Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014

Svar frá Dómstjóra og honum svarað aftur

Ágætu blogg og Facebook vinir Ég skrifaði Dómstjóra héraðsdóms Reykjavíkur vegna brotalama í meðferð á málinu mínu.  Í gær fékk ég svar frá dómstjóra, sem fylgir hér með í viðhengi.  Einnig settist ég við að svara honum aftur því svar hans var algjörlega óásættanlegt. Það svar mitt er einnig hér mefylgjandi í viðhengi ef þið skilduð hafa ánuga á að lesa svona lagaþrætur.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Til umhugsunar vegna ESB umræðna

Ég verð að viðurkenna að ég er mjög undrandi á að fjölmiðlar skuli ekkert hafa fjallað um þá staðreynd að meirihluti Alþingis VISSI áður en þingsályktun var afgreidd árið 2009, að engin leið væri að framkvæma það sem Alþingi var að samþykkja. Það  sýndi sig líka strax og aðlögunarferlið hófst, að þar var ekkert KÖNNNUNARFERLI í gangi, heldiur BEIN AÐLÖGUN AÐ ESB. Ég tÓk saman úr litlu broti af nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis 2009, vegna nefndrar þingsályktunar um ESB aðild.  Ég sendi þetta í dag á alla þingmenn með eftirfarandi tölvupósti.  Ég sendi þetta líka á alla helstu fjölmiðla, þó þeir geri aldrei neitt með efni frá mér, nema útvarp Saga.  Dreifið þessu helst sem víðast, því þarna er raunveruleikinn fyrst settur fram, um það hvað sé verið að gera í sambandi við ESB samninga.
 
 
Kæru þingmenn.  Oft hef ég hrist höfuðið yfir störfum ykkar og þeirri skammsýni sem iðulega má sjá. Meðfylgjandi er eitt dæmi um slíkt, þar sem þjóðin er sett á háspennt átakastig að óþörfu.  Eins og þið munuð sjá, EF ÞIÐ LESIÐ BRÉFIÐ SEM FYLGIR, lágu allar forsendur fyrir þinginu 2009 til að ljóst væri að þáverandi þingsályktun um ESB aðild væri ekki framkvæmanleg þar sem regur ESB væru aðrar, varðandi aðildarumsókn.  Hvað veldur að þið skulið ekki koma heiðarlega fram gagnvat þjóðinni og SEGJA SANNLEIKANN um þetta mál er vægast sagt óskiljanlegt. Þögn ykkar er að setja þjóðina í pólitíska skotgrafir, sem einungis undra henni enn frekar en nú er.  Mig langar að biðja ykkur að hugleiða ábyrgð ykkar á því að vegna rangs fréttaflutnings viku eftir viku og mánuð eftir mánuð, hefur nú um langt skeið stór hópur fólks safnast saman á Austurvelli, til að krefjast þess sem fyrir lág á þingskjali árið 2009 að ekki væri hægt vegna þess að ESB hafði breytt reglum sínum.  

Ég bið þig kæri þingmaður að hugleiða að ALDREI FRÁ STOFNUN LÝÐVELDIS OKKAR, hefur þjóðinni verið mikilvægara að sýna samstöðu og sameiginlega meginstefnu sjálfstæðs ríkis hér á landi, en þörf er á nú meðan endanlega er náð tökum á að hreinsa landið af vitlausri stjórnun - og stjórnleysi - fyrri ára og landið hreinsað af fjármagni erlendra græðgisafla sem hingað stefndu peningum sínum meðan heimskuleg hávaxtastefna Seðlabankans var hér og hvergi í heiminum var hærri ávöxtun fyrir þessi grægisöfl. Auðvitað hópuðust þau hingað, lífsgæði þjóðarinnar skiptu þau engu, aðeins að þeir fengju góða ávöxtun á auð sinn.

Svo getur farið, kæri þingmaður, að ég æski viðtals við þig um þessi málefn i, sem tekið verði upp á myndband, því ég er að vinna samantekt um það  sem ég kalla - Fljótandi samstöðu milli þings og þjóðar. -  Mér eru þessi málefni einkar hugleikin, ásamt þeim alvarlegu skuggahliðum sem virðast hvíla yfir réttlætiskennd réttarkerfisins hjá okkur. Mun trúlega einnig koma inn á það verkefni samhliða  hinu.

Ég óska ykkur öllum farsældar í starfi, þjóðinni allri til heilla

Virðinarfyllst,
Guðbjörn Jónsson 

Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Opið bréf til Dómstjóra héraðsdóms Reykjavíkur

Eftir fyrirtöku máls míns E-500/2014, hjá héraðsdómi Reykjavíkur í gærmörgun, 15.04.2014, var mér öllum lokið með þolinmæði gagnvart vitlausri og ólögmætri framkvæmd þinghalda í héraðsdómi.  Ég skrifaði því dómstjóra meðfylgjandi bréf og sendi afrit af því til Dómstólaráðs og Innanríkisráðherra.  Lítið á bréfið sem fylgir hérna með sem viðhengi.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband