18.10.2010 | 16:51
Vitleysan í upphafi hruns þvælist endalaust fyrir
Ákveðin alvarleg mistök voru gerð í upphafi, þegar gömlu bankarnir voru yfirteknir. Augljóslega voru þar engir við ákvarðanatökur, sem þekktu innra skipulag bankanna. Því fór sem fór.
Þegar gömlu bankarnir voru teknir yfir, voru þeir yfirteknir sem heild, með öllu ruglinu í svokölluðum fjárfestingarhluta starfsemi þeirra. Þann hluta átti að skilja eftir hjá gömlu bönkunum.
Málið er, að á hverri nóttu, eftir virkan starfsdag banka, eru allir reikningar í bankakerfinu gerðir upp í gegnum tölvukerfið hjá Reiknistofu banaknna. Þannig er á hverjum morgni nákvæm niðurstaða allra hreyfinga, hvers einasta reiknings, í öllu bankakerfinu, frá deginum áður. Ný byrjun getur því hindrunarlaust hafist á hverjum morgni, varðandi alla venjulega bankastarfsemi viðskiptabanka. Öðru máli gegnir með fjárfestingabanka.
Til viðskiptabaka heyra allir innlánsreikningar, veltureikningar, víxlar og skuldabréf samkv. höfuðbókum 66 og 74.
Ef menn hefðu látið sér nægja að yfirtaka viðskiptasvið banknna, þ. e. innláns- og veltureikninga, víxla og framangreind skuldabréf, hefði þjóðfélagið verið losað við stærstu vitleysurnar úr fjármálakerfinu og það sjálft, þ. e. slitastjórnir og skiptaráðendur gömlu bankanna, haft einir það verkefni að gera upp sukkið. Ríkisstjórn og skattgreiðendur hefðu hvergi komið þar nærri.
Með þessu móti hefði strax, á fyrstu mánuðum eftir hrun, verið hægt að kortleggja leiðréttingaferli fyrir heimili og smærri fyrirtækin, sem eingöngu áttu í viðskiptum við viðskiptahluta bankakerfisins. Heimilin væru því fyrir meira en ári komin í varanlegt umhverfi og mörg fyrirtæki farin að leita leiða til vaxtar og framþróunar.
Önnur vitleysa, sem gerð var í upphafi, var að gera ekki strax úttekt á því hve miklu magni af íslenskum peningum hafði verið komið undan, með því að flytja þá úr landi. Hvað mikið átti þjóðin eftir, til að fjármagna rekstur þjóðfélagsins, eins og hann var á þeim tíma. Ljóst var að samdráttur var nauðsynlegur, því við höfðum aukið verulega umfang og veltu þjóðfélagsins, með erlendu lánsfé, sem nú var horfið úr hringrás fjármagns um þjóðfélag okkar.
Nauðsynlegt hefði því verið að ríkisstjórn og Alþingi hefðu strax, haustið 2008, tekið þá ákvörðun að gefa út nýja mynt; krónu sem væri 1/10 verðmætari en sú sem verið hafði í gildi. Starx og myntin hefði verið tilbúin, hefði gamla myntin verið innkölluð, og fólk fengið 3ja mánaða frest til að skipta yfir í nýjum myntina. Að þeim tíma liðnum væri gamla myntin verðlaus.
Skilyrði myntskipta hefðu átt að vera þau að sá sem skipta vildi gömlum krónum fyrir nýjar, gæti sannað á hvern hátt hann eignaðist gömlu krónurnar og að af þeim hefði verið greiddur skattur og önnur opinber gjöld til ríkissjóðs.
Hefði þessu ferli verið fylgt, væri allt íslenskt fjármagn komið til skila, eða orðið ónýtt, þeim sem það fjarlægðu úr vörslu þjóðarinnar. Hefði tilkynning um myntskiptinguna verið tilkynnt strax eftir hrunið, hefðu engir bankar breytt gömlum íslenskum krónum í aðrar myntir. Þannig hefðu safnararnir setið uppi með hið illa fengna fé, og ekki átt aðra leið en að skila því aftur, eða horfa á það verða að engu.
Samhliða þessu hefði átt að byggja upp flæðilíkan af rekstri þjóðfélagsins, og finna með því út hvað þjóðartekjurnar gætu borið uppi mikla samneyslu. Það er stærra og umfangsmeira viðfengs, en svo að því verið gerð skil í stuttum pistli.
Sjáum til síðar.
![]() |
Verið að leggja mat á ýmsa kosti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 18. október 2010
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur