Smámynd: Magnús Jónsson

Guðbjörn: væri ekki þjóðráð að Jóhanna birti nú bréfið sem hún sendi þeim norska, svo við hin getum glöggvað okkur á því hvað þeim fór í milli, ekki stóð á því hjá henni að birta vinnuplagg, sem Seðlabankinn hnoðaði saman í flýti, og kom svo Seðlabankastjóra í opna skjöldu þegar það var birt, og Steingrímur vissi ekki af hvað þá anað.

Því ef málið er eins og þú setur það upp hér að ofan, þá er illt í efni fyrir okkur hér á Landinu bláa.

Magnús Jónsson, 10.10.2009 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 164724

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband