Vegna ummæla í bréfi LHG skrifaði ég Siglingastofnun

Í bréfi Landhelgisgæslu kom fram að Siglingastofnun að réttindalausir menn væru skipstjórar á fiskibátum við sjóstandaveiði. Slíkt er langt utan allra laga, þess vegna var stofnuninni skrifað eftirfarandi bréf

 

Siglingastofnun Ísalnds,
Hr. Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri.

Vegna fyrirhugaðrar fyrirspurnar til Umboðsmanns Alþingis, vegna umdeildra fiskveiða hóps krókaleyfisbáta frá Vestfjörðum, í eigu fyrirtækjanna Hvíldarkletts ehf. og Sumarbyggðar ehf.  er óskað eftirfarandi upplýsinga.

Í svari frá Landhelgisgæslunni með bréfi dags. 11. ágúst 2008, vegna fyrirspurnar þangað, komu eftirfarandi upplýsingar fram.

"Fyrirtækin sem gera út frístundafiskiskipin gera það með fullri vitund Siglingastofnunar og Fiskistofu og fagráðuneyta samgöngu- og sjávarútvegsmála."

"Landhelgisgæslan hafði samband við Siglingastofnun og samgönguráðneytið vegna frístundafiskiskipanna og afstaða ráðuneytisins var sú að frístundafiskveiðimenn þyrftu ekki réttindi skv. 30/2007 til að sigla þessum bátum."

Hér með óskast staðfesting Siglingastofnunar á því hvort það sem fram kemur í bréfi Landhelgisgæslunnar sé rétt.

1.    Er það rétt að allir bátar þessara fyrirtækja, sem um er rætt, og eru, hver um sig, meira en 6 metra fiskibátar, skráðir hjá Fiskistofu sem krókaleyfisbátar, með veiðileyfi í krókaaflamarki, séu með vitund og samþykki Siglingastofnunar gerðir út sem "frístundafiskiskip"?

2.    Frístundafiskiskip, sem flokkun skipa, finnst ekki í neinum lögum. Á hvaða lagaheimildum byggir Siglingastofnun samþykki sitt fyrir útgerð þessara skipa. Útskýringar óskast ásamt afriti viðkomandi lagaákvæðis.

3.    Á grundvelli hvaða lagaákvæðis er byggð sú afstaða Siglingastofnunar að á bátum Hvíldarkletts ehf. og Sumarbyggðar ehf. þurfi ekki skipstjórnar- vélstjórnar- eða öryggisréttindi til siglingar á bátum, sem allir eru yfir 6 metra langir hver?

Vænti svara við þessu hið fyrsta. Svarið má senda á netfangið gudbjornj@internet.is

Reykjavík 12. ágúst 2008

Guðbjörn Jónsson


             


Fékk svar frá Landhelgisgæslu og sendi fleiri spurningar

Í gær fékk ég svar frá Landhelgisgæslunni við spurningum mínu til forstjóra hennar. Svarið var í raun ekkert svar, en töluverð uppljóstrun um alvarlega spillingu í stjórnkerfi okkar.  Ég sendi LHG eftirfarandi bréf í morgun, í framhaldi af svarbréfi þeirra.

 Forstjóri Landhelgisgæslunnar (LHG), hr. Georg Lárusson.
b. t. einnig til Dagmarar Sigurðardóttur, lögfræðings.

ERINDI: Varðandi meint brot Landhelgisgæslunnar á 65. gr. stjórnarskrár, lögum nr. 30/2007 og lögum nr. 116/2006.

Ég hef móttekið svar þitt við bréfi mínu frá 7. ágúst s. l. Ég hefði gjarnan viljað fá þetta bréf sent sem ritvinnsluskjal, en ekki sem pdf. mynd. Það auðveldar vinnslu með skjalið. Einnig hefði ég viljað SVAR við spurningum mínum, en ekki upplýsingar um það hvað öðrum aðilum FINNST að þið ættuð að gera. Ég ítreka því spurningar mínar úr fyrra bréfi, og af tilefni þess sem í þínu bréfi stendur, óska ég afrits af þeim heimildum sem LHG hefur verið veitt til að sniðganga lög og stjórnarskrá landsins.

Af svari þínu að dæma, virðist þið ekki gera ykkur grein fyrir að LHG er framkvæmdaaðili að þeim lögum sem sett hafa verið á Alþingi, en ekki gæsluaðilar hugarfósturs einstakra stjórnmálamanna eða ráðuneyta. Í 1. mgr. bréfs þíns tala þú um "frístundafiskiskip" og vísar til þess að samkvæmt lögum nr. 30/2007 þurfi ekki réttindi til að sigla þessum bátum. Ég hef lesið þessi lög en finn hvergi þessar heimildir, og hvergi nefnda þessa tegund fiskibáta. Vinsamlegast sendið mér afrit af þeim kafla laganna þar sem þessara skipa er getið og að ekki þurfi réttindi til að sigla þeim.  Þekkt er, að þó frumvarp hafi verið lagt fram á Alþingi, en ekki verið tekið til umræðu, hefur það EKKERT lagagildi og alls óvíst að það verði nokkurn tíman að lögum. Tilvísun í slíkt er því óþægilegur barnaskapur af hálfu löggæsluaðila sjófarenda við Ísland.

Í 2. mgr. bréfs þíns segir þú:

"Fyrirtækin sem gera út frístundafiskiskipin gera það með fullri vitund Siglingastofnunar og Fiskistofu og fagráðuneyta samgöngu- og sjávarútvegsmála. Landhelgisgæslan fer ekki með ákæruvald. Ef Landhelgisgæslan kærir stjórnendur frístundafiskiskipa til lögreglu er kæran send fagstofnun til umsagnar áður en ákæra er gefin út. Miðað við afstöðu fagráðuneyta og stofnana siglinga- og sjávarútvegsmála er ljóst að engin ákæra yrði gefin út."

Ég er ekki viss um að þú gerir þér grein fyrir hve mikla siðspillingu þú upplýsir um í þessum kafla bréfs þíns. Lítum nánar á þetta. Þú segir:

 Fyrirtækin sem gera út frístundafiskiskipin gera það með fullri vitund Siglingastofnunar og Fiskistofu og fagráðuneyta samgöngu- og sjávarútvegsmála.

 Hefur þú staðfestar heimildir fyrir þessu, eða einungis sögusagnir?

Ef heimildirnar eru staðfestar óskast afrit af þeim. Þú segir einnig:

Ef Landhelgisgæslan kærir stjórnendur frístundafiskiskipa til lögreglu er kæran send fagstofnun til umsagnar áður en ákæra er gefin út.

Hvar í stjórnarskrá okkar eða almennum lögum er það VALKVÆTT, og undir hentistefnu stofnana stjórnkerfisins, hvort þeir sem uppvísir verða að því að brjóta lög landsins séu handteknir og leiddir fyrir dómara? Vinsamlegast upplýsið mig um þessi ákvæði stjórnarskrár og almennra laga og sendið mér afrit af þessum heimildum til að velja úr þá lögbrjóta sem hljóta ákæru.

Það leysir ekki LHG undan skyldum sínum að vísa til þess að lögreglustjórar hafi vald til að gefa út ákæru. LHG er lögæsluaðili á hafinu. Þið hafið vísað íslenskum sjómönnum í land sem ekki hafa tilskilin réttindi til siglinga, samkvæmt lögum. Þar af leiðandi, með vísan til 65. gr. stjórnarskrár. Þið vitið að hinir umræddu sjóstangaveiðibátar eru skráðir krókaaflamarksbátar að veiða úr krókaaflamarki. Þið vitið væntanlega hvað lögin nr. 116/2006 segja um heimila nýtingu krókaaflamarks. Þið eigið því enga undankomu í því að færa þessa báta til hafnar, ef réttindamenn eru þar ekki um borð, eða þeir séu að veiða úr krókaaflamarki með sjóstöng.

Með vísan til þess sem að framan er sagt, skal endurtekin óskin um að, telji LHG sig hafa heimildir til að mismuna sjómönnum í réttargæslu sinni, þá verði mér send afrit af þeim heimildum, ásamt öðru sem óskað hefur verið eftir.

Ég ítreka einnig 3. spurningu mína úr fyrra bréfinu, því það er ekki Fiskistofa sem hefur löggæsluna á hafinu. Það er LHG.

Vænti svara við þessum spurningum svo fljótt sem kostur er og minni á ákvæði stjórnasýslulaga þar um.

Virðingarfyllst

Reykjavík 12. ágúst 2008

Guðbjörn Jónsson


            


Bloggfærslur 12. ágúst 2008

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 166181

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband