4.4.2009 | 11:22
Afar merkilegar yfirlýsingar forystu LÍÚ um kvótamálin
Í framhaldi af yfirlýsingum núverandi stjórnarflokka um kvótamálin, eftir síðustu landsfundi þeirra, er afar merkilegt að heyra og lesa ummæli LÍÚ-manna varðandi þau mál. Þeir lýsa því hiklaust yfir að stór hluti útgerða á Íslandi fari í gjaldþrot ef fyrirkomulagi við úthlutanir aflaheimilda verða endurskoðaðar. Fáein atriði eru sérstaklega athyglisverð í ummælum LÍÚ-manna.
Engann hef ég enn hitt sem telur að núverandi útgerðir fái ekki úthlutað álíka aflamagni og þær hafa verið að veiða undanfarin ár. Ljóst er því að engin tekjuskerðing verður hjá útgerðunum vegna möguleika til veiða.
Í ljósi þessa er það bersýnilega ekki við stjórnvöld að sakast þó útgerðir lendi í greiðsluvandræðum, verði af breytingum á úthlutun aflaheimilda.
LÍÚ-menn telja miklar líkur á að bankarnir fari á hausinn ef breyting verði gerð á úthlutunarreglum aflaheimilda. Athyglisvert, í ljósi þess að Alþingi hefur ALDREI heimilað sölu eða veðsetningu aflaheimildanna. Útgerðum er úthlutað, ár hvert, ákveðnu magni veiðiréttar, án þess að um sölu eða leigu sé að ræða. Úthlutunin er einungis nýtingarréttur til veiða á ákveðnu magni fisks í fiskveiðilandhelgi okkar. Í lögunum er útgerðum heimilað að afhenda (framselja) öðrum útgerðum allt að 50% veiðiheimilda sinna, en þeim hefur ALDREI verið heimilað að taka gjald fyrir þær afhendingar (framsal).
Eðli málsins samkvæmt, þar sem stjórnvöld hvorki selja né leigja veiðiheimildirnar, er hvergi til lagagrundvöllur til þess að útgerðarmenn selji þann nytjarétt sem þeim er fenginn til afnota, ekki eignar. Það verður hins vegar að setja stórt spurningamerki við greind, eða vilja stjórnmálamanna okkar, til þess að varðveita eðlilega meðferð og nýtingu þessarar mikilvægu auðlindar þjóðarinnar; einnar meginuppistöðu gjaldeyrisöflunar hennar.
Hafi stjórnendur lánastofnana verið svo grunnhyggnir að veita útgerðum lána með veði í eignum þjóðarinnar, er það bara enn ein vitleysan sem upp kemst um óvitaskap þeirra og óvarkárni í lánveitingum.
Slík lán hafa öll farið fram í gömlu bönkunum og getur ekki annað en orðið höfuðverkur þeirra að kljást við slík útlán, reynist þau vera utan greiðslugetu útgerða, líkt og LÍÚ-menn halda nú stíft fram. Hafi stjórnendur nýju ríkisbankanna hug á að yfirtaka ótryggð lán til útgerðarfélaga, eða lánveitingar sem eru langt umfram raunverðmæti (söluverðmæti) fasteigna þeirra og skipa, þarf slík ákvörðun að vera borin undir Alþingi og staðfest þar, þar sem með slíku er verið að taka beint veð í skatttekjum og öðrum eignum ríkissjóðs, sem Alþingi hefur eitt heimild til að skuldsetja.
Það verður fróðlegt að fylgjast með þeim aðgerðum sem LÍÚ-menn segjast ætla að grípa til. Þeir virðast ekki átta sig á að ríkissjóður er í þeirri stöðu gagnvart flestum útgerðum, að geta stöðvað starfsemi þeirra með skömmum fyrirvara, vegna vanefnda á greiðslu virðisaukaskatts af kvótasölu, allt aftur til 1. janúar 1994, þegar VSK var settur á fisk. Það þarf því ekki að taka langan tíma að setja núverandi útgerðarmenn til hliðar, og afhenda nýjum aðilum bæði skip og kvóta, til tekjuöflunar fyrir þjóðfélagið .
Þeir sem kynna sér framgöngu Sjálfstæðismanna við stofnun Lýðveldis á Íslandi; hvernig þeir náðu mikilvægum völdum frá þjóðinni, ættu ekki að vera hissa á ósvífni þeirra nú, gegn eðlilegri framgöngu lýðræðislega tekinnar ákvörðunar.
Engum vafa er undirorpið að það sé vilji mikils meirihluta þjóðarinnar, að gerðar verði gagngerar breytingar á stjórnarskrá okkar. Engum vafa er heldur undirorpið að mikill meirihluti þjóðarinnar vill að aðrir en stjórnmálamenn beri hitann og þungann af því að endursemja stjórnarskrána.
Það eina sem lesið verður út úr hamagangi Sjálfstæðismanna nú, er að þeir telja fullvíst að þjóðin muni taka aftur til sín þau völd sem Sjálfstæðismenn rændu hana við stofnun Lýðveldisins á sínum tíma. Þessi hræðsla er skiljanleg, en sýnir engu að síður afar litla virðingu þessa stjórnmálaflokks fyrir lýðræðislegum vilja, sé sá vilji andsnúinn hagsmunum máttarstólpa Flokks þeirra.
Afar holur er hljómur Sjálfstæðismanna um að það þurfi meiri tíma til að ræða boðaðar stjórnarskrárbreytingar, þegar þess er gætt að ÞEIR SJÁLFIR, stóðu að eyðileggingu atvinnulífs á landsbyggðinni, með setningu laganna um fiskveiðistjórnun. Engin umræða fór fram um þær breytingar og voru mikilvægustu eyðileggingarþættir þeirra laga látin fara hraðferð í gegnum þingið á næturfundum, undir lok þingstarfa að vori.
Hvers vegna tala fjölmiðlar ekki við Sjálfstæðismenn eins og fullorðið fólk, og leggi fyrir þá gagngerar spurningar um fyrri virðingu þeirra fyrir lýðræði og vandaðri umræðu, sem undanfara mikilvægra ákvarðana?
![]() |
Rætt um stjórnarskrá til klukkan 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2009 | 20:37
Samninganefndir hafa ekkert ákvörðunarvald
Vegna þess að samninganefndir hafa ekkert ákvörðunarvald, taka samningsniðurstöður þeirra ekki gildi fyrr en eftir að lögleg kosning í stéttarfélagi hefur samþykkt tillögur samninganefnda. Þegar tillaga samninganefndar hefur verið samþykkt, lýkur starfstíma nefndarinnar og umboði hennar gagnvart þeim samning sem stéttarfélag hefur samþykkt.
Samninganefnd getur því ekki með neinu móti raskað niðurstöðu kjarasamnings sem staðfestur hefur verið með löglegri kosningu í stéttarfélagi.
![]() |
Óska eftir lögfræðiáliti á frestun samninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2009 | 20:26
Þeir sem fjármagna þessa vitleysu hafa greinilega ekkert lært
![]() |
Reisa 95 leiguíbúðir fyrir aldraða í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.3.2009 | 21:35
Undarlegur hugsunarháttur þarna á ferð
Svo lengi sem ég man eftir, hefur ævinlega verið sagt að lög gildi EKKI aftur fyrir sig. Iðulega hefur verið til þessa vitnað þegar sett hafa verið lög til hagsbóta fyrir sjúka eða aðra afskipta minnihlutahópa. Þá hefur aldrei verið hægt að greiða bætur lengra aftur en til þess tíma sem lögin voru samþykkt.
Þess vegna kemur mér einkennilega fyrir sjónir að þeir sem brotið hafa þau lög sem voru í gildi, þegar brotið var framið, teljist ekki þurfa að taka út refsingu fyrir brot sitt, vegna þess að LÖNGU eftir að brotið var framið, var lögunum breytt þannig, að frá þeim tíma sem lögunum var breytt, var heimilt að gera það sem áður var lögbrot.
Þessi rökfræði er svo fáheyrð heimska að sú þjóð sem beitir slíkri rökfræði getur vart gert tilkall til að flokkast sem VEL MENNTUÐ ÞJÓÐ. Ótvírætt myndi sú þjóð flokkast með afar lága siðferðisvitund og enga skynjun hafa á hugtakinu "réttlætiskennd".
Við getum svo velt fyrir okkur heimild stjórnvalda til sjálfstæðrar breytingar á áhættustýringu sjálfstæðra lífeyrissjóða. Stjórnvöld hafa ENGA stjórnunarlega aðkomu að starfsemi lífeyrissjóða, og þar með ENGA heimild til lagabreytinga um aukningu áhættuþátta við ávöxtunarstýringu þess fjármagns sem sjóðsfélagar eiga í sjóðunum.
![]() |
Ræddu ekki um afnám refsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.3.2009 | 12:52
Hve mikið seldu þeir ?
Það er náttúrlega aldrei til bóta að einhverjir hætti sölu á vörum okkar. Viðbrögðin við slíku hljóta alltaf að ráðast af því hver hlutdeild þess fyrirtækis er í sölu á útflutningsvörum okkar. Mun það verða merkjanlegt í heildarverðmæti útflutnings, að t. d. þetta fyrirtæki hættir sölu? Mun önnur söluaukning gera meira en að dekka það verðmæti sem sala þeirra var?
Marga þætti vantar inn í þessa frétt svo hægt sé að mynda sér einhverja skoðun á því hvort þetta er í raun og veru frétt, eða hvort hér er á ferðinni vanhugsað áróðursbragð, án alls slagkrafts.
![]() |
Hætta að kynna íslenskar vörur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.9.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 166160
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur