Getur verið skylda að leyna afbrotum ????

Það getur verið álitamál með opinberun allra lána í lánabók.  Hins vegar er einnig hægt að spyrja, varðandi útlán hárra fjárhæða, til eigenda eða tengdra aðila, án fullnægjandi trygging, hvort þar sé um lánastarfsemi að ræða.

Á sérhverjum manni hvílir sú skylda að upplýsa um glæpi eða lögbrot, verði hann vitni að slíku, eða hafi rökstuddan grun um að afbrot hafi verið framið. Deila má um með hvaða hætti eigi að upplýsa um slíkt, en ef aðstæður hér eru skoðaðar í ljósi tregðu yfirvalda við að opinbera ótvíræða brotastarfsemi í lánastofnunum á undanförnum árum, er vel skiljanlegt að þeir sem vilja koma á framfæri upplýsingum um brotastarfsemi, noti netið til slíkra uppljóstrana.

Slíkir möguleikar til uppljóstrana eiga ekki að vera hamlandi fyrir þá sem frétta af brotastarfsemi sem hljótt átti að fara. Slíkir möguleikar eiga að virka sem hindrun á þá sem vilja stunda brotastarfsemi, og þar af leiðandi leiða þjóðfélagið í átt til heilbrigðra viðskiptahátta.         


mbl.is Tvímælalaust heimilt að birta upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband