29.7.2012 | 20:04
Tryggingastofnun með óskiljanlega árás inn í fjármál mín.
Þar sem ég gat ekki látið bréfið opnast sem fylgiskrá set ég það hérna inn í Word formi.
Tryggingastofnun ríkisins
Laugavegi 114, 105 Reykjavík
ERINDI: Endurkrafa lífeyrisgreiðslna vegna ársins 2011.
Um langt skeið hefur Tryggingastofnun (TR) tekið sér það sjálfdæmisvald í samskiptum við mig, og trúlega marga fleiri, að senda hvorki greiðsluseðla, bréf né önnur samskiptamál bréflega til viðskiptaaðila. Af því leiðir að okkur, viðskiptaaðilum TR er aldrei kunnugt um aðgerðir í okkar mjög svo þrönga tekjuumhverfi, fyrr en mislöngu eftir að framkvæmdin er skollin á.
Einkennileg RÁÐSHYGGJA, felst í því að senda ekki erindið sjálft í tölvupósti til viðskiptamanns, heldur senda honum einungis tilkynningu um að hann eigi bréf frá TR á öðrum stað, þ. e. inni á vef stofnunarinnar sjálfrar. Ekki er sjálfgefið að viðskiptavinur hafi aðstöðu eða getu til leitar á netinu, þó hann hafi tölvupóstfang og þokkalegan aðgang að því. Það fyrirkomulag sem TR velur sér þarna upphefur ekki skyldu þeirra að koma erindum sínum með sannanlegu móti til viðtakanda, en ekki einungis upplýsingum um að erindi til hans sé hjá TR.
Í því bréfi til mín, sem TR tilkynnti mér með tölvupósti að væri á heimasíðu sinni, reyndist vera endurreikningur á greiðslum ársins 2011, með kröfu um endurgreiðslu á kr. 452.577. Sagt er að þetta sé vegna samanburðar á skattframtali mínu 2012 og greiðslum frá TR á árinu 2011. Samkvæmt skattframtali hefði ég átt að fá kr. 1.258.570, en hefði fengið greitt kr. 1.980.498. Mismunur er kr. 721.928. Að frádregnum staðgreiðsluskatti eru eftirstöðvar kr. 452.577, sem mér beri að endurgreiða.
Forsendur þessar eru sagðar þær að í skattframtali mínu komi fram tekjur frá lífeyrissjóðum að upphæð kr. 935.426. Þessara tekna sé ekki getið í tekjuáætlun minni.
Í tekjuáætlun fyrir árið 2010, er forskráð hjá TR, tekjur frá lífeyrissjóðum kr. 1.001.196. Þessa tekjuáætlun staðfesti ég vegna þess að hún var breyting frá fyrri áætlunum mínum. Í tekjuáætlun 2010 er engin forskráning vegna vaxtatekna, enda safna lífeyrisþegar yfirleitt ekki sjóðum.
Svo virðist sem TR geri að eigin frumkvæði og án tilefnis, tillögu að breyttri tekjuáætlun minni fyrir árið 2011. Ekki verður betur séð en TR taki sér þarna vald, sem þeir hafa ekki, til að fella út úr tekjuáætlun minni frá árinu 2010, tekjur frá lífeyrissjóðum sem fyrirsjáanlegt var að yrðu til frambúðar í tekjuáætlun minni meðan ég lifi. Þá breytingu sem TR gerði þarna á tekjujáætlun minni staðfesti ég aldrei, enda vissi ég ekki af henni fyrr en ég fékk bréfið dags. 20. júlí 2012, um að TR hefði gert breytingu á tekjuáætlun minni í ársbyrjun 2011.
Samtímis því að TR tók einhliða ákvörðun um að fella út úr tekjuáætlun minni greiðslur frá lífeyrissjóðum, virðast þeir einhvers staðar hafa fengið upplýsingar um að ég hefði á einu ári safnað nokkrum milljónum í sjóð; alla vega það miklu að ég mundi hafa kr. 202.704 í vaxtatekjur á árinu 2011. Engin rök eru færð fyrir þessum tekjum, enda eru þær ekki staðfestar af mér þar sem þær eru svo algert bull, líklega einungis sett fram til að lækka mánaðarlegar greiðslur til mín frá TR.
Sem tillögu að tekjuáætlun fyrir árið 2012 gerir TR í forskráningu ráð fyrir lífeyrissjóðstekjum kr. 974.124. Er þetta í nokkrum samhljómi við áætlun mína frá 2010, með tilliti til þeirra lækkana sem orðið hafa á greiðslum lífeyrissjóða. Ég tel þetta því ekki vera breytingu, heldur ágiskun þeirra á breytingar; ágiskun í fullu samræmi við tekjuáætlun mína frá 2010. En sú tekjuáætlun hefur ekkert breyst og ekkert mun breytast (engir nýir tekjustofnar) og engar slíkar breytingar í vændum.
Mér finnst það dálítið brosleg heimska að starfsfólk TR skuli ætla lífeyrisþega sem það sjálft í áraraðir hefur svipt hluta bóta sinna, með sniðgöngu við lögbundin mannréttindi og lög, að hann leggi fyrir í sjóði fjárhæðir sem gefi kr. 139.704 kr. í vaxtatekjur.
En mér er spurn. Hvaðan hefur TR heimildir til að breyta að eigin frumkvæði tekjuáætlun lífeyrisþega, án gildra röksemda? Lítum aðeins á.
í Almannatryggingalögum nr. 100/2007, er fjallað um samskipti TR við lífeyrisþega. Þar segir í 16. gr. að: "Tryggingastofnun ríkisins skal upplýsa umsækjanda eða bótaþega um forsendur bótaútreiknings og gefa honum kost á að koma að athugasemdum."
Í því tilfelli sem hér er til umfjöllunar, uppfyllir TR ekki framangreinda lagaskyldu. Þeir upplýsa ekki á grundvelli hvaða lagaheimilda þeir breyta einhliða tekjuáætlun þeirri sem ég hafði ekki séð neina ástæðu til að breyta. Þetta fellur einkar illa að ákvæðum 52. gr. þar sem segir eftirfarandi:
"Starfsfólk Tryggingastofnunar og umboðsmenn hennar skulu kynna sér til hlítar aðstæður umsækjenda og bótaþega og gera þeim grein fyrir ýtrasta rétti þeirra samkvæmt lögum þessum, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar."
Ekki verður betur séð en í því dæmi sem hér er til umfjöllunar, hefði uppfylling starfsfólks TR á þessu lagaákvæði fyrirbyggt þá vitleysu sem því tóks þarna að koma í framkvæmd, með því takmarkalausa virðingarleysi fyrir lífeyrisþeganum sem þessi heimskulega aðgerð ber glöggt vitni um.
Í 2. mgr. 52. gr. laga nr. 100/2007, segir eftirfarandi:
"Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu skriflegu samþykki umsækjanda, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og bótaþega hjá skattyfirvöldum, greiðslur til umsækjanda og bótaþega hjá lífeyrissjóðum, hjá Atvinnuleysistryggingasjóði, Vinnumálastofnun og hjá sambærilegum stofnunum erlendis þegar það á við með rafrænum hætti eða á annan hátt."
Enginn fær útreikning lífeyrisréttinda hjá TR án þess að gefa þá heimild sem þarna er um rætt. Í því felst einmitt skýringin á því að TR átti að vita strax í febrúar 2011 að ég var að fá greiðslur frá lífeyrissjóðum áfram, eins og tekjuáætlun mín og forskráning TR vegna tekjuáætlunar 2010 gaf til kynna. Ég óskaði ekki þeirrar breytingar á tekjuáætlun minni sem starfsmenn TR gerðu að eigin frumkvæði og á eigin ábyrgð, án þess að sinna skyldum sínum um samlestur gagna, frá ofangreindum aðilum, eða kynna sér aðstæður mínar og gera mér grein fyrir áformum sínum um að breyta þeirri tekjuáætlun sem var í gildi.
Það er sama hve oft ég les yfir lögin nr. 100/2007, ég get HVERGI fundið heimild fyrir TR til sjálfstæðra breytinga, að eigin frumkvæði, á þeim tekjuáætlunum sem í gangi hafa verið. Í 2. mgr. 52. gr. laga nr. 100/2007, eru afar skýr ákvæði um skyldur lífeyrisþega til að veita TR heimild til að afla upplýsinga frá öllum helstu aðilum um tekju- eða launagreiðslur. Undir lok málsgreinarinnar segir svo eftirfarandi:
"Umsækjanda og bótaþega er skylt að tilkynna Tryggingastofnun [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni] um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á greiðslur."
Í lögum nr. 100/2007 er TR fengin heimild til að fylgjast með tekjum lífeyrisþega með samkeyrslu við skrár frá skattayfirvöldum. Skylt er að skila skattayfirvöldum mánaðarlega upplýsingum um tekjur. Í því tilfelli sem hér um ræðir voru það tekjur frá lífeyrissjóðum sem TR tók sér vald til að þurrka út úr tekjuáætlun. En lífeyrissjóðir skila reglulega upplýsingum í greiðsluskrá skattayfirvalda, þannig að þar lág strax í upphafi árs fyrir að greiðslur héldu áfram frá lífeyrissjóðum. Ekki verður því betur séð en TR hafi, auk þess að fara í óleyfi og án allra rökheldra ástæðna í breytingar á tekjuáætlun minni, sniðgengið ákvæði 16. gr. laga nr. 100/2007, þar sem segir:
"Tryggingastofnun ríkisins skal hafa eftirlit með því að áætlaðar tekjur séu í samræmi við upplýsingar sem stofnunin aflar úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda eða frá öðrum þeim aðilum sem getið er um í 52. gr."
Augljóslega var þessari skyldu ekki sinnt og þar með brotið annað ákvæði 16. gr. um að:
"Tryggingastofnun ríkisins skal upplýsa umsækjanda eða bótaþega um forsendur bótaútreiknings og gefa honum kost á að koma að athugasemdum."
Útreikningur lífeyris hjá TR, fer fram í hverjum mánuði. Í útreikningi lífeyris míns fyrir desember 2010 er reiknað með greiðslu frá lífeyrissjóði eins og verið hafði allt árið. Frá TR var greitt: Ellilífeyrir kr. 29.294, Tekjutrygging kr. 59.396. Þessi greiðsla er of lág til þess að hún uppfylli skyldur stjórnvalda um greiðslu mannsæmandi lífeyris. Árin á undan hafði ég verið í miklum bréfaskiptum við TR og Úrskurðarnefnd vegna þessara atriða, en hvorugur aðilinn hafði fyrir því, ekki með einu orði, að svara rökum mínum.
Samandregið eru athugasemdir þessar:
Í ársbyrjun 2011 breytir TR forsendum útreiknings lífeyris míns, án þess að upplýsa mig um breytingar á forsendum útreikningsins. Þar sem TR sendir ekki út greiðsluseðla, vissi ég ekki af þessari breytingu fyrr en ég fékk uppgjörið fyrir fáeinum dögum.
Fyrir janúar 2011 greiðir TR Ellilífeyri kr. 29.294, Tekjutryggingu kr. 92.339, Sérstök uppbót vegna framfærslu kr. 26.951. Þessum greiðslum heldur TR áfram allt árið, án þess að uppfylla skyldur 16. gr. um að upplýsa bótaþega um forsendur bótaútreiknings og gefa honum kost á að koma að athugasemdum.
Þrátt fyrir þessar breytingar, strax í janúar 2011, hvarflar ekki að TR að uppfylla skyldur 16. gr. laga nr. 100/2007 um að upplýsa bótaþega um forsendur bótaútreiknings og gefa honum kost á að koma að athugasemdum.
Því verður vart neitað, þegar litið er til þess sem greint er frá hér að framan, að TR umgengst forsendur lífeyrisgreiðslna af mjög sérstakri léttúð, óvandvirkni og afar miklum skorti á að virða lagaforsendur og persónu lífeyrisþegans.
Eins og skýrt kemur fram hér að framan, ber TR lagaleg skylda til að kynna lífeyrisþega hverja fyrirhugaða breytingu á útreikningum lífeyrisgreiðslna hans, og gefa honum tækifæri til að koma að athugasemdum. Þessari skyldu sinni hefur TR ALLA TÍÐ BRUGÐIST í samskiptum sínum við undirritaðann, en það hefur samanlagt leitt til skerðingar á lífeyrisgreiðslum til mín sem reiknast trúlega á aðra milljón, fyrir utan það sem hér um ræðir.
Ég geri þá kröfu að TR geri á fullnægjandi hátt grein fyrir því hvaða forsendur voru fyrir þeirri breytingu sem þeir gerðu á tekjuáætlun minni í ársbyrjun 2011. Hvaða upplýsingar þeir höfðu um frávik frá því tekjuumhverfi sem var á árinu 2010 og var í síðustu greiðslu þess árs í desember 2010.
Ég tek það fram að ég tel hin hefðbundnu svör TR, sem ég hef fengið í gegnum tíðina, ekki vera boðleg og geri því kröfu um svör sem studd eru lagaheimildum um inngrip í lífeyrisgreiðslur mínar, og skýrum rökum þar um.
Verði ekki ásættanleg niðurstaða í þessu máli, mun ég EKKI eyða tíma mínum í að skrifa hinni tilgangslausu Úrskurðarnefnd, þar sem hún hefur þegar sýnt mér að hún virðir rök og lagareglur að engu, til að þóknast TR.
Með hliðsjón af því að þetta vinnulag TR hefur líklega áhrif á fleiri lífeyrisþega en mig einan, mun ég íhuga að leita álits dómstóla á þessum vinnubrögðum, verði skýringar TR ekki ásættanlegar.
Ég krefst einnig verulegra bóta vegna ólögmæts inngrips í fjármál mín, auk þess sem ég skora á TR að farið verði heilstætt yfir greiðslur til mín frá upphafi örorkugreiðslna til dagsins í dag. Ítrekað hef ég verið beittur ólögmætum aðgerðum, sem felldar hafa verið úr gildi eftir að ég kvartaði, en án þess að greiða mér bætur. Nú finnst mér komið að heildaruppgjöri og afar breyttum vinnubrögðum hjá TR í samskiptum við lífeyrisþega.
Virðingarfyllst
Reykjavík 28. júlí 2012
Guðbjörn Jónsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.7.2012 kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.6.2012 | 22:27
Skorað á lagastofnun HÍ í rökræður um fiskveiðistjórnun
17.6.2012 | 16:41
Að höggva í þá er hlífa ætti.
Eitt af því ósvífnasta sem ég hef upplifað í okkar spillta samfélagi er ólögmæt og algjörlega óréttlætanleg gjaldtaka af sjúklingum sem leita þurfa læknis. Nánar er fjallað um þetta í meðfylgjandi viðhengi.
7.5.2012 | 13:27
Hvað er athugavert við kvótafrumvarpið??
Margt hefur verið ritað og rætt um frumvarp sjávarútvegsráðherra til fiskveiðistjórnunar. En það sem hefur vakið undrun mína er hve samtaka fólk er um að ræða ekki mikilvægustu vankantana, sem eru þversagnirnar og ólögmætu áformin sem í frumvarpinu eru.
Í 1. gr. frumvarpsins er markmiðum laganna lýst. Í markmiðssetningu má gleggst merkja hve gott vald textasmiðirnir hafa á verkefni sínu. Skír markmið, þannig upp raðað að mikilvægasta markmiðið sé fyrst og síðan trappað niður eftir mikilvægi, lýsa góðri heildaryfirsýn textasmiða yfir verkefni sitt.
Í 1. gr. frumvarps á þingskjali 1052, eru markmiðin eftirfarandi í bókstafsröð:
a. að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu fiskistofna við Ísland,
Eins og vænta mátti er grunnþema fyrri laga yfirfært í þetta frumvarp og er það vel. En næst kemur þetta:
b. að stuðla að farsælli samfélagsþróun með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi,
Fólk ætti að sjá að þessi liður er víðs fjarri markmiðum um sjálfbæra og hagfelda nýtingu nytjastofna sjávar. Þó binda megi miklar vonir við að fiskveiðar verði um langa framtíð mikilvægur undirstöðuþáttur í efnahag þjóðarinnar, er ljóst að farsæld samfélags okkar veltur á mannkærleika, samstöðu og heiðarleika en ekki fengsæld fiskimiðanna. Ég vona svo sannarlega að farsæld framtíðar hvíli á mörgum gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum, sem hver um sig verði rekin af hagkvæmni og arðsemi samfélaginu til handa. Þetta gæti verið lokamarkmið en ekki það næst mikilvægasta. Þriðji liðurinn í markmiðunum er eftirfarandi:
c. að treysta atvinnu og byggð í landinu,
Næst á eftir verndun sjálfbærrar nýtingar fiskistofna er þetta eitt af mikilvægu markmiðum stjórnunar fiskveiða. Fiskvinnsla er yfirleitt mikilvægasta atvinnugrein sjávarbyggða í kringum landið og því grunnur lífskjara í þeim byggðum. Næsti liður er eftirfarandi:
d. að hámarka þjóðhagslegan ávinning af sjávarauðlindinni og tryggja þjóðinni eðlilega auðlindarentu,
Það verður að teljast eðlilegt að í markmiðum komi þjóðhagslegur ávinningur af nýtingu auðlindarinnar. Á undanförnum áratugum hefur vaxandi skuldasöfnun útgerðarfyrirtækja sogað til fjármagnseigenda mikinn hluta þess drifkrafts sem vinnsla sjávarafurða skilaði sjávarbyggðum landsins. Af því sem fram kemur í frumvarpinu sýnist mér að hugtakinu að: tryggja þjóðinni eðlilega auðlindarentu, sé ekki fylgt eftir. Þess í stað virðist leitast við að tryggja útgerðum svokallaða auðlindarentu. Fiskveiðiauðlind okkar er ekki eign útgerða við Ísland. Þess vegna eiga útgerðir ENGAN RÉTT á auðlindarentu af fiskveiðiauðlindinni. Þann rétt á íslenska þjóðin ein.
Miðað við núgildandi lög um Tekjuskatt nr. 90/2003, verður ALDREI hægt að reikna útgerðum eðlilega auðlindarentu, af nýtingu auðlindar sem er í eigu þjóðarinnar. Þeir eiga ekki lögvarin rétt á arði úr þeirri auðlind, umfram aðra þegna þjóðarinnar. Sá réttur er eingöngu hjá þjóðinni sjálfri þ. e. Alþingi og ríkisstjórn.
Vegna ákvæða 65. gr. stjórnarskrár verður gjald fyrir afnot fiskveiðiauðlindarinnar að vera nákvæmlega það sama fyrir alla, hvort sem útgerðin er lítil eða stór. Það þýðir að mínu viti að einfaldast er að greitt verði ákveðið gjald t. d. fyrir hvert þorskígildi. Þá eru stjórnvöld ekkert að gera upp á milli útgerða þar sem allir greiða að magni til sama gjald. Útgerðaháttum ráða menn svo sjálfir, án þátttöku eða meðábyrgðar stjórnvalda.
Síðasti flokkunarliður markmiðar er eftirfarandi:
e. að sjávarútvegurinn sé arðsamur og búi við hagstætt og stöðugt rekstrarumhverfi.
Þetta er mjög opið markmið og m. a. ekki getið um það hverjum sjávarútvegurinn eigi að skila arði. Einnig er svo margt í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja sem stjórnvöld hafa ekkert með að gera, að mjög óraunhæft er að leggja þá lagalegu kröfu á stjórnvöld að þau tryggi þessari atvinnugrein stöðugara rekstrarumhverfi en öðrum framleiðslugreinum.
Lokamálsgrein 1. greinar er eftirfarandi:
Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameiginleg og ævarandi eign íslensku þjóðarinnar. Íslenska ríkið veitir tilskilin leyfi, fer með og ráðstafar hvers kyns heimildum til nýtingar. Slík veiting eða ráðstöfun myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir þeim.
Þarna er greinilega verið að setja inn orðaforða sem gefur tækifæri til hártogunar um meiningu laganna. Þarna segir t. d. að Íslenska ríkið veitir tilskilin leyfi. Ekkert sagt um HVER, innan íslenska ríkisins, hefur valdið til að veita leyfin. Til að forðast undanbrögð af ásetningi eða gáleysi, hefði verið þörf á meiri nákvæmni í orðavali.
Hér hafa verið skírðir allir þeir þættir sem settir eru fram sem markmið þeirra laga sem frumvarpið yrði að, ef það yrði samþykkt í þinginu. Með vísan til þess sem á eftir kemur, skal hér vakin athygli á að ekki er meðal markmiða laganna að heimilt verði að framselja aflaheimildir.
Ekki er heldur markmið að setja lög um hugtakið "aflahlutdeild", þó reglur um úthlutun o. m. fl. sé byggt á þessu hugtaki. Ekki er heldur sett inn markmið að afla lagaheimilda fyrir því að aflaheimild eða aflahlutdeild verði selt á markaði, en samkvæmt frumvarpinu er það áformað án lagastoðar. Einnig er áformað samkvæmt frumvarpinu að stofna sölumarkað aflaheimilda undir nafninu Kvótaþing, þó ekki sé aflað lagaheimilda til að stofna slíka starfsemi.
Hér hafa verið taldir upp nokkrir þættir úr texta frumvarpsins sem ætlunin er að framkvæma þó ekki séu fyrir því lagaheimildir og ekki óskað lagaheimilda til slíkrar starfsemi. En fleira er í frumvarpinu.
Aðal stjórntækið skortir lagastoð
Samkvæmt frumvarpi 1052 á að úthluta aflaheimildum eftir hugtakinu AFLAHLUTDEILD. Það merkilega við þetta er, að þrátt fyrir að þetta hugtak hafi verið notað til úthlutunar aflaréttinda í rúmlega tvo áratugi, er ekki enn farið að setja þetta hugtak í lög svo lögmætt sé að nota það við skiptingu takmarkaðra gæða.
En hvaða sannanir eru fyrir því að hugtakið "aflahlutdeild" sé ekki komið í lög. Þær sannanir eru lagðar fram í 9. gr. frumvarpsins um fiskveiðistjórnun. Þar segir eftirfarandi í sambandi við nýjar tegundir sem bætast við í kvótasetningu:
Þegar veiðireynsla hefur myndast í stöðugu umhverfi og að öðrum efnislegum forsendum uppfylltum flytur ráðherra frumvarp til laga um úthlutun aflahlutdeilda í viðkomandi nytjastofni. Tekið skal mið af veiðireynslu, bæði fyrir og eftir gildistöku laga þessara, réttmætum hagsmunum þeirra sem hófu veiðar, verðmætamyndun og heildarmarkmiðum laganna.
Þarna eru margir góðir punktar. Um nýjar tegundir í kvóta, flytur ráðherra frumvarp til laga um úthlutun aflahlutdeilda. Það var og. Ef til hefðu verið lög um aflahlutdeild, hefði ráðherra ekki þurft að flytja frumvarp til LAGA. Hann hefði einungis flutt frumvarp til BREYTINGA á lögum um aflahlutdeild. EN, fyrst setja þarf lög um aflahlutdeild nýrra kvótategunda. Hvers vegna þarf þá ekki líka að setja lög um aflahlutdeild þeirra tegunda sem nú þegar hafa verið kvótasettar?
Það er dálítið sérstakt þegar menn telja sig þurfa að setja lagaheimild fyrir aflahlutdeild nýrra tegunda í kvóta, en ætla að halda áfram að úthluta aflahlutdeildum í öllum núverandi kvótategundum án lagaheimilda. Eitthvað vantar þarna í skilning á 65. gr stjórnarskrár um jafnræði fyrir lögum.
Þar sem engin áform eru um lagasetningar vegna aflahlutdeilda núverandi kvótategunda, verður ekki hjá því komist að benda á að engar reglur eru í þessu frumvarpi sem skíra hvernig aflahlutdeild skips verður til. Í frumvarpstextanum er sagt í sambandi við nýjar tegundir í kvóta að: Tekið skal mið af veiðireynslu, bæði fyrir og eftir gildistöku laga þessara, réttmætum hagsmunum þeirra sem hófu veiðar, verðmætamyndun og heildarmarkmiðum laganna.
Engar reglur eru í frumvarpinu um aflahlutdeild þeirra skipa sem hafa verið við veiðar undanfarin ár. Ekki hvort hlutdeildin reiknast út frá einu ári eða fleiri, eða hvaða áhrif það hefur á hlutdeild ef skip er mikið frá vegna t. d. bilana.
Þverstæður og ólögmæt áform
Nóg er af vanhugsuðum þverstæðum í þessu frumvarpi. Í 11. gr. sem ber heitið, Leyfi til að nýta aflahlutdeild, segir svo:
Til og með 1. ágúst 2012 býðst eigendum þeirra skipa sem þá ráða yfir aflahlutdeild að staðfesta hjá Fiskistofu, með undirritun eða öðrum fullgildum hætti, að gangast undir leyfi til að nýta aflahlutdeild til 20 ára frá upphafi fiskveiðiársins 2012/2013 að telja.
Þarna er skírt tekið fram að fyrir 1. ágúst þarf útgerð að skrifa formlega undir rétthafasamning um nýtingu, að öðrum kosti missir útgerðin nýtingarrétt sinn. Þess vegna er furðulegt að lesa í næstu málsgrein á eftir framansögðu að:
Fiskistofa gefur út nýtingarleyfi. Leyfi til að nýta aflahlutdeild felur í sér ígildi samkomulags milli ríkisins og handhafa leyfis um handhöfn þeirra hlutdeilda sem leyfinu fylgja til afmarkaðs tíma.
Í fyrri málsgreininni eru sett fram ströng fyrirmæli um að með undirritun eða öðrum fullgildum hætti staðfesta samning um nýtingarrétt. Í næstu málsgrein er þetta ekki formlegur samningur heldur ígildi samkomulags. Það hlýtur að verða að gera meiri kröfur til höfundar lagatexta en það að hann geti ekki haldið sömu meiningu um sama efni í tveimur samliggjandi málsgreinum sömu lagagreinar. En það er meira skrítið í 11. grein frumvarpsins. Í 3. málsgrein segir svo:
Tilkynni ráðherra ekki að annað sé fyrirhugað framlengist nýtingarleyfi um eitt ár í senn, og ár frá ári, þannig að 15 ár verði jafnan eftir af gildistíma þess.
Þegar þess er einnig gætt að í sömu málsgrein frumvarpsins segir að: Tilkynningu um fyrirhugaðar grundvallarbreytingar eða brottfall nýtingarleyfis er fyrst heimilt að gefa út þegar fimm ár eru liðin af tímalengd leyfis skv. 1. mgr. Þarna er fyrirhugað afar sérstakt fyrirkomulag. Yrði þetta að lögum, væri það fyrst á öðru kjörtímabili frá þessari lagasetningu sem gera mætti breytingar á kerfinu. En segjum nú svo að eftir 5 ár tilkynni ráðherra breytingar. Hvað gerist þá? Er þá 15 ára samningurinn fallinn? Í texta frumvarpsins segir einungis að: Tilkynni ráðherra ekki að annað sé fyrirhugað framlengist nýtingarleyfi um eitt ár í senn, og ár frá ári, þannig að 15 ár verði jafnan eftir af gildistíma þess. Þetta á sem sagt við ef ráðherra tilkynnir ekki um breytingu. Ekkert er sagt um hvort fyrirhuguð breyting geti tekið gildi strax á næsta ári. Þessi lagagrein er því langt frá því að vera fullkláruð.
Sölustarfsemi án lagaheimilda
Athyglisvert er að þrátt fyrir að í Markmiðum laganna hafi ekki verið gert ráð fyrir framsali aflahlutdeilda, er það einmitt heitið á 12. gr. frumvarpsins. Þar segir svo:
Fiskistofa skal leyfa flutning aflahlutdeilda milli fiskiskipa, ef eftirtalin skilyrði eru uppfyllt:
1. Flutningur aflahlutdeildar leiðir ekki til þess að aflaheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.
2. Fullnægjandi upplýsingar um kaupverð aflahlutdeildar fylgja.
Þetta er athyglivert. Þarna er allt í einu talað um kaupverð aflahlutdeildar? Hér að framan er sagt að Fiskistofa gefur út nýtingarleyfi. Og í 4. gr. frumvarpsins er talað um orðskýringar. Þar segir svo í 12. tölulið:
12. Nýtingarleyfi: Tímabundið leyfi sem felur í sér handhöfn aflahlutdeildar.
Ekki er ljóst hvort hugtakið "handhöfn" er valið til að villa um fyrir almennum lesanda, eða hvort það er valið af vanþekkingu. Eitt er víst að þetta er afar lítið notað hugtak. Ef leitað er upplýsinga um orðtakasambönd hjá Stofnun Árna Magnússonar, koma upp eftirfarandi upplýsingar um hugtakið "handhöfn".
1 | handhöfn eignar |
2 | handhöfn konungsvalds |
3 | handhöfn ríkisvaldsins |
4 | handhöfn tékka |
Eins og þarna kemur fram, getur hugtakið "handhöfn" í frumvarpinu hvorki átt við 1. eða 4. tölulið því skírt kemur fram að nýtingarétturinn er ekki eign og hann er einungis tímabundið nýtingarleyfi. Þá eru einungis eftir möguleikar í 2. og 3. Flestir gera sér líklega grein fyrir að hvorki er hægt, með lögmætum hætti, að framselja eða selja konungsvald eða ríkisvald.
Hafi hugtakið "handhöfn" verið valið með þekkingu á þeirri merkingu að framsal eða sala væru ekki möguleg, vekur undrun að 12. gr. frumvarpsins skuli bera heitið Framsal aflahlutdeilda. Ekki síður er það undrunarefni að í 2. tölulið skilyrða fyrir flutning aflahlutdeildar milli skipa skuli vera krafa um að Fullnægjandi upplýsingar um kaupverð aflahlutdeildar fylgi, því heimilda til sölu er hvergi leitað og sala ekki meðal markmiða laganna.
Ríkið kaupi á markaði aflahlutdeild sem það lét ókeypis í té
Að lokum ætla ég að víkja aðeins að ákvæðum í 13. greina um Forgangsréttur að aflahlutdeildum. Í fyrstu málsgrein þeirrar greinar segir svo:
Fiskistofa skal tilkynna ráðherra ef ætla má að samanlögð framsöl eða önnur ráðstöfun aflahlutdeilda, þ. m. t. flutningur skipa, fari yfir 20% aflaheimilda í þorskígildum talið frá viðkomandi byggðarlagi eða sveitarfélagi samkvæmt skráðri úthlutun hlutdeilda fyrir fiskveiðiárið 2012/2013.
Enn er þarna talað um framsal, þó engar heimildir séu fyrir slíku. EN 2. málsgrein er dálítið sláandi. Þar segir svo:
Ráðherra er heimilt, innan fjögurra vikna frá tilkynningu, að neyta forgangsréttar að aflahlutdeildunum ef ætla má að ráðstöfun þeirra hafi umtalsverð neikvæð áhrif í atvinnu- eða byggðalegu tilliti sökum hlutfallslegs mikilvægis sjávarútvegs í viðkomandi sveitarfélagi eða byggðarlagi.
Endurgjald íslenska ríkisins fyrir aflahlutdeildirnar skal miðast við umsamið söluverð þeirra. Ágreiningi um skilmála og samningsverð er unnt að vísa til gerðardóms sem skipaður skal samkvæmt lögum nr. 53/1989, um samningsbundna gerðardóma.
Þetta sýnir alveg ótrúlegan skort á skynsemi. Að láta sér detta í hug að íslenska ríkið kaupi aflahlutdeild á markaðsverði, þegar það lætur nýtingarréttinn af hendi án sérstaks gjalds annars en auðlindagjalds. Alþingi hefur ekki enn sett lög sem heimila sölu aflahlutdeilda og í loka málsgrein 1. greinar segir svo:
Íslenska ríkið veitir tilskilin leyfi, fer með og ráðstafar hvers kyns heimildum til nýtingar. Slík veiting eða ráðstöfun myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir þeim.
Af þessu leiðir að það er íslenska ríkið sem eitt hefur heimild til að færa aflaheimildir eða aflahlutdeildir milli skipa. Miðað við það er svolítið sérstakt að íslenska ríkinu sé ætlað að standa í einhverju afarkostum varðandi kaupverð, þegar sala er ekki heimilt.
Ég hætti hér áður en þetta gengur alveg fram af mér.
1.5.2012 | 17:45
ER Fjórfrelsi ESB óraunhæft og hættulegt ??
Frjálst flæði fjármagns, vinnuafls, vöru og þjónustu yfir landamæri innan ESB þjóða að viðbættum EES þjóðum, var innleitt á síðari helming tíunda áratugs síðustu aldar. Í fyrstu laut þetta frelsi aðallega að ríkjum mið og suður Evrópu. Lítið reyndi því á þessi ákvæði fram til aldamóta umfram venjulega árekstra um hið frjálsa flæði vöru, með verkföllum bænda og vörubílstjóra o.fl. víða í Evrópu. Einnig voru truflanir á frjálsu flæði vinnuafls þar sem á aðflutt fólk var víða litið sem vandamál.
Afleiðingar af frelsi fjármagnsins fóru fljótlega að birtast eftir aldamótin. Fjármagn var flutt í umtalsverðu magni milli landa, án eftirlits Seðlabanka. Lánastofnanir og stórfyrirtæki gátu nú, án samráðs við Seðlabanka, tekið erlend lán að eigin geðþótta og einnig gátu peningamenn flutt fjármagn sitt til annarra landa, þangað sem ávöxtun var talin betri.
Áhrifin af þessum frjálsu fjárflutningum urðu þau að gjaldeyrisforði ýmissa landa þurrkaðist upp og Seðlabankar urðu að taka erlend lán til að fullnægja skyldum um gjaldeyrisforða. Lausafé þjóða, t. d. eins og okkar, var farið úr landi og farið að vinna fyrir eigendur sína í öðrum löndum, eða komið til geymsluvörslu á öruggum stöðum, eins og skattaskjólum, sem víða eru þekkt.
Á þessu tímaskeiði eru tveir stærstu ríkisbankar landsins okkar seldir einkaaðilum. Þeir sem keyptu, höfðu enga þekkingu eða reynslu af því að reka mikilvægar fjármálastofnanir í sjálfstæðu þjóðfélagi. Þeir voru bara að kaupa vinnutæki handa sjáfum sér, með meinta auðssöfnun í huga.
Á þessum sama tíma og einkavæðing bankanna fór fram, urðu líka umskipti í stjórnunarstöðum þessara banka. Gömlu reyndu bankastjórarnir hurfu frá störfum en í stað þeirra komu óreyndir reiknilíkana drengir, sem þekktu engin lögmál um jafnvægi peningamyndunar og verðmætasköpunar. Þeir lánuðu því iðulega miklar fjárhæðir af lausafjármagni landsins, til flutnings úr landi til stofnunar og reksturs fyrirtækja þar. Nýmyndur fjármagns í landinu stóð ekki undir þessari blóðtöku svo úr varð vaxandi þennsla og verðbólga.
Til að reyna að vinna gegn peningaskorti fóru bankarnir að taka erlend lán. Í fyrstu út á sína eigin eignastöðu. Fljótlega fóru menn svo að útbúa blekkingarpappíra varðandi meintar eignaheimildir á aflaheimildum. Slíkir pappírar voru settir sem skuldatrygging til erlendra lánveitenda. Þegar slíkt dugði ekki lengur, var farið að setja skuldabréf, hlutabréf í ýmsum hlutafélögum og eignarhaldsfélögum í tryggingavöndla, sem tryggingu fyrir lánum. Þar sem þetta voru ekki taldir jafn traust veð og eigiðfé bankanna eða aflaheimildir á Íslandsmiðum, voru lagðar fram fyrirspurnir til stjórnenda bankanna, hvort ríkissjóður mundi koma bönkunum til hjálpar ef þeir lentu í vandræðum.
Á þessum tíma hafði verið flutt til landsins gífurlegt fjármagn. Þetta fjármagn var lánað út án alls skipulags eða fyrirhyggju. Erlendu lánin sem bankarnir tóku, voru skammtímalán til 3ja, 5, eða 7 ára. Bankarnir lánuðu þetta fjármagn að mestu til mikilla húsbygginga, sem lítil sem engin þörf var fyrir. Áður en allar þessar lántökur komu til sögunnar, hafði verið full vinna fyrir alla vinnufæra menn. Til að annast allar þessar byggingaframkvæmdir varð því að flytja inn erlent vinnuafl, til að byggja mikinn fjölda stórhýsa sem fjármögnuð voru með þessu erlenda skammtímalánsfé.
Á tímabili voru mörg þúsund erlendra starfsmanna við byggingavinnu hér, auk fjölda sem sinntu öðrum störfum. Erlenda lánsféð fór því lítið út í hagkerfi því þetta erlenda vinnuafl fór með verulegan hluta af þessu lánsfé okkar úr landi, en annar stór hluti þessara erlendu skammtímalána var fastur í steypu fjölmargra óseljanlegra húsa. Það varð því einungis lítill hluti af þessu lánsfé sem fór til varanlegrar uppsveiflu í hagkerfi þjóðfélagsins okkar.
Á þessum tíma var einnig ráðist í eina stærstu og dýrustu virkjanaframkvæmd landsins, einnig fyrir erlent lánsfé. Ekkert innlent vinnuafl var laust til þessara starfa, svo enn þurfti að flytja inn þúsundir starfsmanna til að byggja stíflur og stöðvarhús. Það fjármagn sem þarna var tekið að láni var með ríkisábyrgð en afar lítið af þessu erlenda lánsfé kom til varanlegrar veltu í þjóðfélagi okkar. Megnið af fjármagninu fór til varanlegrar veltu í öðrum löndum m. a. mikið til Kína.
Þegar komið var fram yfir miðjan fyrsta áratug 21. aldar, var búið að flytja frá Íslandi megnið af eigin fjármagni þjóðarinnar. Erlendar lántökur voru þá komnar nálægt 7.000 milljörðum. Farið var að heyrast aðvörunarraddir aðgætinna bankamanna í öðrum löndum, sem að sjálfsögðu sáu þann óvitaskap sem bankamenn hér á landi stunduðu. Þessum aðvörunum svöruðu óvitarnir hér með umtasverðum hroka.
Komu þá til sögunnar í það minnsta tveir vogunarsjóðir, hugsanlega fleiri, sem ætluðu sér að ná taki á auðlindum landsins, bæði í orkugeiranum og fiskistofnum. Þrátt fyrir að allar varúðarbjöllur væru farnar að hringja hjá alvöru bankamönnum, lögðu þessir aðilar fram u. þ. b. 7.000 milljarða á 18 mánaða tímabili, til lánveitinga til íslensku bankanna. Allar venjulegar varúðarreglur lánastarfsemi voru þarna sniðgengnar í þeirri trú að allar lánveitingar til íslensku bankanna væru með ríkisábyrgð.
Enginn vafi er á því að lánveitendunum var ljóst að bankarnir sem tóku lánin myndu aldrei geta endurgreitt lánin á tilsettum tíma. Enginn vafi er heldur á að þeim var ljóst hver gjaldeyrisafgangur þjóðarinnar var að jafnaði. Þeir vissu því að greiðslugetan var engin.
Vogunarsjóðirnir vissu einnig að engin venjuleg lánastofnun myndi lána íslensku bönkunum til endurfjármögnunar þessara síðustu 7.000 milljarðanna. Plan vogunarsjóðanna var því greinilega þannig að þegar skammtímalánin þeirra myndu falla í gjalddaga, líklega á árunum 2010, 2011, og 2012, mundi þjóðin komast í greiðsluþrot og verða að afhenda vogunarsjóðunum auðlindir þjóðarinnar sem greiðslu. Þjóðin yrði því um alla framtíð einungis lágt launað vinnuafl þessara erlendu auðhringa, sem þá ættu auðlindirnar og seldu þjóðinni aðgang að þeim.
Sem betur fer endaði þetta ekki svona. Þegar hrunið varð, kom strax í ljós að engin ríkisábyrgð var á hinum erlendu lántökum bankanna. Við þessu urðu vogunarsjóðirnir afskaplega reiðir og kröfðust þess að Íslandi yrði þegar í stað skellt flötu með hefndaraðgerðum á grundvelli innistæðutrygginga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi.
Flest bendir til að stjórnvöldum bæði í Bretlandi og Hollandi hafi í gegnum Fjármálaeftirlit landa sinna, strax verið nokkuð vel ljóst að nægar tryggingar fyrir innistæðum, væru fyrir hendi í traustum útlánum Landsbankans í þessum löndum, til greiðslu innistæðna. Hins vegar voru þessi stjórnvöld, líkt og flest önnur stjórnvöld í Evrópu, háð því að fara að vilja hinna stóru fjármagnseigenda sem nú horfðu fram á að tapa öllum 7.000 milljörðunum án þess að fá auðlindirnar sem þeir ætluðu að ná. Gerðu þeir sér því von um að hægt yrði að skella greiðslufalli á íslensku þjóðina með gjaldföllnum ábyrgðum vegna ógreiddra innistæðutrygginga og með þeim hætti næðu þeir tökum á auðlindum þjóðarinnar.
Staðan var máluð mjög dökkum litum þegar rætt var við forystufólk stjórnarflokka og yfirmenn fjármálakerfis. Allir fóru í panik og enginn íslenskra stjórnenda þorði að tjalda fram vörnum fyrir þjóðina. Til að fyrirbyggja að alvöru vörnum eða athugasemdum yrði beitt í samningaviðræðum um IceSvae kröfuna, var lagt bann við því að sterkir fjármálamenn yrðu hafðir í samninganefndinni. Samningurinn skyldi vera svo óhagstæður Íslandi að landið yrði óhjákvæmilega greiðsluþrota á samningstímanum og við fyrstu vanskil greiðslu mætti taka löghald í auðlindum þjóðarinnar og öðrum eignum.
Sem betur fer fyrir íslensku þjóðina, misreiknuðu þessir auðjöfrar sig að einu leiti. Þeir reiknuðu ekki með að þjóðin ætti sér nein varnartæki við þeirri snöggu sókn sem fyrirhuguð var vegna gjaldfallinna greiðslna IceSave samningsins og lokuðum öllum lánsfjárleiðum, öðrum en til þeirra sjálfra í gegnum Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Þar yrðu heldur ekki opnaðar neinar undankomuleiðir.
Það sem þessir aðilar áttuðu sig ekki á, var ákvæði 26. gr. stjórnarskrár. Þeir vissu ekki að Forsetinn mundi standa með þjóðinni og verjast nauðvörn þegar hræðsluskjóðurnar á Alþingi og í ríkisstjórn voru búin að samþykkja hina óhæfu samninga.
Þar sem Forsetinn tók sér stöðu með þjóðinni, áttu vogunasjóðirmir enga aðra leið en taka eignarhald í bönkunum, til að eiga einhverja von um að endurheimta eitthvað af því fé sem átt hafði að færa þeim auðlindir Íslands.
Eins og hér hefur verið rakið, voru engir annmarkar á að flytja fjármagn íslensku þjóðarinnar úr land, eftir að búið var að samþykkja EES samninginn og löggilda hér á landi fjórfrelsi ESB. Þá var ekki hægt að leggja neinar hömlur á flutning fjármagns úr landi. Ekki var heldur hægt að stöðva óvitana í bankakerfinu við að flytja inn allt það fjármagn sem þeir gerðu.
Ef frelsi EES/ESB hefði ekki verið til staðar, hefði trúlega ekki verið fært að flytja nánast allt fjármagn þjóðarinnar úr landi. Og ekki hefði heldur verið hægt að taka eins mikið af erlendum lánum og raunin varð. Niðurstaða mín er því sú, að stærsta ógæfa okkar, líkt og allrar Evrópu, sé hið frjálsa flæði fjármagns samkvæmt fjórfrelsi ESB. Næst stærsta ógæfa okkar var að selja óvitum (mönnum með enga þekkingu á rekstri þjóðbanka), mikilvægustu bankastofnanir landsins. Slík glæframennska ætti skilyrðislaust að flokkast sem landráð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.5.2012 kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.4.2012 | 17:34
Er ekki þörf á hæfnisprófi fyrir þingmenn???
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
- ÓSAMRÆMI MILLI LAGA UM STJÓRN FISKVEIÐA OG FRAMKVÆMDA ...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- alla
- framtid
- mammzan
- hallgrimurg
- huldumenn
- jaxlinn
- johanneliasson
- maggij
- photo
- haukurn
- runar-karvel
- sigrunsigur
- skodunmin
- svarthamar
- vestskafttenor
- athb
- thjodarsalin
- seiken
- skinogskurir
- bjarkitryggva
- bjarnimax
- brahim
- gattin
- einarhardarson
- einarorneinars
- bofs
- dramb
- haddi9001
- heimssyn
- tofraljos
- don
- hordurvald
- fun
- visaskvisa
- huxa
- jonasphreinsson
- jonl
- jobbi1
- jonvalurjensson
- jonthorolafsson
- josefsmari
- juliusbearsson
- ksh
- kolbrunerin
- kristbjorg
- liu
- skrafarinn
- maggiraggi
- markusth
- os
- raksig
- rosaadalsteinsdottir
- fullvalda
- siggileelewis
- duddi9
- siggith
- saemi7
- tryggvigunnarhansen
- vga
- thjodarheidur