Er nauðsynlegt nú að eyða opinberu fé til fjölgunar þjónustustarfsemi í landinu?

Þetta er afar athyglisverð frétt, svona á sama tíma og Íslendingar eru að hrekjast út úr ýmiskonar þjónustustörfum, vegna mikils samdráttar í þjóðfélaginu.

Samdráttur þessi stafar fyrst og fremst af því að núverandi  atvinnuvegir í gjaldeyrisöflun, geta ekki aflað alls þess gjaldeyris sem núverandi þjónustustarfsemi þarfnast.

Ef hér á ekki að verða alvarlegt efnahagshrun á komandi árum, verða stjórnvöld að vera vakandi fyrir virku aðhaldi gegn útþennslu þjónustustarfsemi, af ekki minna afli en þau beita sér til niðurskurðar á ríkisútgjöldum.

Ég hefði viljað sjá opinber aðila hvetja til námskeiðs í gjaldeyrisskapandi atvinnustarfsemi, og hugsanlega veita arðsömum hugmyndum styrk eða aðra fyrirgreiðslu við að komast á legg.

Það síðasta sem þjóðin þarfnast núna, er erlend smkeppni í þjónustustarfsemi á Íslandi.                     


mbl.is Lærðu um stofnun fyrirtækja á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga

sammála þér....  og svo líka það að er ekki verið að tala um að þetta einkahlutafélagafyrirkomulag hér á landi hafi verið fáránlegt, hver og einn hefur getað stofnað einkahlutafélag um sjálfan sig til að losna við að greiða skatta.....   Þurfum við að kenna nýbúunum okkar þetta alveg sérstaklega......?

Helga , 22.11.2009 kl. 16:15

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Já Helga.  Þeir eru ekki aldir upp við svona klæki, á sama hátt og við erum.

Guðbjörn Jónsson, 22.11.2009 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband