Skynsamleg afstaða hjá Marinó

Ég verð að segja að ég skil vel þessa afstöðu Marinós í ljósi þess hvernig fjölmiðlar hér á landi hafa iðulega haldið á málefnum þeirra sem gagnrýna stjórnvöld og lánastofnanir.  Ég þekki þessa aðferðarfræði mjög vel, því henni var beitt gegn mér árið 1991, þegar ég var að berjast fyrir réttarstöðu fólks í fjárhagserfiðleikum.

Gerð var dauðaleit að skuldum eða misferlismálum, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Þá var skrifuð um mig ófræingargrein í eitt af sorpritum landsins, sem tekin var til umfjöllunar í öllum fjölmiðlum, en mér varnað heimildar til að svara fyrir mig.  Viku síðar sendi lögmaður hér í borginni kærðu til Ríkislögreglstjóra, þar sem ég var kærður fyrir misferli. Enga nánari skýring fékk ég á því, í hverju misferlið væri fólgið. Þetta dugði hins vegar til að loka fyrir samstarf bankanna við  mig, og rústa þannig mikilvægu hjálparstarfi við lausn á greiðsluvanda heimila.

Fjórum árum síðar, fékk ég óformlegar upplýsingar um hvaða misferli hafði verið tilgreint í kærunni.  Ég hafði nefnilega aldrei verið kallaður til yfirheyrslu og beiðnum mínum um afrit af kærunni var ekki svarað.

Í kærunni var það misferli tilgreint, að ég hefði farið með, og ekki skilað, lykli að póskassa í andyri þess húsnæðis, þar sem ég hafi haft skrifstofu.  Hið skondna við kæruna var, að allan þann tíma sem ég leigði þarna húsnæði, hafði ALDREI verið læsing á þeim póstkassa sem ég hafði.

Enn í dag, 20 árum síðar, er enginn farinn að biðjast afsökunar á þessu framferði. Enn er reynt að halda því á lofti að ég sé sérstaklega varasamur maður, og þá sérstaklega í peningamálum. Ég er löngu kominn yfir reiðina út af þessu, en vorkenni þeim aumkunnarverðu sálum sem ekki hafa enn manndóm í sér til að viðurkenna ódrengskap sinn.

Í ljósi reynslu minnar skil ég Marinó vel, en vona engu að síður að hann verði áfram í baklandi framvarðarsveitar Hagsmunasamtaka heimilanna.                      


mbl.is Ekki greint frá skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er ekki sammála.  Hvar liggja hagsmunir?  Annarsvegar hjá þeim sem skulda og eiga í vandræðum og hinsvegar við þá sem ekki skulda og búast við  tapi vegna lægri vaxta eða þá fjármálastofnanir sem ekki vilja taka þátt í leiðréttingu skulda.

Það er jafn vitlaust að setja út á það að Marinó skuldi, eins og að setja út á það að hinir aðilarnir skuldi ekki!

Auðvitað átti hann bara að bjóðast til að birta skuldir sínar  strax og  aðrir sem koma að málinu byrti sína stöðu ífjármálum, það væri fróðlegt.

Nils Gíslason  8474

Nils Gíslason (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 11:53

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll vert þú Níls!  Af skrifum þínum má ætla að þú takir ekki mikið tillit til annarra, og því líklega ekki kominn með fjölskyldu. Alla vega er afar mikill reynsluskortur augljós í þessum orðum þínum. En, það þýðir ekki að þú sért eitthvað verri maður fyrir það. Reynslan kemur með árunum, lífbaráttunni, áföllum, vonbrigðum og sigrum. Þá lærist manni líka að kveða ekki upp úrskurði fyrir aðra, sem maður veit engin deili á, til að falla úrksuði. Gangi þér vel í lífinu.

Guðbjörn Jónsson, 19.11.2010 kl. 12:07

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Góður pistill hjá þér. Þekki svona mál sjálfur í smæstu smáatriðum og hjá fullt af öðru fólki. Ef þetta er sá Níls frambjóðandi sem lætur ljós sitt skína, þá vona ég vara að honum endist aldurinn til að verða fullorðin einhverntíma...

Óskar Arnórsson, 19.11.2010 kl. 23:17

4 Smámynd: Sverrir Einarsson

Góður pistill  og svo sannur, hér á landi er sjaldan deilt um málefnin sem einhver setur fram, það er strax farið að berja á þeim sem setur það fram, persónulegt  níð, en málefnið látið liggja á milli hluta.

Hvað Marinó varðar skil  ég hann mög  vel, hann hefur ekki verið að berjast fyrir eigin hagsmunum (skulda) heldur fjöldans og því koma mér eða almenningi ekkert við hans persónulegu fjármál.

Ég gæti verið fúll yfir hærri sköttum sem ég þarf að borga (afleiðingar hrunsins), ég skuldaði engum neitt, var ekki með nein lán, hvorki  bíla né húsnæðis, en þarf samt að taka þátt í að borga. Hvar eru þau sjónarmið? á opinberum vettvangi, ég gæti  haldið að þeir sem  koma að borðinu frá hinum opinberu aðilum séu í sömu  stöðu og ég og skilji því ekki vandann.... og meðan svo er gerist ekkert réttlátt í málefnum heimilanna....

ps. ég hef ekki nennt að skipta um mynd enn...

Sverrir Einarsson, 21.11.2010 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband