Frá Barnahjálpinni ABC Children´s Aid Kenya

Fréttatilkynning.

Frá Barnahjálpinni   ABC Children´s Aid Kenya

Upp er komin sú staða að félögin ABC Barnahjálp og ABC Children´s Aid Kenya eiga ekki lengur samleið. Þó að félögin deili nafninu þá eru þetta tvö sjálfstæð félög, annað skráð í Kenýa og hitt á Íslandi, með hvort sína stjórn. Formaður félagsins í Kenýa er ég, Þórunn Helgadóttir. Síðustu ár hefur verið náið samstarf á milli félaganna tveggja um uppbyggingu starfsins í Kenía en nú skilja leiðir. ABC Barnahjálp á Íslandi hefur einhliða hætt samstarfi við ABC í Kenía.  Það þýðir að ABC Barnahjálp sendir ekki lengur neinar greiðslur stuðningsaðila barna í Kenýa til félagsins í Kenýa.

Takið eftir: Engar greiðslur stuðningsaðila barna hjá ABC í Kenýa hafa verið sendar út frá ABC Barnahjálp á Íslandi til starfsins í Kenýa í Maí og í Júní.

Á heimasíðum ABC Barnahjálpar hefur einnig verið birt tilkynning sem segir að Þórunn Helgadóttir og Samuel Lusiru Gona séu hætt störfum í Kenýa en við stjórn starfsins séu tekin Samúel Ingimarsson og Ástríður Júlíusdóttir.  

Þessi tilkynning er röng. Ég, Þórunn Helgadóttir og Samuel Lusiru eiginmaður minn erum enn við störf sem stjórnendur starfsins í Kenía.

Ástæðan fyrir þessum samstarfs slitum er fyrst og fremst sú að ABC á Íslandi hefur tekið þá ákvörðun að sameinast sænskum samtökum sem kallast Children´s Mission. Það þýðir að öll yfirstjórn verkefna og meðferð fjármuna mun færast til Svíþjóðar. Stjórn ABC Kenýa óskaði eindregið eftir því að fá að standa utan við þessa sameiningu við sænsku samtökin og því skilja leiðir.

Hugsjón okkar og hjarta slær enn heitt fyrir börnin í Kenýa. Við höfum helgað þessu starfi allt okkar líf síðustu 9 árin og hyggjumst halda því ótrauð áfram. Til að starfið geti haldið áfram hafa verið stofnað önnur samtök á Íslandi sem munu standa við bakið á starfinu í Kenýa í framtíðinni. Hið nýstofnaða félag heitir Íslenska Barnahjálpin og mun héðan af halda utan um allar greiðslur stuðningsaðila barna í Kenýa sem og aðra styrki og gjafir.

Við viljum beina þeim tilmælum til stuðningsaðila barna ABC í Kenýa að þið setjið ykkur í samband við Íslensku Barnahjálpina ef þið getið hugsað ykkur að halda áfram að styrkja börnin ykkar í Kenía. Netfangið er: postur@barnahjalpin.is. Vefsíðan er www.barnahjalpin.is.  Eins er hjálp nýrra stuðningsaðila vel þegin eða einstakar gjafir á þessum tímamótum. Söfnunar reikningsnúmerið okkar er: Banki 0515-14-410660 Kt. 410615-0370

Þó að þessi viðskilnaður við ABC Barnahjálp á Íslandi sé okkur hjá ABC Kenýa mjög sár og ekki samkvæmt okkar óskum, þá erum við mjög þakklát fyrir það góða samstarf sem við höfum átt við samtökin ABC Barnahjálp á Íslandi síðustu ár. Við þökkum þeim hjartanlega fyrir þann tíma sem við höfum átt saman og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni. Sömuleiðis þökkum við ykkur stuðningsaðilum barnanna og öðrum velunnurum fyrir stuðningin undanfarin því án ykkar gætum við ekki starfað.

Virðingarfyllst,

Þórun Helgadóttir,

Formaður ABC Children´s Aid Kenya


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 164727

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband