Færsluflokkur: Vefurinn
Það er auðvelt að svara þeirri spurningu sem sett er fram í fyrirsögninni. Ekki þarf annað en lesa þau þrjú bréf sem hér eru meðfylgjandi, en þau lýsa orðaskiptum mínum við Þorkel Sigurlaugsson, þáverandi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips.
Fyrsta bréfið er það sem ég ritaði honum, en bréf 2 er sama bréfið sent til baka með athugasemdum hans, rituðum með rauðu letri. Þriðja bréfið er svo svar mitt við athugasemdum hans, en því bréfi svaraði hann aldrei.
Eftir lestur þessara bréfa þarf enginn að vera í vafa um hvort erlendum bönkum hafi verið talin trú um að þeir ættu veð í aflaheimildum.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2011 | 18:24
Bréf til velferðarráðherra ásamt gögnum
Nýlega sendi ég velferðarráðherra bréf vegna endurskoðunar á Almannatryggingalögum okkar. Mappa með bréfinu og fylgigögnum á að vera með sem viðhengi eða skrá, sem ég vona að opnist. Kv. G.J.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2011 | 17:19
Þegar manni ofbýður, þá getur allt gerst.
Fyrir fáeinum dögum sendi ég eftirfarandi orðsendingu til Dómstólaráðs, Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur, ásamt þeirri greinargerða sem hér fylgir með sem viðhengi eða skrá. Þið ráðið hvort þið nennið að lesa þetta en það stendur ykkur sem sagt til boða.
Kveðju, Guðbjörn
--------------------------------------------
Ég heilsa ykkur, æðstu gæslumenn réttlætis heiðarleika og lýðræðis.
Oft hefur mig undrað hve mikla óvandvirkni og beinan óheiðarleika er að finna í dómum í svona litlu samfélagi, sem auðveldlega ætti að vera hægt að rækja sem einskonar frændgarð. En með þeirri vanvirðingu sem réttarkerfi okkar sýnir dýpstu gildum mannlegs samfélags, er þjóðfélag okkar farið að ramba á barmi borgarauppreisnar. Slíkt ástand er á engan hátt á ábyrgð alþýðu fólks, sem meira að segja hefur verið seinþreytt til vandræða, þó það hafi verið rænt tiltrú á að heiðarleiki og kærleikur væri finnanlegur á þeim æðstu stöðum sem varðstöðu réttlætis og heiðarleika ætti að vera að finna.
Ég hef oft áður gagnrýnt óheiðarleika í réttarkerfinu. Harðasta atlagan til þessa var í málaferlunum gegn Egggert Haukdal, þegar óheiðarleika réttarkerfisins linnt ekki fyrr en gerð var krafa um að ALLIR dómarar Hæstaréttar vikju sæti, í von um að óspilltir aðilar gætu séð raunveruleikann og réttlætið í því máli. Það tókst og varð endanleg niðurstaða eins nálægt réttlætinu og hægt var að komast, svo mörgum árum eftir að Eggert var rændur mannorðinu.
Ég ætlast til þess að ég þurfi ekki að fara aftur í þá hörku sem þarf til að hreinsa réttarkerfið okkar, en verði það óumflýjanlegt, verður sú orrusta háð, eins og hinar fyrri. Sú forsmán réttarfars, sem hér fylgir með, sviptir alla gerendur hennar æru heiðarlegs fólks, þar til þessi ósvinna hefur verið máð út úr lögum og dómar afturkallaðir. Þið megið kalla að það sé gert vegna nýrra upplýsingar eða hvað sem þið viljið, en virðing ykkar er undir því komin að það verk verði unnið, að ykkar frumkvæði.
Guð útdeilir gæfu og kærleika, í þeim mæli sem slíkir eiginleikar hans eru gefnir til annarra.
Með kveðju,
Guðbjörn Jónsson
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2011 | 08:48
Eignarhaldið ekki rétt.
Samkvæmt skráningu hjá Fyrirtækjaskrá, er Austurhöfn-TR ekki í eigu ríkissins eða Reykjavíkurborgar. Ég fékk afrit af öllum skráningargögnum yfir þetta fyrirtæki og þar er hvergi að finna staðfestingu Alþingis fyrir stofnun eða eignarhlut í Austurhöfn-TR.
Við ítrekaðar athuganir á þingskjölum, verður ekki séð að málið hafi verið lagt fyrir þingið. Meðan svo er verður ekki með neinum hætti hægt að krefjast þess að ríkissjóður beri einhverja ábyrð á starfsemi Austurhafnar-TR.
Ég hef ekki skoðað gögn Reykjavíkurborgar og get því ekki fullyrt hvort þar hafi verið samþykkt í borgarstjórn að gerast eignaraðili að því marki sem fram kemur í fréttinni. Reykjavíkurborg er hins vegar ekki skráður eigandi hjá Fyrirtækjaskrá, eins og sú skráning var fyrir ári síðan.
![]() |
Harpa endurfjármögnuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.10.2011 | 22:20
Opið bréf sent á erlendu sérfræðingana sem taka þátt í ráðstefnunni í Hörpunni 27. okt. n.k
Næst komandi fimmtudag verður haldin dullítið merkileg ráðstefna í Hörpunni. (Sjá t.d. hér) Miðað við kynninguna á henni og aðra umgjörð virðist hún fyrst og fremst vera hugsuð til þess að miðla því yfirlýsta áliti íslensku ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðins að samstarfið á milli þeirra sé fordæmisgefandi fyrir önnur lönd. Fordæmisgefandi að því leyti að hér hafi efnahagsbatinn gengið hraðar fyrir sig en annars staðar.
Nokkrir erlendir sérfræðingar í hagfræði og alþjóðaviðskiptum ásamt starfsfólki AGS taka til máls ásamt íslenskum valdhöfum og prófessorum frá háskólunum tveimur sem eru staðsettir hér í Reykjavík. Umgjörð ráðstefnunnar blés nokkrum grasrótarmeðlimum óhug í brjóst sem knúði þá til að skrifa erlendum gestunum bréf. Eftirtaldir móttóku þetta bréf seint í gærkvöldi:
Joseph Stiglitz, prófessor í hagfræði (ávarpar ráðstefnuna af bandi)
Julie Kozack, aðstoðardeildarstjóri aðgerðaráætluninnar IMF á Íslandi
Martin Wolf, fjármálasérfræðingur frá Financial Times (stýrir pallborðsumræðum)
Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdarstjóri IMF
Paul Krugman, prófessor hagfræðingur
Poul Thomsen, aðstoðarframkvæmdarstjóri evrópudeildar IMF
Simon Johnson, prófessor alþjóðaviðskiptum (fyrrum starfsmaður IMF)
Willem Buiter, prófessor í hagfræði
Í stuttu máli má segja að megintilgangurinn með ritun þessa bréfs sé sá að vekja athygli erlendra fjölmiðla svo þeir sjái um að koma því út til alþjóðasamfélagsins að staða Íslendinga er í engu frábrugðin öðrum illa settum löndum í heiminum. Samstarf íslensku ríkisstjórnarinnar við AGS hefur skilað íslensku þjóðinni því sama og öðrum samfélögum þar sem sjóðurinn hefur komið við sögu. Íslenskur almenningur tilheyrir 99%-unum sem hefur risið upp gegn 1%-inu sem hefur farið svo illa með sjálfskipuð forréttindi sín til eigna og valda að heimshrun fjármálamarkaðana blasir nú við.
Á sama tíma og ráðstefnan fer fram er boðað til andmælastöðu niður við Hörpuna. Fólk er hvatt til að mæta með andmæli á erlendum tungumálum og ekki væri verra ef viðstaddir verða reiðubúnir til að tala við erlendu pressuna og/eða grasrótina sem verður með upptökumenn á þeim tímum sem búast má við mestri umferð andmælenda við ráðstefnuhúsið. Þetta er við upphaf ráðstefnunnar, í kringum hádegið og í lokin. Varðandi upplýsingar um tímasetningar og annað skaltu fylgja þessari slóð.
Svo hvet ég alla til að birta eftirfarandi bréf á bloggi eða í glósu inni á Fésbókinni eða krækja því á vegginn sinn þar. Ég mun setja krækjur á blogg þeirra sem hafa undirritað þetta bréf jafnóðum og þeir birta það þar.
_________________________________________________________________
Reykjavík 23. október 2011
Kæri herra/frú
Tilefni þessara skrifa er það að þú ert meðal þeirra sem munu taka til máls á ráðstefnunni Iceland´s RecoveryLessons and Challenges, sem haldin verður í Reykjavík 27. október næst komandi. Við undirrituð höfum áhyggjur af því að þú hafir aðeins fengið valdar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi frá hérlendum stjórnvöldum. Við viljum því benda þér á mikilvægar viðbótarupplýsingar varðandi fjármál ríkis og sveitarfélaga, fjármálakerfið og stöðu almennings í landinu.
Almennt
Ljóst er að staðan í íslensku efnahagslífi er nokkuð önnur í dag en upphaflegar áætlanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gerðu ráð fyrir þegar þeir komu hér að málum í lok árs 2008. Þannig voru erlendar skuldir þjóðarbúsins nærri tvöfalt meiri í árslok 2010 en upphaflega var áætlað; skuldir hins opinbera eru meiri, atvinnuleysi er meira, verðbólga á árinu 2010 var meiri og svo virðist sem samdrátturinn í efnahagslífinu ætli að verða dýpri og vara lengur.
Ríkisfjármálin
Fyrir hrun skuldaði ríkissjóður 26% af VLF. Opinberar tölur yfir skuldir ríkisins eru 111% af VLF en heildarskuldir þjóðarbúsins eru hins vegar 280% af VLF. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs versnaði um 140 milljarða króna milli annars ársfjórðungs 2010 og 2011. Ef marka má þessar tölur þá er hægt að leiða að því líkum að íslenska ríkið hafi frá hruni tekið að láni fjárhæð sem nemur jafnvirði landsframleiðslu í eitt ár og þá eru lánin frá AGS ekki einu sinni talin með. Vaxtakostnaður ríkissjóðs af núverandi skuldabyrði er hátt í 20% af tekjum.
Sveitarfélög
Skuldir sveitarfélaganna og skuldbindingar voru 586 milljarðar um seinustu áramót. Ef skuldir Orkuveitu Reykjavíkur, sem eru vel á 300 milljarða, og 47 milljarða lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaganna eru frátaldar standa samanlagðar skuldir sveitarfélaganna í 310 milljörðum kr. sem er 20% af VLF og 154% af tekjum þeirra.
Fjármálakerfið
Kostnaður íslenska ríkisins við endurreisn bankakerfisins í kjölfar hrunsins haustið 2008 var 64% af VLF sem er heimsmet. Nýju bankarnir fengu lánasöfn gömlu bankanna á 45-65% af raunvirði þeirra. Þessi niðurfelling á milli gömlu og nýju bankanna hefur þó ekki skilað sér til almennings þar sem lánin eru rukkuð inn á nafnvirði þeirra. Afleiðingarnar eru mikill hagnaður bankanna sem byggir á því að þeir eru að eignast stóran hluta af öllum eignum íslenskra fyrirtækja og heimila.
Almenningur
Nú er svo komið að 20% heimila í landinu geta ekki borgað af lánum sínum og 40% eru í miklum erfiðleikum. Í raun eru það bara 10% sem geta greitt af húsnæðislánum með eðlilegum hætti.
Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa lækkað um 27,4% síðastliðin þrjú ár á meðan verðlag hefur hækkað um 40%. Af þessum ástæðum hefur neysla þjóðarinnar dregist saman. Á sama tíma hefur þörfin fyrir mataraðstoð margfaldast en engar opinberar tölur eru til yfir fjöldann. Það eru þó staðreyndir að biðraðirnar við hjálparstofnanir hafa lengst og fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna hefur aukist um 62% frá hruni.
Fram hefur komið í tölum ríkisskattstjóra að skuldir íslenskra fjölskyldna hafi vaxið meira en eignir en á síðasta ári rýrnuðu eignir í fyrsta skipti meira en skuldir. Fjölskyldum sem eiga meira en þær skulda hefur fækkað um 8,1% milli ára. Þeim sem voru með neikvæðan eignaskattstofn fjölgaði hins vegar um 12,1%.
Samkvæmt síðustu tölum Vinnumálastofnunar er atvinnuleysið 6,7%. Sú tala er hins vegar umtalsvert hærri þar sem markvisst er unnið að því að koma atvinnulausum í nám og margir hafa yfirgefið landið í leit að atvinnu og betri lífskjörum. Í þessu sambandi skiptir líka máli að hópur fólks sem er atvinnulaus en á ekki rétt á atvinnuleysisbótum skráir sig ekki atvinnulausa. Hvatinn til að skrá sig er ekki til staðar þar sem fólk fær engar bætur hvort eð er. Að lokum er rétt að benda á að samkvæmt tölum sem hafa verið í opinberri umræðu má ráða að störfum á Íslandi hafi fækkað um 22.500 sem er u.þ.b. 8,2% af skráðu vinnuafli árið 2010.
Niðurstaðan
Meginástæða hrunsins var ofvaxið bankakerfi. Það orkar því mjög undarlega á almenning að horfa upp á þá ofuráherslu sem stjórnvöld leggja á endurreisn þessa sama kerfis í stað þess að byggja upp raunhagvöxt samfélagsins. Byrðum fjármálakreppunnar hefur fyrst og fremst verið dreift á skuldsett heimili. Ríkisstjórnin hefur markvisst unnið gegn almennri leiðréttingu lána og innleitt sértæk skuldaúrræði sem gefa bönkunum sjálfdæmi varðandi það hverjir fá leiðréttingu og hversu mikla. Flest ef ekki öll úrræði við skuldavanda heimila og smærri fyrirtækja hafa miðast við að viðhalda greiðsluvilja.
Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð bankanna hafa skapað aukna misskiptingu. Landsmenn horfa upp á að það er verið að afskrifa skuldir þeirra sem ullu hruninu. Þessir halda líka fyrirtækjum sínum og arði af ólöglegum fjármálagjörningum á sama tíma og almenningur er látinn sitja uppi með forsendubrestinn. Því er svo komið að óréttlætið ógnar félagslegum stöðugleika í landinu. Kjörnir fulltrúar fara eftir kröfum fjármálaaflanna á kostnað hagsmuna almennings.
Íslenska bankakerfið hefur sett skuldir sínar yfir á almenning eins og gert hefur verið í Grikklandi, Írlandi, Portúgal og víðar. Ísland sker sig því ekkert úr hvað það varðar að lýðræðið hefur orðið fórnarlamb bankaveldisins.
Virðingarfyllst,
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
Ásta Hafberg, nemandi í viðskiptastjórnun
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, fyrrverandi garðyrkjustjóri
Elínborg K. Kristjánsdóttir, fyrrverandi blaðamaður
Elías Pétursson, framkvæmdastjóri/háskólastúdent
Eyjólfur Kolbeinn Eyjólfsson, hugbúnaðarsérfræðingur
Björg Sigurðardóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður
Björk Sigurgeirsdóttir, ráðgjafi
Guðbjörn Jónsson, ráðgjafi kominn á eftirlaun
Guðmundur Ásgeirsson, kerfisfræðingur
Guðrún Skúladóttir, sjúkraliði
Gunnar Skúli Ármannsson, læknir
Helga Garðarsdóttir, ferðamálafræðingur
Helga Þórðardóttir, kennari
Indriði Helgason, rafvirki
Jakobína I. Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur
Rakel Sigurgeirsdóttir, íslenskukennari
Sigurjón Þórðarson, líffræðingur
Sigurlaug Ragnarsdóttir, listfræðingur
Vilhjálmur Bjarnason, ekki fjárfestir
Þórarinn Einarsson, aktívisti
Þórður Á. Magnússon, framkvæmdarstjóri
Afrit sent á erlenda og innlenda fjölmiðla svo og ráðherrana þrjá sem eru í gestgjafahlutverkinu á ráðstefnunni: Iceland´s RecoveryLessons and Challenges sem haldinn verður í Hörpunni n.k. fimmtudag eða þ. 27. október
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.10.2011 | 11:04
Endurskoðun Almannatryggingalaga
Á reglulegum fundi aðalstjórnar Öryrkjabandalagsins í liðinni viku, kom fram að endurskoðun laga um Almannatryggingar ganga hægt. Allur tíminn fer í útreikninga á skerðingum, án þess að búið sé að fara í gegnum lögin og breyta þeim til betra horfs.
Á undanförnu ári hef ég verið að fara í gegnum nuverandi lög um Almannatryggingar. Sú lesning hefur ekki verið til skemmtunar. Það er hrein hörmung að sjá vinnubrögð þingmanna, eins og þau birtast í þessum lögum. Þau lýsa skært af þekkingarleysi eða kjánaskap. Ég dæmi ekki um hvort á við.
Ég skrifaði Velferðarráðherra bréf og benti honum á þessar staðreyndir. Með bréfinu sendi ég 1. kafla núverandi laga um Almannatryggingar, þar sem ég hafði skrifað athugasemdir inn á milli í lagatextann, með öðrum lit. Ég læt þennan kafla fylgja hér með í viðhengi. Kannski bæti ég öðrum köflum við ef fólk verður forvitið.
Hvað skildi þurfa til svo greina megi í lagatextum okkar, eðlilega skynsemi og viðurkenningu fyrir þeim mannréttindum sem við segjumst viðra?
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2011 | 00:01
Hvernig er verðtryggingin rétt eftir logum
Þetta er tilraun til að sýna hvernig húsnæðislán þróast ef verðtrygging er reiknuð eins og lögin gera ráð fyrir að sé reiknað. Samkvæmt síðasta greiðsluseðli Íbúðalánasjóðs voru eftirstöðvarnar þess láns sem hér er sýnt u.þ.b. 9 milljónir, en samkvæmt réttum verðbótum eru eftirstöðvarnar um 3,6 milljónir. Vakin er sérstök athygli á því að þessar færslur eru allar með nákvæmlega réttum verðbótaþáttum í hverjum mánuði. Vísitala neysluverðs í greiðslumánuðinum er reiknuð sem breyta frá vísitölu lántökumánaðar.
Opnið skrána "Íbúðarlán" í skráarsvæðinu hér til hliðar. Þá á að opnast færsluskrá yfir allar afborganir lánsins, frá fyrsta gjalddaga til gjalddaga nú í september s. l. Þetta væri rétt þróun á verðtryggðu 6.400.000 kr. láni, sem tekið var á árinu 2000. Höfuðstóll lánsins ætti að hafa lækkað um sem bæst 40%. Svolítið annað að sætta sig við slíkar verðbætur.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.9.2011 | 19:58
Enn einu sinni eyðileggst mál vegna afleitrar rannsóknar
Ég hef ekki tölu á því hve oft maður les um að mál verði að engu vegna ófullnægjandi rannsóknarvinnu. Er það virkilega svo að rannsóknardeildir lögreglu og saksóknara geti ekki bætt vinnubrögð sín? Mér finnst það í meira lagi alvarlegt ef brotaþoli, eins og í því tilfelli sem hér um ræðir, þarf að una því að meintur árásarmaður sleppi við refsingu, einvörðungu vegna óvandaðrar vinnu rannsókaraðila málsins. Og hvað setur Hæstiréttur svo út á í sambandi við vinnubörgð:
Hæstiréttur segir í dómi sínum í dag, að ágallar á skýrslutökum lögreglu af systur mannsins séu þess eðlis að ekki yrði litið til skýrslnanna við úrlausn málsins. Systirin hafi hvorki verið upplýst með fullnægjandi hætti um réttarstöðu sína sem vitnis né um það hverjir myndu fá aðgang að upptökum af skýrslutökunum.
Er sá möguleiki fyrir hendi að sá sem annaðist skýrslutökuna hafi verið óreyndur aðili, með ófullnægjandi þekkingu á skyldum sínum og ábyrgð? Hafa rannsóknarmenn ekki gátlista hjá sér varðandi mikilvægustu samskiptaatriði við þá sem eru að gefa skýrslur? Það er ekki hægt að horfa framhjá svona afgerandi klaufaskap við skýrslutöku. Þó er álíka hrollvekjandi ábyrgðarleysi hvað eftir anað að birtast í niðurstöðum dómstóla. Og áfram segir Hæstiréttur:
Skýrsla mannsins hjá lögreglu þótti hafa verið óljós og ruglingsleg og ekki nema að hluta í samræmi við annað sem fyrir lá í málinu. Því taldi Hæstiréttur, að ekki væri hægt að reisa sakfellingu á henni einni.
Enn vaknar spurning um þekkingu skýrslutökuaðila á málinu, meginefni þess og framvindu, fyrst hann gat ekki haldið eðlilegum framvinduþræði í skýrslunni. Svona einkennilegheit eru einnig ítrekað umsagnir dómstóla um skýrslur teknar hjá lögreglu, vegna sakamála. Þessu verður að breyta STRAX. Og enn segir Hæstiréttur:
Þá segir Hæstiréttur, að þótt framburður vitna kynni að styðja að maðurinn hefði ráðist að stúlkunni nægði sá framburður einn og sér ekki til sakfellis gegn eindreginni neitun mannsins fyrir dómi. Einnig yrði að líta til þess að við rannsókn á vettvangi og fatnaði mannsins hefði ekkert komið fram um að hann hefði framið það brot sem hann var ákærður fyrir.
Þarna þyrfti Hæstiréttur að skýra betur niðurstöðuna, og kannski gerir hann það í dómnum, án þess að fréttamaður skilji mikilvægi þess að láta slíkt fylgja fréttinni. Hæstiréttur talar um vitni í fleirtölu. Rétturinn virðist þó ekki viss um hvaða afstöðu eigi að taka til framburðs þeirra, og virðist sleppa þeirri augljósu skyldu sinni að, annað hvort spyrja vitnin sjálfir, eða láta endurtaka yfirheyrsluna fyrir héraðsdómi, þannig að Hæstiréttur geti myndað sér ótvíræða skoðun á framburði vitnanna. Þarna sleppa dómarar Hæstarétta mikilvægasta þætti dómarastarfsins, að leita sannleikans, svo lengi sem einhver vafi er til staðar. Og þeir byggja mikið á síðbúinni neitun mannsins, án þess að virða að sama skapi ásæðuna sem hann ber fyrir sig við neitunina. Þar segir hann:
Maðurinn var handtekinn mánuði síðar og játaði fyrst árásina en dró játninguna síðan til baka og sagðist hafa verið búinn að nota mikið af áfengi, amfetamíni og rítalíni og því ekki verið með réttu ráði þegar hann var yfirheyrður í fyrra sinnið.
Eðlilega spyr maður sig hvar dómgreindin var stödd þegar dómarar mátu neitun manns sem viðurkennir að hafa verið ruglaður vegna mikillar neyslu fjölbreyttra vímuefna, mun sterkari en framburð vitna,(tiltekið í felirtölu), sem líklega hafa ekki verið þjökuð af vímuefnaneyslu. Og eins og fyrr segir, Ef dómarar voru í óvissu, bar þeim að eyða þeirri óvissu með nýjum yfirheyrslum yfir vitnunum. En dómarar hæstaréttar fá í það minnsta -20 í einkun fyrir rökfærni í eftirfarandi setningu:
Einnig yrði að líta til þess að við rannsókn á vettvangi og fatnaði mannsins hefði ekkert komið fram um að hann hefði framið það brot sem hann var ákærður fyrir.
Upphaf þeirrar tilvitnunar sem þarna er vitnað í, segir að: Maðurinn var handtekinn mánuði síðar þ. e. mánuði eftir afbrotið. Að búast við að sönnun eða vísbending finnist í fötum mánuði eftir afbrot, er líklega ný tegund af rökhyggju, sem byggð er á sápufroðu.
Sá dómur sem hér um ræðir er til mikillar smánar fyrir Hæstarétt. Dómarar sem teljast þurfa rúmlega 100.000 króna launahækkun, hljóta að þurfa að sýna virkari þrá eftir að óyggjandi sannleikur felist í dómum þeirra.
![]() |
Sýknaður af árásarákæru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2011 | 09:01
Eitthvað virðist dómgreindin löskuð
Maður á erfitt með að verjast brosi, þó málefnið sé mjög alvarlegt. Sjávarútvegurinn er skuldsettur upp á nokkur hundruð milljarða, en formaður LÍÚ segir að allur ísfiskflotinn sé kominn yfir 30 ár og orðinn úreltur. Það þýðir í raun að skipin eru nánast verðlaus, en eru samt veðsett fyrir háum fjárhæðum.
Þá segir í fréttinni að formaður LÍÚ segi að: "ef aflétt yrði óvissunni um sjávarútveginn myndu fljótlega skapast hundruð starfa í mörgum atvinnugreinum." Það eina sem draga má ályktanir af, um fjárfestingar, samkvæmt fréttinni, er að smíða þurfi ný skip fyrir ísfiskflotann. Það segir formaður LÍÚ að sé fjárfesting upp á 1,8 - 2,2 milljarða, með smíði á nýju ísfiskskipi. 25 slík skip myndu þá kosta 45 - 55 milljarða, en formaður LÍÚ segir: "fjárfestingarþörf upp á 16 milljarða í útgerðinni,".
Ég velti fyrir mér hvernig formaður LÍÚ ætlar stórskuldugri útgerð, á barmi fjöldagjaldþrots, að eigin sögn, að fjárfesta til sköpunar mörg hundruð starfa í mörgum atvinnugreinum. Af orðum formanns LÍÚ má álykta að hann telji núverandi skuldir útgerðarinnar ekki sjálfbærar, þurfi þær að greiðast af aflatekjunum einum. Af því muni leiða fjöldagjaldþrot núverandi útgerðarfélaga.
Sé raunveruleikinn sá sem formaður LÍÚ segir, er þjóðfélagslega nauðsynlegt að hina yfirskuldsettu útgerðir fari í gjaldþrot, og við taki önnur útgerðarfélög, með minni skuldsetningu, sem geti greitt þjóðinni eðlilegt afnotagjald af auðlindinni. Samneysla okkar gerir að sjálfsögðu þá kröfu að þessi stærsta þekkta auðlind þjóðarinnar leggi eðlilega til samneyslunnar. Slíkt gerist ekki ef þær útgerðir sem sækja hið takmarkaða magn sem auðlindirnar gefa, eru svo skuldsettar að aflavermætið dugi vart fyrir beinum útgerðarkostnaði og afborgunum lánsfjár. Þjóðin getur ekki sætt sig við að samneyslan sé svelt til óhóflegs samdráttar, svo yfirskuldsettar útgerðir geti greitt innlendum sem erlendum fjármagsneigendum afborganir og vexti af lánsfé sem komið er yfir öll skynsemismörk. Slíkar útgerðir eru nú þegar gjaldþrota.
![]() |
Skapar hundruð starfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.9.2011 | 17:29
Skuldir heimila og smáfyrirtækja fyrr og nú.
Þegar bankakerfið okkar hrundi haustið 2008, urðu skuldir margra óviðráðanlegar. Þar fór saman nánast tvöföldun hinna ólögmætu gengistryggðu lána og umtalsvert verðbólguskot, sem olli umtalsverðri hækkun verðtryggðra lána.
Hrun bankanna má að miklu leiti rekja til óvitaskapar stjórnenda þeirra og mikils þekkingarleysis á mikilvægi hlutverks stærstu viðskiptabanka þjóðar, í stöðugleika í efnahagslífi hennar. Fram að einkavæðingu bankanna, höfðu pólitískir stjórnendur þjóðarinnar geta haft ákveðna stjórnun á stærstu bönkunum, þar sem þeir voru ríkisbankar. Seðlabankinn var einnig undir beinni pólitískri stjórnun. Afleiðing þessa var sú að efnahagslífi okkar hafði aldrei verið stjórnað frá grundvelli sjálfstæðis og sjálfbærni. Þeir þættir eru of plássfrekir til að verða reifaðir hér, en þarfnast samt umræðu, þó síðar verði.
Þegar sú kjölfesta sjálfstæðs efnahags þjóðarinnar, sem ríkisbankarnir voru, var seld aðilum sem enga þekkingu höfðu á skyldum og hlutverki þessara stærstu banka þjóðarinnar, var fjárhagslegu sjálfstæði landsins stefnt í hættu. Einkanlega þar sem stjórnmálamenn þjóðarinnar höfðu lengst af ekki haft skilning á mikilvægi þess að stýra fjárstreymi þjóðarinnar með jafnvægi tekna og útgjalda sem grunnforsendu.
Segja má að frá miðri 20. öldinni hafi bráðlæti og skortur á langtímaviðhorfum stöðugt hrjáð þessa þjóð. Fyrsta sjálfstæða fjármagnið sem við fengum, var styrkur í stríðslok, sem fenginn var með hjálp Bandaríkjamanna. Fyrsta efnahagsstjórnun okkar var því ekki byggð á sjálfaflafé, heldur fjármunum sem bárust til okkar. Af þessu leiddi það pólitíska viðhorf að skapa þyrfti frelsi til að kaupa erlendir frá allt sem fólk langaði til að eignast. Hugsunin um að afla fyrst peninga til að kaupa fyrir, náði ekki fótfestu, vegna þess gjafafjár sem við höfðum fengið.
Á sjötta áratug 20. aldar beindust kraftar landsmanna mest að uppbyggingu sjávarútvegs og raforkuframleiðslu. Á sjöunda áratugnum var skipakostur ört stækkandi, einkanlega vegna mikillar síldveiði. Keppst var við að fjárfesta í skipum, verkunarstöðvum og síldarbræðslum, fyrir allt það fé sem til var laust auk nokkurs lánsfjár. Ekkert var hugsað fyrir jafnvægisþætti veiðanna, svo langtímagrundvöllur gæti skapast fyrir þeim fjárfestingum sem farið hafði verið út í. Afleiðingar þess urðu hrun síldarstofnsins og þar með hrun þeirra tekna sem áttu að greiða fjárfestingarnar.
Þegar síldin var farin, hrundu líka tekjur þjóðarinnar. Við sátum uppi með mikinn fjölda skipa sem ætluð höfðu verið til nótaveiða. Einnig voru nokkrar síldarbræðslur sem ekkert höfðu að gera og gátu þar af leiðandi ekki endurgreitt lánin sem þær höfðu fengið til uppbyggingar. Lánin sem þeir fengu, var það fjármagn sem náðist að spara saman með því að takmarka innflutning á almennum neysluvarningi. Þar sem þessum peningum hafði verið ráðstafað í fjárfestingu sem ekki skilaði af sér tekjum, var ljóst að það fjármagn kæmi aldrei aftur til baka.
Segja má að það ferli sem hér hefur verið lýst, hafi verið nokkuð ríkjandi í sambandið við efnahagsstjórnun hjá okkur. Atvinnuhættir hjá okkur eru ekki skipulagðir út frá langtímamarkmiðum. Viðhorfin virðast oftast vera, að gera átak til að græða fljótt mikla peninga. Allir þessir þættir hafa misfarist, þannig að fjárfestingar í atvinnusköpun hafa að sára litlu leiti skilað sér aftur til þjóðarinnar í marði af þeirri atvinnustarfsemi sem fjárfest var í. Af þeirri ástæðu m. a. hefur þjóðin ekki geta skapað sér tekjuafgang til að geta fjárfest fyrir sjálfaflafé.
Eitt þessara átaksverkefna var ímyndaður bjargvættur bættra lífskjara til sveita, með aukinni loðdýrarækt. Ekkert var hugsað fyrir því að menn þyrftu að læra meðhöndlun þessara dýra. Ekkert var heldur hugsað fyrir fjárstreymi þessarar starfsemi. Rokið var af stað með mikinn fjölda loðdýrabúa.
Fyrstu búin fengu lán fyrir stofnkostnaði. Þar fyrir utan fengu þau svonefnt rekstrarlán, sem var til fóðurkaupa og fleiri þátta er vörðuðu eldið sjálft. Rekstrarlán þessi voru veitt þannig að lánin áttu að greiðast niður með sölu skinna af dýrunum. Sölutekjurnar áttu að greiðast inn til bankans, sem tæki af þeim afborgunarhluta lánsins en legðu afganginn inn á veltureikning búsins.
Það sem bankamenn klikkuðu á, var að flest fyrstu búanna seldu nánast engin skinn. Meginhluti dýranna frá þeim seldust sem lífdýr og greiðslur vegna lífdýrasölu, bárust ekki til viðskiptabanka búanna. Nánast ekkert kom því til endurgreiðslu rakstrarlána fyrstu árin, sem þá söfnuðust upp og urðu bændum óviðráðanleg.
Af hverju rek ég þessa sögu hér. Það er vegna þess að upphaflegi vandi loðdýrabænda varð að nokkru til vegna mistaka bankamanna; mistaka sem varð að ókleifum múr fyrir bændur. Skuldavanda sem ríkissjóður varð að koma að lausn á, svo forða mætti heimilum frá gjaldþroti og lánastofnunum frá illviðráðanlegum skakkaföllum. En hvernig var þetta mál leyst?
Skuldavandinn nú er m. a. til kominn vegna, mistaka eða óraunsæis bankamanna, sem valdið hefur heimilum landsins ókleifum skuldamúr, sem er fyrst og fremst afleiðing af hreinum glannaskap bankamanna. Samlíkingin með skuldavanda loðdýrabúa er því alls ekki óraunhæf. Því tel ég hægt að líta í átt til þeirra lausna sem ríkissjóður og Alþingi lögðu til við lausn á vanda loðdýrabúa.
Það var í árslok 1989 sem Alþingi samþykkti lög nr. 112/1989, um skuldabreytingar vegna loðdýraræktar. Lög þessi voru einungis tvær greinar og 1. greinin hljóðaði svo:
"Ríkisstjórninni er heimilt að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð lán sem loðdýrabændur taka í stað lausaskulda sem myndast hafa vegna loðdýrabúskapar þeirra á árunum 1986-1989, samtals allt að 300 m.kr.
Lánin skulu veitt til fimmtán ára, verðtryggð með lánskjaravísitölu og 5% vöxtum. Endurgreiðslutími lánanna skal vera tólf ár.
Sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs skal því aðeins veitt að með henni reynist unnt að koma rekstri viðkomandi bús í viðunandi horf eða forsendur séu fyrir hendi fyrir lántakanda að greiða af skuldum sínum með öðrum hætti. Hún má ná til allt að 60% af þeim lausaskuldum hvers bónda sem uppfylla skilyrði 1. mgr., enda breyti viðkomandi lánardrottnar því sem eftir stendur í lán til a.m.k. átta ára gegn þeim tryggingum sem þeir meta gildar.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins skal hafa á hendi umsjón með framangreindum skuldbreytingum.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um lánsupphæðir til hvers loðdýrabónda, svo og önnur þau skilyrði fyrir lánveitingum er þurfa þykir, svo sem veðskilmála."
Þarna gengur ríkissjóður, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, í sjálfskuldarábyrgð fyrir allt að 60% þeirra lausaskulda sem myndast höfðu. Til viðbótar þessu kom svo 2. gr. laganna, en hún hljóðaði svo:
"Þrátt fyrir ákvæði um tryggingar fyrir lánum o.fl. í lögum nr. 45/1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, er Stofnlánadeild heimilt að fella niður verðtryggingu og vexti, og fresta greiðslu afborgana, af lánum til bænda vegna loðdýrabúra á næstu fimm árum. Þá er Stofnlánadeild heimilt, þegar hagsmunum hennar er betur borgið með þeim hætti, að fella niður hluta höfuðstóls annarra veðskulda loðdýrabænda."
Þarna var bændum skapað 5 ára svigrúm til að takast á við uppsöfnun lausaskulda. Þeim var ekki boðið upp á frystingu greiðslna, sem söfnuðust upp á tímabilinu. Nei, þeim var fært með lögum, niðurfellin vaxta og verðtryggingar af fasteignalánum sínum um 5 ára skeið, en eftir það kæmi lánið aftur til greiðslna afborgana á sömu upphæð eftirstöðva sem það var þegar greiðslur voru stöðvaðar. Engin uppsöfnun vaxta eða verðtryggingar bættist við á tímabilinu.
Í lokasetningu 2. gr. segir að Stofnlánadeild sé heimilt, þegar hagsmunum hennar er betur borgið með þeim hætti, að fella niður hluta höfuðstóls annarra veðskulda loðdýrabænda."
Á árinu 1992 er þessu ákvæði breytt svolítið með lögum nr. 108/1992, en þar segir svo:
"Í stað síðari málsliðar 2. gr. laganna kemur: Þá er Stofnlánadeild heimilt að fella niður allt að helmingi af heildarskuldbindingum sem stofnað hefur verið til hjá deildinni vegna loðdýraræktar. Heimildin nær til afskriftar á lánum og niðurfellingar vaxta eftir nánari reglum sem landbúnaðarráðherra setur að höfðu samráði við stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins."
Þarna er orðin opin óskilyrt heimild til niðurfellingar að allt að helming lána loðdýrabænda, vegna loðdýrabúa sinna. Þarna voru menn að verki sem gerðu sér fulla grein fyrir þeim vanda sem það skapaði fjárstreymi um þessa atvinnugrein, ef henni væri um langan tíma haldið í fjötrum vanskila og jafnvel gjaldþrotaferlis. Því var höggvið á hnútinn sem myndast hafði, án þess að bændur sjálfir hefðu beinlínis búið hnútinn til.
Þegar hrunið varð, haustið 2008, og skuldavandi margra heimila hart nær tvöfaldaðist, átti stjórnkerfið til, eins og hér hefur verið sýnt fram á, ferli til lausnar yfirhlaðinna skulda. Lausnarmótel sem afar skamma stund átti að taka að gera virkt. Og, þar sem 65. gr. stjórnarskrár hefst á orðunum:
"Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti." átti ríkisstjórn og Alþingi ekki að eiga aðra möguleika en að veita heimilunum sömu úrlausn og loðdýarbændum var veitt á sínum tíma. Hvorki heimilin né loðdýrabændur sköpuðu þær aðstæður sem ollu því að skuldamálin fóru úr böndunum. Báðir eiga hins vegar stjórnarskrárvarinn rétt á því að lausnir á samskonar vanda þeirra séu byggðar á grundvelli jafnræðis og virðingar fyrir mannréttindum.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur