Hve lengi telur þjóðin sig hafa efni á að hafa óvita við stjórnvölinn??

Það athyglisverða við þessa frétt er að gefið er undir fótinn með að stjórnendur fyrirtækja á Íslandi muni reyna að koma sér hjá því að fara eftir eðlilegum leikreglum við árs- og árshlutauppgjör fyrirtækja sinna. Þetta er athyglisvert því það segir beinlínis að reiknað sé með að stjórnendur Íslenkra fyrirtækja séu það óheiðarlegir að mikið spursmál sé um að þeir fylgi eðlilegum leikreglum við uppgjör fyrirtækja sinna. Er ástæða til að ætla að svo sé?  Í fréttinni segir:

Svokölluð viðskiptavild hefur margfaldast í efnahagsreikningum margra félaga og er yfir helmingur eigna sumra félaga í Kauphöllinni. (leturbr. G. J.)

Það kemur mér reyndar fátt á óvart lengur í fjármálalegu- og bókhaldslegu svindli. Ég verð þó að viðurkenna að ég átti ekki von á því að svo miklir óvitar réðu ríkjum í Kauphöllinni, hjá ríkisskattstjóra, fjármálaeftirliti og fjármálaráðuneyti, að þeir heimiliðu og viðurkenndu viðskiptavild sem skráða eign í efnahagsreikning fyrirtækja. -

Hvers vegna ekki og hvað er viðskiptavild?

Eins og segir í fréttinni: - Viðskiptavild er óefnisleg afgangsstærð sem verður til við kaup eða samruna fyrirtækja.

Rétt notkun á hugtakinu viðskiptavild,  er huglægt mat á því hvort fyrirtækið hafi skapað sér einhverja sérstöðu á viðkomandi markaði, umfram það sem eðlilegt geti talist; sem gefi því tekjur umfram það sem eðlilegt flæðimat tekna sýni. Til viðskiptavildar geta t. d. talist langtíma sölusamningar eða samningar um afslætti hjá birgjum, sem staðfest er að færist yfir til nýs eiganda, lág húsaleiga (lægri en markaðsleiga) samkvæmt langtímaleigusamning, sem og markaðsleg yfirburðastaða vegna þróunar góðrar vöru eða viðskptasambanda. Fleiri slíkir þættir geta komið til, sem hafa áhrif á rekstur og rekstrarafgang.

Eins og hér hefur verið sýnt fram á, er það í fyllsta máta óheiðarlegt og beinlínis rangt, að skrá viðskiptavild í efnahagsreikning fyrirtækis. Í efnahagsreikning eiga eingöngu að vera eignir sem eru varanleg verðmæti, en eins og segir í fréttinni er - Viðskiptavild óefnisleg afgangsstærð. Eðli málsins samkvæmt getur hún því ekki átt heima í efnahagsreikning fyrirtækja, sé eðlilega að verki staðið.

Að skrá viðskiptavild í efnahagsreikning fyrirtækis er því beinlínis ásetningur um að sýna ranga mynd af eignastöðu fyrirtækis. Væntanlega oftast til að skapa tiltrú eða hærra verð á hlutabréfum þess.

Hvorutveggja er óheiðarleiki og svindl.              


mbl.is Afskriftir upp á hundruð milljarða kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

..þýða ekki "afskriftir" það sama og teknir eru peningar og settir einhversstaðar annarstaðar í geymslu?..annars hef ég ekkert vit á þessu... ég er að sjálfsögðu að meina allar "þykjast afskriftir" ..SEM FYLGJA MEÐ ALVÖRU AFSKRIFTUM!!!....

Takk fyrir áhugaverðan pistil að venju.. þú kannt þetta betur enn ég. Er bara að reyna að læra þessi fræði..

Óskar Arnórsson, 24.7.2008 kl. 15:56

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll Óskar!   AFSKRIFTIR, eru aðrir þættir en viðskiptavild.

Afskriftir eru skattalegur frádráttur vegna fjárfestingar í rekstrarbúnaði (húsi, tækjum eða eða öðrum þáttum), þar sem skapaður er skattalegur frádráttur í mismörg ár, sem hlutfall af fjárfestingunni. Hugsunin að baki afskirftum er að skapa sparnað til fjárfestingar í nýju búnaði, þegar viðkomandi búnaður telst vera útkeyrður.

Viðskiptavild er hins vegar huglægt mat á tekjumöguleikum reksturs, umfram það sem beinlínis hefur streymt inn í kassann. Tekjumöguleikar sem t. d. er búið að undirbúa og gætu orðið að raunveruleika á næsta eða þarnæsta ári o. s. frv. 

Með kveðju,   G. J. 

Guðbjörn Jónsson, 24.7.2008 kl. 16:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Viðskiptavild er sko heldur betur "teygjanlegt hugtak" það sem einum finnst vera mikils virði sem viðskiptavild en verðlaust að annarra mati og þegar menn (stjórnendur fyrirtækja) eru að setja viðskiptavild inn í bókhald sem eign, þá eru þeir að gera stöðu fyrirtækisins betri á pappírnum og um leið falsa bókhaldið, til hvers og fyrir hverja?  Ég hef alltaf verið alveg "kjaftbit" á því að það skuli vera heimilt að færa viðskiptavild til eignar í bókhaldi.

Jóhann Elíasson, 24.7.2008 kl. 17:47

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

..já, ég veit um þær tegundir af afskriftum. Enn þegar er verið að "afskrifa" bankaskuldir er stundum "bætt við" svona til að sumir nái sér í vasapening...það voru þær "afskriftir" sem ég átti við..þetta með að kalla viðskiptavild "eign" er vara efnahagslegur brandari...ég á t.d. einkaleyfi og get metið það sem "viðskiptavild" nákvæmlega eins og mér sýnist...geri það bara ekki..

Óskar Arnórsson, 25.7.2008 kl. 01:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 164725

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband