Er Sjálfstæðisflokkurinn trúarbrögð, en ekki stjórnmálahreyfing ???

Þetta er afar athyglisverð niðurstaða. Annað hvort eru tæp 30% þjóðarinnar sem er alveg sama hvernig farið er með hagsmuni þjóðfélagsins, eða að Sjálfstæðisflokkurinn er trúarbrögð, sem eru að öllu leiti óháð athöfnum á stjórnamálasviði.

Yfirgnæfandi meirihluti kapítalískra hugsuða í hinum siðvædda heimshluta, hafa látið í ljós fullkomna vantrú á þeirri hugmyndafræði sem hefur verið meginstofn stjórnmálastefnu Sjálfstæðisflokksins undanfarna tvo áratugi. Þrátt fyrir þessa staðreynd, til viðbótar við gjöreyðileggingu á uppbyggingu síðustu kynslóða í íslensku viðskipta- og athafnalífi, virðist þriðjungur þjóðarinnar enn tilbúinn til að hjálpa Sjálfstæðismönnum að eyðileggja meira.

Það eru miklar líkur á að svona skoðanakönnun veki umtalsverða athygli, því hún er afar glöggt vitni um hörmulega siðferðisvitund; að þriðjungi þjóðarinnar sé sama um þær hörmungar sem yfir þjóðina hafa verið leiddar.

Miðað við það sem fram er komið, hefði verið eðlilegt að Sjálfstæðisflokkurinn fengi svoa 5% í þessari könnun, en ynni sig á næstu tveimur árum upp í svona 15%, stæðu þeir sig vel í endurbyggingu lífsgæða þjóðarinnar.                 


mbl.is Minnihluti styður stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sjálfstðisflokkurinn virðist vera trúarhreyfing  satt er það

Hólmdís Hjartardóttir, 26.10.2008 kl. 14:15

2 identicon

Sjálfstæðismenn eru Heiladauðir Kjósendur

Æsir (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 14:17

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Óákveðnir voru óvenju margir og staðan er því mjög óljós. Hægri menn eiga fáa valkosti því þeim hugnast ekki að flykkja sér um forystulausan Frjálslynda flokkinn. Mín tilfinning er sú að það séu helst gamlir Sjálfstæðismenn sem endanlega hafi gefist upp á flokknum. Útrásarelítan og aðrir þeir sem hafa keypt þingmennina sitja óhaggaðir en særðir. Ungt lærdómsfólk með frjálshyggjuinnrætingu úr Háskólum er heilaþvegið og safnast saman í hópa og "vitnar" um að sósíaliskar flumbruaðgerðir í BNA hafi komið óorði á frjálshyggjuna á örlagastund.

Athygliverð var ályktun Jóhannesar Björns Lúðvíkssonar í Sifrinu í dag, að frjálshyggjan væri ekki stjórnmálaafl heldur trúarskoðun. Þá skoðun hef ég óhikað látið þráfaldlega í ljós mörg undngengin ár enda á það að vera augljóst öllu andlega heilbrigðu fólki.

En umræddur maður sagði margt fleira sem kom mér til að sperra eyrun. Eins og það að greiningardeildir bankanna væru öflugustu auglýsingastofur samfélagsins.

B.kv.

Árni Gunnarsson, 26.10.2008 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 164796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband