Innstreymi vændis og glæpa, í boði skattgreiðenda ???

Um nokkurra ára skeið hefur verið talað um aukningu glæpastarfsemi erlendra aðila hér á landi. Einkum telja menn sig hafa merkt aukningu eftir að við gengum í svonefnt "Schengen" landamæra samstarf Evrópuríkja.

Af þessu samstarfi hefur þjóðin afar lítið gagn, en hins vegar alveg gífurlegan kostnað. Við, þessi litla örþjóð (lítið þorp á Evrópu mælikvarða) höfum opnað fyrir frjálst aðgengi ógæfufólks og skipulagðra glæpahópa, frá hundruð milljóna íbúasvæðum. Við þessi litla þjóð, með 50 - 60 lögreglumenn á vakt, bjóðum slíku ógæfufólki frjálsan aðgang að landi okkar, verðmætum, lífsgæðum og lífi.

Ég velti fyrir mér dómgreind þess fólks sem ábyrgð ber á að slíku veisluborði sé haldið opnu, þar sem allt eins gætu verið líkur á að á einum sólahring yrðu veiðslugestir umtalsvert fjölmennari en þeir heimamenn sem varnað gætu glæpum og ránum.

Við þekkjum dómgreindarskort þeirra sem komu þessu ábyrgðarleysi á. Spurningin er bara hvort það fólk sem nú situr við stjórnvölinn sé jafn ábyrgðarlaust gagnvart þeirri hættu sem haldið er opinni?

Fram til þessa höfum við engan merkjanlegan ávinning haft af þessu landamærasamstarfi. Hins vegar hefur þetta samstarf kostað okkur hærri fjárhæðir en þægilegt er að horfast í augu við. Þetta hefur einnig kostað okkur ófriðsamara umhverfi, þar sem innbrot, þjófnaðir og litlir sem stórir glæpir hafa verið framdir. Og þjóðin sjálf orðið fyrir ofbeldi, líkamsmeiðingum og jafnvel lífláti, af hendi þessa ógæfufólks.

Ef við látum okkar fögru höfuðborg þróast út í það að verða álíka öruggt svæði og hættuleg glæpahverfi stórborga, erum við jafnframt að loka fyrir hingað komu heiðarlegs ferðafólks, sem ferðast hingað til að skoða friðslæt land með fallegum- náttúruperlum, byggðum og mannlífi.

Taki ráðamenn ekki af skarið, verður þjóðin að taka til sinna ráða, eigi að vera von um endurheimt hins friðslæa samfélags sem hér ríkti, fyrir rúmum 20 árum, eða svo.  Það er útilokað að skattgreiðendur þessarar fámennu þjóðar, geti staðið undir þeim kostnaði sem þessu Schengen veisluborði fylgir, svo ekki sé minnst á öll óþægindin sem af þessu stafa fyrir friðsama landsmenn.             


mbl.is Tilkynningum um vændi hefur fjölgað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband