1.9.2009 | 21:10
Það virðist ekki mikið ljós á skynsemisperunni hjá OR-mönnum
Ég skal strax viðurkenna að ég hef ekki lesið samning OR við Magma Energy, en af fréttum að dæma virðast OR menn ekki vaða í viti og fyrirhyggju. Ég get því tekið undir þær aðvaranir sem Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra hefur látið falla um þá vitleysu sem þarna virðist á ferðinni.
Athyglisvert er, að lánið sem OR veitir Magma, vegna 70% kaupverðs, er sagt vera í USA dollurum, þrátt fyrir að þeir fjármálasérfræðingar sem spáðu, fyrir nokkrum árum, hruni íslensku bankanna, spá því nú að Bandaríkin muni innan fárra ára lenda í miklum skuldavanda og USA dollarinn muni hrynja meira en 50% í verðgildi. Lánið hefði verið tryggara, annað hvort í Ísl. krónum eða í Kanadadollar.
Svo ganga menn aftur í þá grifju að einu tryggingar skuldarinnar sé í fyrirtækinu sjálfu. Ferlið verður því flótlega hið sama og hjá útrásarvíkingunum, að þetta fyrirtæki (Magma Energy) mun, á næsta eða þarnæsta ári, selja öðru fyrirtæki í eigu sömu aðila, megnið af eignum Magma, ásamt orkuréttindum, og skilja Magma Energy eftir eignalítið en yfirskuldsett, þannig að í því verði engin trygging fyrir skuldinni við OR.
Niðurstaðan verður því sú, að um svipað leiti og þjóðin þarf að fara að greiða af IscSave skuldunum, mun OR þurfa að afskrifa skuldina við Magma Energy vegna sölunnar á hlutnum í HS-orku, þar sem Magma verði eignalaust.
Eignarhluturinn í HS-orku, ásamt orkuréttindum, verður hins vegar orðin eign annars fyrirtækis, sem tekið hafði þessar eignir upp í tilbúnar skuldir Magma við þetta nýja hlutafélag. Við munum því ekki eiga neina möguleika á að ná eignarhaldi aftur á þessum orkuréttindum, eða eignarhlutnum í HS-orku.
Hve mikið skildum við eiga af samningsaulum hér á Íslandi ???
Skildu þeir allir hafa verið teknir í þjónustu opinberra aðila ?????
![]() |
Vaxtamunurinn eðlilegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2009 | 14:09
Hann nefnir ekkert íslenska kvótakerfið
"Góð reynsla af notkun kvótakerfa við fiskiveiðistjórnun í heiminum" segir hinn svokallaði "fiskihagfræði- prófessor", en nefnir ekkert íslenska kvótakerfið. Hann segir einnig að: Kvótakerfi með framseljanlegum aflaheimildum er samnefnari þeirra framfara sem orðið hafa í fiskveiðum og stjórnun þeirra, Einnig segir hann í næstu málsgrein: Þannig beittu 15 af helstu fiskveiðiþjóðum heims kvótakerfi til þess að stýra heildaraflamagni. Nærri léti því að um 20-25% alls heildarafla í heiminum væri veiddur með kvótakerfi sem stjórntæki. Lítum aðeins nánar á þetta.
Athyglisvert er að hann skuli tilgreina "15 af helstu fiskveiðiþjóðum heims". Hve margar þessara 15 þjóða eru í Evrópusambandinu, og þar með þátttakendur í hinu vonlausa stjórnkerfi þeirra, að þeirra eigin sögn. Líklega er Nýja Sjáland líka í þessum 15 ríkja hópi, með það árangursleysi sem þegar hefur verið sýnt í sjónvarpi. Við þekkjum árangurinn af íslenska kvótakerfinu, og þurfum því ekki að undrast þó Ragnar nefni það ekki mikið í erindum sínum, því ALDREI hefur hann geta rökstutt þær vitleysur sem hann hefur sett á prent um það kerfi, þó ítrekað hafi verið eftir því leitað.
Athyglisvert væri að fá sundurliðun þessara 15 þjóða, eftir hlutfalli fiskafla í heildartekjum þjóðfélagsins (gjaldeyristekjum), og hins vegar eftir því hve mörg byggðarlög (sem hlutfall af heild) hafa, að meira en 40% hlutfalli byggt afkomu sína af fiskveiðum og vinnslu fiksafurða; segjum svona 60 ár aftur í tímann.
Ragnar blessaður, er þekktur að því að vera alveg sama um afkomu þjóðfélagsins, þegar fiskveiðar eru annars vegar. Hann horfir eingöngu ógagnrýnum augum á arðrán ákveðinna útvegsmanna, sem þó hafa ekki geta rekið fyrirtæki sín án umtalsverðrar skuldasöfnnar, samhliða því að selja gegn brjálæðislegu verði, þær aflaheimildir sem þeir sjálfir fengu gjaldfrjálst frá ríkinu; og skila engu af því fjármagni til rísksins, ekki einu sinni viðrðisaukaskattinum af þeirri fisksölu, sem sala aflaheimilda er.
Íslensk fiskveiðistjórnun hefur einnig byggst á því að útrýma - svo sem kostur er - veiðum með kyrrstæðum veiðarfærum, samhliða því sem umtalsverð sóknaraukning hefur orðið með MJÖG þungum og eyðileggjandi togveiðarfærum, sem vinna umtalsverð spjöll á lífríki hafsbotnsins, líkt og ítrekað hefur verið sýnt fram á. Og enn er haft eftir Ragnari:
Ragnar sagðist telja að með framseljanlegum aflaheimildum í kvótakerfi væri í raun búið að leggja grunn að því að sjávarútvegurinn bæri sjálfur ábyrgð á stjórn veiða. Sambærilegt sjónarmið kom einnig fram í erindi Stan Crothers, fyrrum starfsmanns nýsjálenska sjávarútvegsráðuneytisins, á ráðstefnunni.
Ef útvegsmenn gætu lært að þekkja mismuninn á hugtakinu "seljanleg" auðlind og "framseljanleg" auðlind, væri vel husanlegt að hafa þá með í ráðum við stjórn fiskveiða. En meðan þeir þekkja ekki muninn á þessum tveimur mikilvægu hugtökum, og komast upp með að ræna milljarðatugum frá ríkissjóði, er varla von til að þjóðin treysti þeim verði fyrir þessari mikilvægu auðlind, sem þjóðin byggir afklomu sína á.
Athyglisvert er, í ljósi þess hve mikið hefur verið fjallað um mistök við fiskveiðistjórnun nýsjálendinga, að fiskveiðistjórnun okkar skuli jafnan nefnd í sömu andrá þegar ábyrga og árangursríka fiskveiðistjórnun ber á góma. Að sjálfsögðu er ekki nefnt að talað sé um jákvæðan árangur. En af því að fiskveiðistjórnun okkar er jafnan nefnd í sömu andrá og fiskveiðistjórnun Nýja Sjálands, þarf ekki mikla stærðfræðikunnáttu til að skilja samhengið.
Því miður hefur þessi blessaður maður, sem kallar sig "prófessor í fiskihagfræði", ekki enn látið í ljós þekkingu á þýðingu fiskveiða og vinnslu, fyrir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Ástæða þess er að hann hefur aldrei horft út fyrir hagsmuni LÍÚ, í sínum "prófessorsmerktu" rangfærslum.
Því verður ekki neitað að það er veruleg smán að því fyrir Háskóla Íslands, að það rugl sem Ragnar hefur látið frá sér fara um fiskveiðistjórnun, skuli vera sett fram undir merkjum stofnunar sem ÆTLA MÁ að beri fyrst og fremst hag þjóðarheildarinnar fyrir brjósti, en stefni ekki opinberlega að því að ræna helstu tekjuauðlind þjóðarinnar og koma henni í hendur aðila sem, frá upphafi, hafa sýnt fullkomið ábyrgðarleysi, gagnvart þjóðinni, í tilraun til að auðgast sjálfir.
Það þarf greinilega að lúsahreinsa Háskólann.
![]() |
Almennt góð reynsla af kvótakerfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.8.2009 | 17:37
Hvert fara þá hækkanirnar sem verið hafa á lambakjötinu ???
Sé horft til þeirra miklu verðhækkana sem verið hafa á lambakjöti í verðslunum á þessu ári, sætir það nokkurri furðu að sláturleyfishafar skuli ekki geta greitt bændum neinar verðhækkanir, frá síðasta ári. Hvert fara þá allar þessar verðhækkanir sem við neytendur höfum verið að borga, á þessu ári, fyrir blessað lambakjötið ???
Sé það svo að milliliðirnir séu að gleipa sjálfir allar þessar hækkanir, er greinilega komin þörf á að endurskoða söluferli lambakjötsins, með það að markmiði að bændur geti sjálfir selt sem mest af afurðum sínum, beint til neytenda.
Ekki geta söluaðilar afsakað verðhækkanir með auknum kostnaði við markaðssetningu, því engin tilraun er af þeirra hálfu gerð til að gera lambakjötið að freistandi vöru, með framsetningu í verslunum. Má þar t. d. nefna að ævinlega er útilokað að fá smáseik, gúllas eða lambahakk í verðslunum.
Þá er einnig afar sérstakt að horfa á verslanir selja sama kjötbitann úr skrokki lambsins, á tveimur afar mismunandi verðum. Á ég þar við svonefndar "framhryggssneiðar", sem er sá hluti af lambaskrokknum, sem í verðlagsgrunni mun vera verðlagður sem "súpukjöt", sem er á umtalsvert lægra verði en framhryggssneiðarnar eru seldar.
Að lokum vil ég hér einnig leggja fram áskorun til framleiðenda unninnar kjötvöru, að hætta þessum austri eytur- og rotvarnarefna í vörurnar, því flestar unnar kjötvörur eru orðnar ókaupandi, vegna hins mikla magns aukaefna sem framleiðendur hlaða í þessar vörur. Ég hef sniðgengið eytur- og rotvarnarefni í matvörum í áraraðir og að sama skapi hefur meltingarstarfsemi líkama míns farið batnandi, og þar með líkamleg og andleg heilsa.
Er kannski besta leiðin að snúa aftur til einfaldleikans og hreinleikans í efnasamsetningu matvæla?
![]() |
Lægra verð en bændur óskuðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2009 | 11:36
Væri ekki gott að leiðrétta verðtrygginguna í leiðinni ??
Frá upphafi hafa útreikniforsendur svokallaðrar verðtryggingar (fyrst lánskjaravísitölu) verið vitlausar, með þeim hætti að þær margfalda endurgreiðslu lánsfjár, langt umfram eðlilegar vísitölubreytingar. Á þetta hefur oft verið bent, en þar sem þessi "vitleysa" í útfærslum, skilar lánastofnunum umtalsvert hærri endurgreiðslu en eðlilegur útreikningur mundi gera, hefur verið slegin öflug skjaldfborg um þessar "vitleysur".
Ég á allar þessar vitleysur skýrt útfærðar og bauð t.d. kastljósi þær í lok síðasta árs, en eitthvað stöðvaði þá á síðustu stundu að kynna sér málið.
Í áranna rás hef ég iðulega vakið máls á þessum vitleysum, en aldrei hefur skapast áhugi fjölmiðla eða félagshópa á að kynna sér þessa þætti rækilega. Ég hef þó marglýst því yfir að ég sé tilbúinn að mæta á fundi hjá hópum til að kynna þessar vitlausu forsendur, en til slíks þurfi ég annað hvort skjávarpa eða glæruvarpa.
Ef þjóðin gæti sameinast um að leiðrétta núverandi lög (vitleysan var sett inn í lögin þegar sást hve vel hún gaf af sér fyrir lánastofnanir) og einnig útreikniforsendur skuldabréfakerfis lánastofnana, þannig að útreikningar verðbóta væru í samræmi við hina upphaflegu hugmynd, myndu ALLAR höfuðstólsupphæðir verðtryggða lána lækka verulega og framtíðar-afborganir vera í fullu samræmi við eðlilegar verðbreytingar í landinu.
Hvort ætli sé betra, fyrir farsæla framtíðarþróun lánaviðskpta, að leiðrétta vitleysur í verðbótaútreikningum, eða afskrifa hluta af höfuðstól núverandi skulda?
![]() |
Ráðherra vill afskrifa skuldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 13:03
Stórhættulegt að samþykkja Icesave-ábyrgðina
Ég hef áhyggjur af því að mér finnst stjórnmálamenn ekki átta sig á mestu hættunni sem islensku samfélagi stafar af samþykkt ríkisábyrgðar þessa Icesave-samnings. Lítum á meginrökin.
Ríkissjóður er ekki, lögum samkvæmt, ábyrgðaraðili Landsbanka Íslands hf.
Ríkissjóður er ekki með neina beina ábyrgð á Tryggingasjóði innistæðueigenda og Tryggingasjóður kemur ekki til skjalanna fyrr en fyrirtækið (Landsbankinn) er komið í gjaldþrot.
Í stjórnarskrá okkar eru skýr ákvæði um að ALLIR skuli vera jafnir fyrir lögunum.
Fari nú svo að Alþingi samþykki ríkisábyrgð vegna skulda Landsbankans, myndast ófrávíkjanlegur kröfuréttur ALLRA kröfuhafa á íslensk fyrirtæki, vegna krafna sem þau ráða ekki við að greiða. Hvernig gerist það?
Taki ríkissjóður ábyrgð á skuld íslensks fyrirtækis, sem ekki hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta, er forsendan - ALLIR skuli vera jafnir fyrir lögunum - orðin dómtæk forsenda fyrir því að slíkt hið sama VERÐI að vera meginregla gagnvart ÖLLUM ÖÐRUM FYRIRTÆKJUM Í LANDINU.
Ef menn hafa ekki enn áttað sig á því, hvers vegna erlendir kröfuhafar eru svona tregir til að ganga frá samningum um niðurfellingar skulda, þá bendi ég mönnum á að þessi þáttur er einmitt meginástæðan fyrir þessari tregðu. Samþykki Alþingi ábyrgðina vegna Icesave-samningsins, þurfa engir erlendir kröfuhafar að afskrifa neitt af kröfum sínum, því jafnræðisregla stjórnarskrár veitir þeim rétt til að sækja greiðslur sínar til ríkisins, vegna samþykktar ríkisábyrgðar á skuld íslensks fyrirtækis, sem er komið í greiðsluþrot, en hefur ekki enn verið tekið til gjaldþrotaskipta, og skiptin kláruð.
Það þarf ekki fólkna speki til að sjá þetta, því þetta er fyrir framan augun á manni, ef maður einbeitir sér að einföldu beinu brautinni, undir öllu orðagjálfrinu, sem stjórnmaálamenn skilja ekki einum sinni sjálfir.
![]() |
Frávísun myndi valda stjórnmálaóreiðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 14:48
Fljótfærni, eða skortur á dómgreind ??
Tilvitnuð ummæli fjármálaráðherra Noregs, "að Íslendingar þyrftu að greiða reikninginn fyrir frjálshyggjutilraun hægrimanna" eru afar athyglisverð. Ber að skilja þessi ummæli þannig að Norska ríkisstjórnin, telji vera Norska ríkisábyrgð á fjárskuldbindingum allra hlutafélaga í Noregi?
Landsbanki Íslands hf. er eigandi Icesave reikninganna. Og ríkissjóður Íslands er ekki hluthafi í því hlutafélagi. Hann er hvorki með ábyrgð á hlutafélaginu né Tryggingasjóði innistæðueigenda. Hvaðan kemur Norska fjármálaráðherranum heimild til að kenna þessa skuldastöðu hlutafélagsins, við ALLA ÍSLENDINGA, eins og hún gerir í nefndu útvarpsviðtali?
Þessi ásökun Norska fjármálaráðherrans, á hendur almenningi á Íslandi er, vægt til orða tekið dónaleg. Þar sem þetta er rakalaus ósannindi í garð almennings á Íslandi, flokkast þetta vart vægar en sem ónauðsynleg, óverðskulduð og órökstudd, niðurlægjandi árás á Íslensku þjóðina.
Við svona framkomu á Norska ríkisstjórnin einungis eina útgönguleið. Þeir verða að láta fjármálaráðherrann biðja íslensku þjóðina opinberlega afsökuna og undanbragðalaust láta hana taka pokan sinn og hverfa úr ríkisstjórn Noregs. Að öðrum kosti er Norska ríkisstjórnin saþykk þessari órökstuddu árás á íslenskan almenning.
Það er sorglegt ef dómgreind stjórnmálamanna er almennt að verða svo lítil, að þeir geri ekki greinarmun á einstöku sjálfstæðum hlutafélögum, frá sameiginlegum sjóðum allra landsmanna. Sé það svo, er víðar en á Íslandi komin tími til að koma skynsömu fólki að við stjórnun þjóðfélaga.
Ég vænti þesss að sjá ÁBERANDI viðbrögð Norsku ríkisstjórnarinnar.
![]() |
Axli ábyrgð á hægritilraun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 166155
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur