Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2018

OPIÐ BRÉF TIL Fjármálaráðherra, Hr. Bjarni Benediktsson

Hr. Fjármálaráðherra,

Bjarni Benediktsson.

Reykjavík 17. nóv. 2018.

ERINDI:  Ummæli þín í ræðustól Alþingis um lífeyrisgreiðslur til aldraðra og öryrkja, o.fl.

Við skulum byrja hér að skoða hvað þú sagðir í  svari þínu, í ræðustól Alþingis.

„Hvað þýðir þetta í auknum bótarétti fyrir hvern og einn bótaþega? Þetta þýðir að bæturnar hafa hækkað fyrir hvern og einn bótaþega um 1,1 milljón á ári. Hvers vegna stendur þá þessi hv. þingmaður hér og heldur því fullum fetum fram að þessi hópur hafi algerlega setið eftir? Tölurnar sýna allt annað.“

Ég hef nú oft fylgst með þessum innihaldslausu fullyrðingum þínum um lífskjör okkar eldri borgara þessa lands. Ég hef reglulega haft samband við Hagstofu til að spyrjast fyrir um tölulegar forsendur, því ég hef ekki orðið var við þessar miklu kjarabætur sem þú talar um. Í áðurgreindu svari þínu í ræðustól Alþingis segir þú að: „Þetta þýðir að bæturnar hafa hækkað fyrir hvern og einn bótaþega um 1,1 milljón á ári“.  Þarna ert þú að tala um fleiri en eitt ár. Að hver og einn bótaþegi(óvirðingarorð um áunna lífeyrisgreiðslu en ekki ölmusubætur).

GJ 2014-2018

Á myndinni hér til hliðar sérðu lífeyrisgreiðslur mínar fyrir árin 2014-2018 bæði frá TR og lífeyrissjóðir, borið saman við neysluvísitölu. Væntanlega veist þú að samkvæm 69. gr. laga nr. 100/2007 verða lífeyrisgreiðslur, að hækka að lágmarki, til samræmis við  breytingar á neysluvísitölu. En svo hefur því miður aldrei verið frá bankahruni 2008.  Það er athyglisvert að sjá hve nákvæmlega lífeyrissjóðirnir framfylgja framangreindu lagaákvæði um vísitöluhækkun, því greiðslur sjóðanna fara nákvæmlega sömu breytingalínuna og neysluvísitalan. Eins og á myndinni sést, hefur Tryggingastofnun aldrei, frá 2008, greitt réttan lífeyri. Aðrar greiðslur til okkar hafa einnig verið skertar og skattbyrði aukist. Það mætti kannski bjóða þér að horfa á hvernig Alþingi og stjórnvöld hafa staðið sig gagnvart eldri borgurum að skila þeim lífeyri samkvæmt ykkar eigin lögum. Hér er yfirlit frá árinu 1998 til 2016.

ÖLD:VÍS 1998-2016

 

  

 

 

 

 Finnst þér ekki ástæða til að fara í ræðustól Alþingis og biðja okkur afsökunar á óþarfa hroka þínum og hleypidómum? Þú gætir um leið gert grein fyrir hvenær ætlunin væri að gera upp við okkur, þann lífeyrir sem af okkur hefur verið dregið í áratug, eða svo.

Í upphafi Kjararáðsveislu, til Ykkar, þingmanna og efri laga stjórnenda, sýndi það sig að lífeyrir okkar eldri borgara, þurfti þá að hækka um tæpt 41% til að jafnast á við lífskjarabætur sem ykkur fannst greinilega að þið ættuð skilið að fá.

En kæri Bjarni.  Ef það hefði verið rétt sem þú sagðir í ræðustól Alþingis, að greiðslur lífeyris til eldri borgara hefðu hækkað, á hvern mann um 1,1 milljón á ári, undanfarin ár, þó ekki væri nema yfir þessi 5 síðustu ár sem ég sýni á fyrri myndinni, þá er mér alveg ljóst að við værum ekki óánægð með það.

En nú að öðru, fyrst ég er farinn að bauna á þig.  Þá má ég til með að vekja athygli þína á þeim tekjuauka ríkissjóðs sem felst í að hætta öllum skerðingum á lífeyrisgreiðslum og leyfa eldri borgurum að vinna það sem þeir geta, og greiða af því skatta. Ef u.þ.b. helmingur fólks á lífeyrisaldri mundi vinna fyrir 250.000 kr. launatekjum á mánuði, þá væru skatttekjur að aukast verulega og samfélagsveltan að vaxa. Það gæfi fleiri fyrirtækjum lífsvon. Það sem best er við þetta, er að raunútgjöld ríkissjóðs vegna lífeyrisgreiðslna mundi minnkaen ekki aukast. Ég set hér inn eina mynd, en líka linkinn á myndbandið sem útskýrir hvernig ég sé þetta ferli.

image006

https://www.youtube.com/watch?v=_at04KxIocg&t=41s

Þetta er sama líkan og notað var  við að kynna fyrir nefnd Péturs Blöndals, ákveðna hugmynd að frjálsri vinnu fólks á lífeyrisaldri, með fullri greiðslu skatts af launum og lífeyri, en lífeyrir trappaðist út móti hækkandi tekjum.. Linkur á myndbandið er undir myndinni.                           

Svo þegar þú ert búinn að jafna þig á þessu, væri ég alveg til í að eiga viðtal við þig um hina ólöglegu verðtryggingu, sem ALDREI hafa verið lagaheimildir fyrir. Ég er búinn að sýna gild og mikil rök fyrir því að ég fari með rétt mál. Þar á meðal með viðamikilli greinargerð til Umboðsmanns Alþingis vegna afar undarlegrar umfjöllunar Róberts Spanó, um spurningu HH. um lagastoð fyrir lögmætri framkvæmd á innheimtu svonefndrar „verðtryggingar“. 

Það er í sjálfu sér afar einfalt að láta dómskerfið verja lagabrot Seðlabankans gagnvart meginþorra lántakenda í landinu. Dómurinn þarf að vísu að brjóta lagareglur í hverri einustu fyrirtöku máls, til að verjast fullkomlega rökstuddri kröfu, sem engin leið var að hnekkja í eðlilegu réttarferli. Ég væri alveg til í að eiga við þig gott myndbandsviðtal um þessa atriði, því ég hef ekki geta vakið athygli á þessu vegna þess að allir helstu fjölmiðlar landsins hafa verið lokaðir fyrir mér síðan ég gerði þá „dauðasynd“ að segja upp starfi í hagdeild banka og fara út úr fjármálakerfinu með þekkingu á öllum innviðum bankanna.

Kæri Bjarni.  Eins og þú getur væntanlega áttað þig á, þá er einungis upphafið að þessu bréfi spurning um þínar gjörðir. Hitt er meira tengt embætti því sem þú gegnir nú, en ekki þinni persónu. Hér á landi hefur verið afar mikill óheiðarleiki í fjármála- og stjórnkerfi landsins í langan tíma. Ég ber þó þá einlægu von í brjósti að stjórnmálmenn fari að starfa af meiri heiðarleika og dýpri virðingu fyrir alvarleika löggjafarvaldsins.

Virðingarfyllst

Guðbjörn Jónsson, eldri borgari.

 


Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.12.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 165580

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband