Sértćk skuldsetning til ađ bjarga fáeinum óvitum

Ummćli fjármálaráđherra benda til ađ hann skilji ekki hvađ felist í ţví ađ lífa af tekjum sínum en auka ekki umsvif munađar og neyslu međ lánsfé sem enginn tekjulegur grundvöllur er skapađur fyrir, svo hćgt verđi ađ endurgreiđa lánin.

Um nokkurra ára skeiđ hafa allar útflutningvörur okkar veriđ seldar á hćstu verđum sem ţekkst hafa. Framleiđsla okkar á útflutningsvörum, hefur veriđ í ţví hámarki sem framleiđslugetan leyfir. Međan ekki er sköpuđ skilyrđi fyrir frekari, meiri eđa fjölbreyttari útflutningvörum, er ekki fyrirsjáanlegt ađ umtalsverđ tekjuaukning verđi hjá ţjóđinni.

Međ erlendum lántökum til afar mikillar útţenslu ţjónustu- og neysluţátta samfélags okkar, höfum viđ sett af stađ ýmsa tímabundna starfsemi, sem fyrirséđ hefur veriđ  ađ ekki gćti haldiđ lengi áfram eđa orđiđ varanleg. Ástćđa ţess var ađ gjaldeyristekjuöflun ţjóđarinnar gat ekki boriđ uppi alla ţessa ţjónustu og neyslu. Ćvinlega hefur veriđ fyrirsjáanlegt, ađ ţegar ekki yrđi lengur hćgt ađ verđa sér úti um meira lánsfé frá erlendum ađilum, til ađ halda ţessari starfsemi gangandi, yrđi sú starfsemi ađ hćtta sem ekki ćtti sér viđhalds- og endurnýjunarţátt í gjaldeyristekjum ţjóđarinnar.

Hiđ raunverulega íslenska efnahagslíf venjulegrar fjölskyldu er ekki í neinni hćttu. Hćttan sem yfir vofir snýr eingöngu ađ ţeim ađilum sem hafa flćkt sig í lántökum langt uppfyrir ţađ sem tekjur ţeirra geta boriđ. Slík vandamál eru fyrst og fremst til vegna alvarlegra mistaka stjórnenda lánastofnana og eru ríkissjóđi algjörlega óviđkomandi ţar sem ríkiđ rekur engan banka.

Ef lánastofnanir hafa endurlánađ hinar erlendu lántökur sínar, til ţađ ótraustra ađila, gegn ţađ litlum veđum ađ ţau tryggi ekki verđmćti lánsfjárins, á ađ láta slíkt koma skýrt fram áđur en ríkissjóđur fer ađ skuldsetja sig til ađ skera óvitana sem stjórna bönkunum niđur úr ţeim hengingarólum sem ţeir smíđuđu sér sjálfir og festu um eigin háls.

Leyfiđ okkur ađ sjá hinn raunverulega vanda og hvernig hann varđ til í raunveruleikanum. Kannski ţarf einungis ađ skipta um stjórnendur lánastofnana og byggja upp traust á eđlilegri og ţjóđfélagslega raunsćrri stjórnun ţeirra, í réttum takti viđ tekjuumhverfi ţjóđarinnar.

Ţurfum viđ ekki ađ lćra af svona vitleysum međ ţví ađ vita raunveruleikann í ţví ferli sem kom okkur í ţessa stöđu?

Međ kveđju, frá fyrrv. hagdeildarmanni í banka.          

                     


mbl.is Verkefniđ ađ verja árangur undanfarinna ára
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ţetta eru alveg ótrúlegar greinar hjá ţér Guđbjörn! Mér finnst merkilegt ađ viti boriđ fólk skuli ekki hafa áhuga á grundvallaratriđum í fjármálum samtímis sem ţađ kvartar yfir dýrtíđ!

Ég er svona einn fábjáni sem tók yfurdráttarheimild, ađ vísu er ég ekki međ nein lán, bara fokdýra yfirdráttarheimild sem núna er ekki í neinu samrćmi viđ inborganir! Allt sem ţú segir gćti veri fjármálaleg ćfisaga mín! ţetta er ekki enu sinni fyndiđ! hefur aldrei langađ ađ skulda neinum neitt, enn keypt á afborgunum hluti  sem mér vantar ekki neitt af ţví ţeir voru á svi "hagstćđum kjörum" sem síđan var breytt í óhagstćđ eftir kaupin... 

Óskar Arnórsson, 29.5.2008 kl. 05:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 164727

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband