30.11.2008 | 14:12
Gjaldþrot meginþorra sjávarútvegsfyrirtækja hefur legið fyrir í mörg ár
Það hefur legið ljóst fyrir til margra ára að öll stærstu fyrirtæki sjávarútvegs á Íslandi eru löngu orðin gjaldþrota. Stjórnvöld, með Fiskistofu og sjávarútvegsráðuneyti í farabroddi hafa með beinum hætti tekið þátt í að FALSA eignastöðu útgerðarfyrirtækja, með þátttöku sinni í gengdarlausu ofmati á verðgildi aflaheimilda.
Þetta ofamt hefur lánastofnunum líka verið ljóst, en samt lánað hundruði milljarða til þessarar vitlausu fjárfestinga, sem ekkert veð var til fyrir. Að síðustu hefur svo fjármálaráðuneytið og Ríkisskattstjóri verið beinir þátttakendur í þessu samráði um lögbrot og þjófnað á eignum þjóðfélagsins, með því að heimila útgerðarfyrirtækjum að eignfæra í bókhaldi sínu veiðiheimildir, sem ALDREI hafa verið eign útgerðarfyrirtækjanna, því slíkum heimildum er einungis úthlutað til eins árs í senn og þær notaðar á því ári, og því ekki eign.
Ég hef bent á það, í langt til tvo áratugi, að varanlegar aflaheimildir hafa aldrei verið til og aldrei hefur Alþingi heimilað neinar sölur aflaheimilda; einungis heimilað að aflaheimildir væru FLUTTAR milli skipa.
Það er undarlegt, þegar sömu atriði og búið er að margtyggja ofaní fjölmiðla og stjórnvöld, verða allt í einu að nýjum sannleika, þegar einhverjir sérstakir menn segja það, sem áður hefur verið marg sagt í meira en áratug.
Er þetta hið opna tjáningarfrelsi og að allir hafi jafnan rétt á að láta skoðanir sínar í ljós? Já, þetta er það. En það gleymdist bara að setja reglur sem bönnuðu þögggun fjölmiðla, sem nú um tveggja áratuga skeið hefur verið sérstaklega mikil, á þann hluta þjóðarinnar sem á málefnalegan og rökstuddan hátt hefur gagnrýnt óvita- og vitleysisgang opinberra aðila.
Það hefði mátt spara þjóðinni miklar hörmungar mörg hundruð milljarða, ef fjölmiðlar hefðu ekki tekið þátt í spillingunni með þöggun á eðlilega og rökstudda gagnrýni.
Hér á landi hefur alltaf verið til fólk sem hefur viljað standa utan við drullupoll óheiðarleika og spillingar, og segja einfaldan sannleikann um þau óhæfuverk sem hér hafa verið unnin, en frá því hafa fjölmiðlar ekki viljað segja og stjórnmálaflokkar ítt þessu fólki til hliðar, sem óþægilegu.
![]() |
Sjávarútvegurinn í raun gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 30. nóvember 2008
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.10.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 166181
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur