Vilja Sjálfstæðismenn geta rekið sömu svikamylluna áfram, án þess að sagt sé frá ?

Athygisvert viðtal við þessa tvo ungu menn á Alþingi. Annar vill ALLS EKKI að almenningur sé látinn vita ef fjármálamenn taka of miklar áhættur og stofni hagkerfinu í hættu aftur.

Hinn vill endilega hafa inni í lögunum allar þær traustustu varnir sem þekktar eru, til að fyrirbyggja að fjármálamenn vogi sér í aðra eins fjárglæfra og hér hafa verið stundaðir undanfarinn áratug, og rúmlega það.

Líklega sjá nú allir sem á þetta hlusta hvor aðilanna ber hagsmuni þjóðarinnar fyrir brjósti og hver það er sem hugsar fyrst og fremst um að halda opnum leiðum fyrir fjárglæframenn til að geta, með ábyrgðarlausum og óheiðarlegum hætti dregið að sér fjárstreymi sem ætti að fara til eflingar atvinnulífs í landinu.  Það verður gama að fylgjast með í hvaða sæti Sigurður Kári lendir í prófkjöri Sjálfstæðismanna. Hann er greinilega góður mælikvarði á það hve margir eru í Sjálfstæðisflokknum sem vilja hagsmuni fjárglæframanna ofar hagsmunum þjóðarheildarinnar. Við sjáum hvað gerist.             


mbl.is Gæti kollvarpað fjármálalífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það að tilkynna að fjárglæframenn hafi tekið of mikla áhættu getur í raun tryggt að gjaldþrot fyrirtækja þeirra lendi á almenningi. Því hefur það jafnan ekki þótt góð bankamennska hjá seðlabönkum að tala ógætilega um einstaka fyrirtæki í atvinnulífinu. Mikið hefur verið rætt um hvernig þetta sé gert erlendis, Seðlabankar tjá sig ekki um einstaka vandamál fyrirtækja erlendis. Af hverju eigum við að fylgja útlöndum í öllu nema þessu? Gæti það mögulega verið að þeir sem gagnrýna Sigurð Kára hvað mest vita ekki um hvað þeir eru að tala?

Blahh (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 23:55

2 Smámynd: Magnús Jónsson

Guðbjörn: getur verið að Sigurður Kári hafi áhyggjur af einstaklingum í valdastöðu, sem gætu misbeitt sér til að koma höggi á einstaklinga eða fyrirtæki í þeirra eign, það til að mynda er tekið hart á því á verðbréfamörkuðum erlendis, ef greiningaraðilar gefa út falskar viðvaranir um stöðu fyrirtækja, sem getur leitt til hruns á verði bréfa annarra fyrirtækja í sama geiranum, það er ekki bara hvít eða svart í þessu frekar en öðru, en auðvitað á allt að vera uppá borðunum, leyndin sem ríkti sínir okkur best hvað getur farið afvega, enþá sjáum við ekki helminginn af því sem gerðist.

Magnús Jónsson, 28.2.2009 kl. 09:03

3 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll Magnús!   Það skýn ekki beinlínis umhyggja fyrir litla manninum út úr orðum Sigurðar Kára. Hver veit nema þú hafi hitt naglann á höfuðið.  Það væri nú fáliðað í greiningardeildum bankanna okkar ef þeim hefði verið refsað íhvert sinn sem þeir gáfu út rangar spár.  Einu sinni var sagt að áherslan um leynd, yxi í réttu hlutfalli við þann óheiðarleika sem þyrfti að fela.

Guðbjörn Jónsson, 28.2.2009 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 164789

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband