24.2.2008 | 18:39
Er enginn við stýrið á þjóðarskútunni sem kann að sigla?
Eins og margt annað í þjóðfélagi okkar, eru svokallaðir "stýrivextir Seðlabankans" allt annað en látið er í veðri vaka. Af umræðunni mætti ætla að Seðlabankinn beinlínis STÝRÐI vaxtastigi útlána hér á landi. Að sjálfsögðu á það ekki að vera svo, því vaxtaákvarðanir voru gefnar frjálsar fyrir aldarfjórðungi síðan. Samkvæmt lögum um Seðlabanka, hefur hann einungis heimild til að ákvarða vexti á sínum eigin lánsviðskiptum, sem einungis mega vera við lánastofnanir sem heimild hafa, smkv. lögum, til að taka við innlánum til ávöxtunar og að stunda útlán. Auk þessa ákvarðar Seðlabankinn einnig dráttarvexti. Viðskipti Seðlabankans við lánastofnanir eru afar takmörkuð og þokkalega vel útskýrð og skýr í lögunum um Seðlabankann. Önnur lánaviðskipti má hann ekki stunda og t. d. má hann EKKI veita ríkissjóði, ríkisstofnunum eða sveitarfélögum lán. En hvert er þá meginverkefni Seðlabankans? Engri lánastofnun er eðlilegt eða skylt að haga vöxtum sínum eftir ákvörðunum Seðlabanka, geti þeir hagað starfsemi sinni á þann veg að þeir þurfi ekki lánafyrirgreiðslu frá honum.
Samkv. 3. gr. laga um Seðlabanka Íslands, er meginverkefni hans að stuðla að stöðugu verðlagi og stuðla að framgangi stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Auk þess sér hann um útgáfu myntar, viðhalda tilteknum gjaldeyrisforða og annast yfirumsjón með starfsemi lánastofnana í landinu, t. d. varðandi eiginfjárstöðu og stöðu lausafjár, þannig að þær geti greitt út þau innlán sem hjá þeim eru vistuð. Hann skal einnig stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ. m. t. greiðslukerfi í landinu og við útlönd. Ýmis fleiri verkefni tilheyra Seðlabankanum en þetta gætu talist helstu verkefnin. Eins og sjá má af þessu, er hlutverk Seðlabankans afar þýðingarmikið fyrir heilbrigði þjóðlífsins, því heilbrigði þess fer afar mikið eftir skynsamlegri stjórnun á flæði fjármagns um lífæðar þess.
Í opnu hagkerfi má líkja fjármunum við blóðið í líkama okkar. Heilstætt heilbrigði okkar er ekki til staðar nema blóðið flæði í stöðugri hringrás um alla kima líkamans. Verði einhverstaðar hindrun á, blóðið stöðvist á einhverjum einum stað, eða gat komi á æð og blóðið flæði út, sveltur það svæði sem missir blóðflæðið. Við getum svo sem sagt: - Hvað, þetta er svo lítið að það skiptir engu máli fyrir heildina.- Það er hins vegar alls ekki rétt, því ef ekki er bætt úr, er hætt við að það komi drep í svæðið sem missti blóðflæðið og það drep geti haft áhrif á önnur svæði sem annars væru heilbrigð. Ef þið notið skynsamlega, fullkomnustu tölvu veraldar, sem hvert og eitt ykkar hefur í kollinum, eigið þið að geta myndgert þessa samlíkingu með streymi fjármagns um þjóðlífið okkar.
Síðastliðna þrjá áratugi hefur ekkert stjórnmálaafl á Alþingi sýnt í orði eða verki að það skilji nauðsyn þess að reglubundið og jafnt flæði fjármagns fari um allar æðar þjóðlífs okkar. Engin breyting er á því hjá núverandi þingmönnum, ráðherrum eða stjórnendum lánastofnana. Þess vegna stefnum við hraðfari að alvarlegri kreppu í þjóðlífi okkar.
Undanfarna tvo áratugi höfum við stigið mikinn Hruna-dans, þar sem haldið hefur verið uppi mikilli skuldasöfnun þjóðfélagsins, með erlendum lántökum lánastofnana og fyrirtækja. Þessir fjármunir hafa ekki verið notaðir til eflingar atvinnu sem gæfi af sér aukna fjármuni. Þeir hafa fyrst og fremst verið notaðir til fjárfestinga sem engri blóðrás skilaði til þjóðlífsins. Lánastofnanir hafa mokað þessu fjármagni út til bygginga á ónauðsynlegu húsnæði sem engan lífskraft gefur þjóðlífinu, auk þess sem verulegir fjármunir hafa verið settir í afar grunnhyggnar væntingar um óútskýrðar hagnaðarvonir, einhverstaðar langt inni í framtíðinni. Þessar hagnaðarvonir hafa gengið kaupum og sölum hjá fjárhættuspilurum nútímans. Flestir þessara aðila hafa opnað æðar þjóðlífsins og tappað af því umtalsverðu magni lífsvökvans, án þess að eftirlitsaðilarnir í Seðlabankanum láti á því bera að þeir skilji hættuna sem af því skapast.
Í tengslum við heilbrigði líkama okkar, gerum við okkur stöðugt meiri grein fyrir því hve forvarnir gegn hverskonar vanheilsu eru mikilvægar. Sama á raunar við um mikilvægi forvarna gegn mistökum við stjórnun á flæði fjármagns um alla þætti þjóðlífs okkar. Mikilvægt er að tala hreinskilnislega og fljótt um þau frávik sem verða í þjóðlífi okkar, og hverfa frá því sem viðgengist hefur undanfarna áratugi, að bregðast ekki við fyrr en frávikin hafa skapað neyð sem ekki verður komist framhjá. Seðlabankinn þarf nauðsynlega að segja fljótt frá því er hann sér breytignar á flæði fjármagns um þjóðlífið, sem valdið geti samfélagslegum skaða ef leiðrétting fari ekki fram. Til þess að svo geti orðið, verða Seðlabankastjórar fyrst og fremst að vera fagmenn í heilsufræði þjóðlífs, en ekki uppgefnir stjórnmálamenn sem eytt hafa meginþorra starfsævi sinna í að búa til mein í þjóðarlíkmann.
Hvað hef ég fyrir mér í því að tala um mein í þjóðarlíkamanum?
Flestir sem lifa ekki eins og ungar í hreiðri, sem bíða með opinn gogginn eftir að vera mataðir, vita að þeir þurfa að afla tekna inn í umhverfi sitt til að geta veitt sér nauðsynlegar þarfir. Margir átta sig líka á því að verðmæti, þ. e. peningar, verða ekki til af sjálfu sér, heldur fyrir tilstuðlan af sköpun verðmæta sem aðrir, utan heimilis eða svæðisins kaupa. Þannig koma tekjur inn á heimilin með því að starfað sé utan þeirra; tekjur sveitarfélaga koma fyrir seldar vörur eða þjónustu út fyrir svæðið og tekjur þjóðfélagsins koma fyrir þær vörur eða þjónustu sem við getum selt öðrum þjóðum. Við höfum enga sjálfrennandi auðsuppsprettu þannig að við verðum að haga lífi okkar í takt við það sem við öflum.
Fyrir rúmum tveimur áratugum eða árið 1986, voru flest öll sjávarþorp á landsbyggðinni að búa til mun meiri þjóðartekjur en þeir notuðu sjálfir. Þetta var afar nauðsynlegt vegna þess að höfuðborgarsvæðið, sem þá var 55% landsmanna, var ekki að búa til nema 6,8% af tekjum þjóðfélagsins. Meginhluti atvinnulífs á höfuðborgarsvæðinu snerist um þjónustu við svæðið sjálft sem og við landsbyggðina.
Við þessar aðstæður taka stjórnvöld og Alþingi ákvörðun um að rústa atvinnuvegum landsbyggðarinnar, sem að meirihluta til voru tengdar fisk- veiðum og vinnslu. Hlutur fiskveiðanna var þá um 52,5% af verðmætum útflutts sjávarafla en er nú snöggt um meiri, enda þarf útgerðin mun meira af heildarverðmætunum til sín nú, vegna gífurlegrar skuldasöfnunar. Með aðgerðum sínum má segja að stjórnvöld og Alþingi hafi tekið blóðrásina af stórum hluta þjóðarlíkamans og flutta hana til fáeinna fyrirtækja sem engan áhuga höfðu fyrir þjóðarlíkamanum, hugsuðu einungis um sitt eigið ágæti.
Afleiðingar þess að blóðrásinni (verðmætasköpun og peningastreymi) var kippt burtu frá þessum stóru hlutum þjóðarlíkamans fóru fljótlega að koma í ljós. Lífskrafturinn, lífsgleðin og hugmyndakrafturinn fjaraði út og nú er meginhluti þjóðarlíkamans lamaður og er að visna. Samt örlar ekki á skilning á vandamálinu hjá stórnvöldum, Alþingi eða þeim sem gæta eiga jafnræðis í streymi fjármuna um þjóðarlíkamann, þ. e. Seðlabankastjórum.
Ætli það sé enginn á Alþingi sem kann eitthvað fyrir sér í stjórnun þjóðfélagsins?
Bloggfærslur 24. febrúar 2008
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.10.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur