Önnur sýn á verðtrygginguna Lausnir, ekki sögur

Samtökin - Ný framtíð -  hafa opnað heimasíðu "nyframtid.is"  og eru að fara af stað með upplýsinga og umræðufundi um málefni þjóðfélagsins. Við höfum ákveðið að leggja ekki fundartímann undir lýsingar á því sem liðið er og flestir hafa heyrt lýsingar á mörgum sinnum. Við munum leggja áherslur á að benda á hvers vegna ástandið sé eins og það er og hvernig hægt er að keyra þjóðfélagið út úr þeirri óstjórn sem verið hefur hér undanfarna áratugi.

Sem stikkorð eru sett fram á heimasíðu okkar, undir fyrirsögninni - Fyrstu skrefin - uppsláttur okkar vegna 17 atriða sem við setjum í SÉRSTAKANN FORGANG, þeirra þjóðfélagsmála sem við viljum berjast fyrir. Ef margir verða okkur sammála, mun vönduð stefnu- og verkefnaskrá verða samin á væntanlegum vorfundi, þar sem línur verða lagðar fyrir framtíðina.

Við leggjum áherslu á heiðarleika, fyrirhyggju og gjörbreytta forgangsröðun í verkefnaskrá ríkisvaldsins. Hlustið eftir lausnum. Ekki sögum af nútíðinni eða því liðna. Því verður ekki breytt. Við getum breytt framtíðinni, þannig að úr verði NÝ FRAMTÍÐ.

EN kíkið á auglýsinguna sem fylgir hér með sem skrá.

            


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Flott framtak. Verður gaman að fylgjast með.

Villi Asgeirsson, 6.2.2012 kl. 21:09

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Guðbjörn. Takk kærlega fyrir mjög þarft framtak.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.2.2012 kl. 23:46

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Neysluverðnyesluvítala hér til lámarks verðbótavaxtaútreiknings á fjármálagerngingum, hefur þann galla miðað við CPI alþjóðasamfélgsins eða PPP á millára eða HCIP á milli EU reikninga, að hún mælir ekki raunvirði seldravöru á frjálsum virkum neytenda keppnismarkaði, heldur sölupphæð seldra vöru.  Þanning að verðbólgu álagning er vegin sem eign það er þegar álagning hækkar hlutfallslega samfara magni sömu framleiðlu eininga eða minni.   Milli ríkja gildir hinsvegar CPI og PPP eins og áður segir eða Liborvextir [London] til langtíma verðtygginga jafnfætis  PPP raunvirðs mælkvarða heimsins. 


Gengið hér var leiðrétt þegar sannaðist að heimstjórnar matið byggðist á hækka álagningu í prósentum innanlands og selja ódýra verðflokka sem dýra. Hinsvegar þarf að leiðétt líka hér þennan kol vitlausa mælir sem Neysluverðtryggingar vísitala er hér.  Almenngur hefur ekkert vit á þessu greinilega, en því miður hefur strafsfólk hjá hinum opnbera engan skilning á verðtyggingarmælitækinu heldur. Útreikningar geti verið réttir á fölsku mældum eða metnum tölugildum.  Hinsversvega eru ekki sömu alþjóðlegu mælkvarðarnir og aðferðinar notaðar gagnvart sauðum Íslands, og gilda út um allt utan Íslands og milli ríkistjórnar Íslands og annarra Ríkistjórna. 

Júlíus Björnsson, 7.2.2012 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband