Hvenær lækka bankarnir vextin???????

Nú hefur Íbúðalánasjóður afsannað þau ummæli bankamanna, að vextirnir séu svona háir hér á landi vegna hárra stýrivaxta Seðlabankans. Bent hefur verið á að bankarnir SJÁLFIR ákveði sína vexti; stýrivextir Seðlabanka komi því máli ekkert við.

Ef lánastofnunum væri skylt að fara eftir vöxtum Seðlabanka, hefði Íbúðalánasjóður ekki geta lækkað vexti sína, eins og hann gerði nú á dögunum. Með þessari lækkun vaxtanna fletti Íbúðalánasjóður þeirri lygagrímu af bönkunum, að þeir geti ekki lækkað vexti fyrr en Seðlabankinn lækki stýrirvexti.

Hvernig væri ef allir tölvutengdir landsmenn sendu daglega fyrirspurn, í tölvupósti, til allra banka landsins, með fyrirspurn um hvenær þeir lækki vextina til samræmis við það sem tíðkast í samanburðarlöndum okkar.

Bankarnir eiga leikinn. Þeir eru fljótir að hækka en líklega þarf að þrýsta þeim til að lækka, líkt og fleirum.         


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær tilllaga en ég held að það sé ansi erfitt að fá landann til að sýna samstöðu í svona máli. Ég ætla að prófa að senda fyrirspurn í bankann minn.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 19:47

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Á meðan fólk er tilbúið til þess að taka lán með þessum okurvöxtum, verður ekki um vaxtalækkun að ræða en hversu lengi ætlar almenningur í þessu landi að láta bankana taka sig "ósmurt" í ra....., án þess að gera nokkurn skapaðan hlut?

Jóhann Elíasson, 26.6.2008 kl. 23:27

3 identicon

Sendi fyrirspurn  í bankann í tvígang fyrst af hverju þeir gætu ekki lækkað vexti til samanburðar við það sem gerðist í nágrannalöndunum , þeir svöruðu fyrri spurningu því til að ástæðan væri sú að stýrivextir seðlabankans væru þeir hæstu í veröldinni. Þá sendi ég aftur fyrirspurn og er  spurningin  og svarið  fyrir neðan.

Ég sendi þér fyrirspurn um hvenær þið ætlið að lækka vexti í samræmi við það sem gerist í nágrannalöndum. Þið svöruðuð því til að stýrivextir væru svo háir að ekki væri hægt að lækka þá. Hvers vegna getur þá íbúðalánasjóður lækkað sína vexti? kveðja Rafn.

Sæll Rafn.
Við getum ekki svarað til um það hvenær vextir munu lækka. Stýrivextirnir eru ákvörðun seðlabankans. Íbúðalánasjóður er ríkisrekinn og við getum því ekki borið okkur saman við hann.
Kveðja, xxxxxx  Þjónustuver SPRON
Tók út nafn þjónustufulltrúans.
kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 164725

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband