Bankastjórarnir vilja meiri lán og meiri framkvæmdir????????

Í hádegisfréttunum heyrði ég viðtal við Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóra Landsbankans. Hann var að vandræðast yfir því að Seðlabankinn kæmi ekki með lánið sem Alþingi hefði heimilað honum að taka. Skilningur hans var sá að lánið hefði átt að taka til að bæta gjaldeyrisstöðu bankanna og til að auka framkvæmdir.

Það var merkilegt að hlusta á þetta frá bankastjóra næst stærsta einkabanka landsins; banka sem jafnframt er með lægsta skuldatryggingaálag allra banka á Íslandi. Það var eins og honum væri ókunnugt um að erlendar skuldir okkar séu komnar langt upp fyrir mögulega getu okkar til endurgreiðslu þeirra og þessar skuldir eru til komnar vegna ákvarðana þessara sömu manna, þ. e. bankastjóra einkabankanna. Í vandræðum sem þeir sköpuðu sér sjálfir, láta þeir eins og ríkið bera ábyrgð á heimskupörum þeirra. Og þeir biðja ekki um hjálp til að bjarga sér frá vitleysunni. Nei, þeir HEIMTA að ríkið KOMI STRAX MEÐ PENINGA til að bjarga þeim frá eigin vitleysu.

Í langagn tíma hefur það verið skýr stefna Sjálfstæðisflokksins, að grípa ekki til SÉRTÆKRA AÐGERÐA til bjargar einkafyrirtækjum eða einstöku atvinnugreinum. Það er grundvallarreglan á bak við það að Sjálfstæðisflokkurinn lét sjávarútvegsfyrirtækin á landsbyggðinni brenna upp í vitlausum hagstjórnaraðferðum, sem enn eru viðhafðar hér á landi.

Hagfræðin sem hér er kennd getur ekki gengið upp fyrir litla eyþjóð með sjálfstæða gjaldmiðil. Ásæðan er sú að sá grunnur og hugtök sem notuð eru, er grunnur sem byggir á að gjaldmiðillinn sé heimsviðskiptamynt, sem ekki byggir gengi sitt fyrst og fremst á framleiðslu eins samfélags, heldur byggist gengi gjaldmiðilsins á fjölþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Í slíku gjaldmiðilsumhverfi getur móðursamfélagið sýnt tiltölulega mikið kæruleysi gagnvart undirstöðum myntarinnar, vitandi það að mörg ríki eiga ríka hagsmuni í því að viðhalda gengi gjaldmiðilsins í ákveðnu jafnvægi, svo þeirra eigin efnahagskerfi fari ekki úr jafnvægi.

Hér er ég að vísa til þeirra hagfræðihugmynda sem kenndar hafa verið í Bandaríkjunum síðustu áratugina, sem ýmsir eldri og virtir hagfræðingar hafa kallað "hagfræði heimskunnar". Ekki verður hér reynt að tína til mörg atriði þessarar umræddu "heimsku", en þó ætla ég að geta hér eins, vegna nýlegra aðstæðna hér á landi sem glöggt sýna hvað átt er við.

Nú nýlega fengum við yfir okkur mikla jarðskjálfta á Suðurlandi. Vegna þeirra urðu miklar skemmdir á húsum og innanstokksmunir skemmdust og eyðilögðust. Fyrirsjáanlegt er að öll þessi tjón munu valda miklum útgjöldum, en um leið auka vinnu og viðskipti vegna lagfæringa og kaupa á nýjum húsmunum.

Samkvæmt þeim hagfræðikenningum sem við notum (hagfræði heimskunnar), mun þetta teljast hafa aukið hagvöxt um einhverja mælanlega einingu, vegna þess að veltuaukning varð á svæðinu. Samskonar "hagvaxtaraukning" mælist líka ef við tökum mikið af erlendum lánum og festum það fjármagn í húsbyggingum, sem engin þörf er fyrir; þá reiknast það skapa þjóðinni aukinn hagvöxt.

HAGVÖXTUR, er auðvitað hugtak yfir aukinn hag, eða betri afkomu, heldur en það sem verið hefur. Stórtjón, hamfarir, eða skuldaaukning, þar sem peningarnir eru festir í byggingum sem ekki auka tekjur til greiðslu lánanna, skapa að sjálfsögðu EKKI AUKINN HAGVÖXT, þó það teljist vera, samkvæmt hugmyndafræði í "hagfræði heimskunnar".

Allir ættu að geta litið í eigin barm og fundið tilfinninguna fyrir því þegar miklar skemmdir eða tjón henda fjölskylduna. Ég held að fáir finni til þess að hagur þeirra hafi aukist mikið við  að fjárfesta í lagfæringum.

Svona lítur þetta út í samfélagið sem eitt og sér stendur að verðgildi gjaldmiðils síns. Atvinnu- og viðskiptaaukningin á Suðurlandi mun að vísu auka umsvif og bæta hag þeirra sem atvinnu og viðskiptanna njóta. Það mun hins vegar þurfa að greiðast úr sameiginlegum sjóðum okkar og því ekki teljast hafgvöxtur heildarinnar, heldur aukning útgjalda, sem við verðum ein að standa undir.

Hefði þetta hins vegar gerst í Bandaríkjunum, hefðu Bandaríkin ein ekki þurft að standa undir útgjöldunum, þar sem allar þjóðir sem nota Dollar í sínum viðskiptasamningum þurfa að gæta að og verja verðgildi hans.  Þess vegna hafa hin svonefndu IÐNVELDIN SJÖ,  og margir Seðlabankar heimsins, iðulega þurft að kaupa Dollara í miklu magni, til,að forða hruni hans. Slíkur bakhjarl er ekki gagnvart "heimskulegri" efnahagsstjórnun okkar íslendinga, þó við högum okkur eins og svo sé.                 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég man ekki betur en að helsta röksemdin fyrir "einkavinavæðingu" ríkisbankanna hafi verið sú aðþá væri ríkið ekki lengur í ábyrgð fyrir bankana ef illa færi?  Allir helstu stjórnendur hér á landi eru menntaðir í Bandaríkjunum síðustu áratugi og eru með hagfræði heimskunnar á bakinu og virðast hafa náð henni nokkuð vel.

Jóhann Elíasson, 24.6.2008 kl. 18:02

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mér sýnist þeir flestir vera með Hagfræði heimskunnar stimplaða á ennið!

Sala ríkisbankanna var slys-heimskulegt slys.

Ekkert ríki getur verið án þess að eiga þjóðbanka.

Krónisk heimska og einkavinasýn okkar stjórnmálamanna var að sönnu búin að lama bankakerfi okkar. Við því gátum við brugðist með því að ráða erlenda bankastjóra sem yfirmenn.

Niðurlægjandi að vísu; en hefði orðið pólitíkusum þörf lexía. Og ég er þeirrar skoðunar að við þurfum lífsnauðsynlega á slíkum mönnum að halda núna til að taka af ábyrgð á aðsteðjandi vanda. Og ég er ekki að tala um inngöngu í ESB sem lausn.

Allt annað áður en gripið verður til slíkra örþrifaráða. 

Árni Gunnarsson, 24.6.2008 kl. 18:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 164791

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband