Ég hef ekki trú á að Steingrímur hafi orðið óheiðarlegur við að setjast í ráðherrastól. Ég óttast frekar að hann skilji ekki flókna réttarstöðu okkar í málinu og treysti um of á ráðgjafa sem hugsa meira um fjármunalegan hreyfanleika en heildarhagsmuni samfélags okkar og þjóðarinnar sem heildar.
Mér blöskraði líka alveg þegar ég heyrði í þættinum "Ísland í dag" á Stöð2, er Ólafur Arnarson, kynntur sem hagfræðingur, lagði að jöfnu réttarstöðu innlánseigenda hjá Landsbanka og réttarstöðu almennra kröfuhafa, sem höfðu lánað bankanum peninga.
Innlán eru alltaf forgangskrafa, vegna þess að þau eru einungis í geymslu hjá bankanum á fullri skilaábyrgð hans, en peningar sem bankinn hefur fengið að láni, gegn útgáfu skuldabréfs, verða að eignarfé bankans. Í stað peninganna fær lánveitandinn skuldabréfið sem ávísun á endurgreiðslu peninganna síðar.
Á þessum tveimur formum er reginmunur, réttarfarslega og afar hjákátlegt að heyra menn fjalla um jafnstöðu almennra kröfuhafa, við hlið innlánseigenda.
Er virkilega svona lítið til af heiðarlegu fólki, með heilbrigð sjónarmið, á þessu fallega landi okkar?
![]() |
Blekkingar, heimska og hótanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.6.2009 | 18:34
Minnisblað, hefur ekkert ákvörðunargildi, er einungis áminning um hugsanlegan áfanga að endamarki.
Á undanförnum árum hef ég æði oft talað um óvitaskap hjá stjórnendum fjármálafyrirtækja. Sá óvitaskapur hefur nú heldur áþreifanlega sannað sig, þó orðum mínum hafi ekki verið veitt nein athygli þá. Ég vænti því ekkert meiri athygli nú, þegar ég vek athygli á skelfilegum óvitaskap stjórnmálamanna, varðandi skuldsetningu þjóðarinnar út af IceSave reikningum Landsbankans.
Eins og málið virðist liggja fyrir; ég segi VIRÐIST, því fjölmiðlar hafa ekki enn leitað nothæfra skýringa á þeim kröfugerðum sem Bretar og Hollendingar leggja fram. En svo virðist sem hvorug þessara þjóða hafi lagt fram kærur eða kröfur á hendur stjórnendum eða stjórn Landsbankans, vegna þess tjóns sem þessir aðilar ollu í viðkomandi löndum. Svo virðist sem stjórnvöld þessara þjóða hafi EINGÖNGU lagt fram kröfur gagnvart Íslenska ríkinu, en ríkissjóður Íslands ER EKKI AÐILI AÐ ÞESSU MÁLI.
Íslensk stjórnvöld hafa ALDREI VERIÐ KRAFIN UM AÐ UPPLÝSA um, hvaðan þeim kemur sá réttur að telja ríkissjóð Íslands bera skaðabótaábyrgð gagnvart þriðja aðila, vegna starfsemi Landsbankans í öðrum löndum. Hvers vegna voru Bresk og Hollensk stjórnvöld algjörlega ófáanleg til að leggja þessa deilu fyrir, þar til bæran hlutlausan dómstól? Svarið er mjög augljóst.
Ríkissjóður Íslands er ekki aðili að því tjóni sem fólk í þessum löndum varð fyrir. Ekki frekar en stjórnvöld annarra landa eru ekki ábyrg fyrir því tjóni sem Íslendingar verða fyrir, af völdum einstaklinga eða fyrirtækja (gervifyrirtækja), sem skráð eru í öðrum löndum, látum við glepjast af gilliboðum þeirra fjárglæframanna sem bjóða okkur skjótfenginn gróða. Við berum sjálf skaðann þegar í ljós kemur að innihald gilliboðanna var ekkert. Þessa grundvallarreglu þekktu ráðgjafar Breskra og Hollenskra stjórnvalda vel, og voru því fullviss um að hlutlaus dómstóll mundi sýkna Íslenska ríkið af öllum kröfum þeirra.
Sá aðili sem hótar að taka nauðbjargir frá þeim sem hann gerir vafasamar kröfur á; kröfur sem hann þorir ekki með fyrir hlutlausan dómstól, er ekki að leita réttlætis. Hann væri vís til að drepa eða ointa börnin til að fá föðurinn til að greiða. Er þetta ekki sama aðferðin og glæpaheimurinn notar til að ná sér í peninga?
Hver skildi svo vera ástæðan fyrir því að þeir bjóða afborgunarleysi á þessum lánum í mörg ár? Hún er afar augljós. Þeir vita sem er, að ef hægt verður að pressa í gegn formlega samþykkt fyrir þessum lánum, og fólkið í landinu verður ekki vart við áhrif frá láninu um einhvern tíma, fennir í slóð þeirra sem beittu óheiðarlegum og ódrengilegum aðferðum við þvingunarsamningana. Þegar svo kemur að því að greiða þarf af lánunum, og hinar alvarlegu afleiðingar koma í ljós, er liðinn svo langur tími frá samningsgerðinni að endurupptaka eða áfrýjun er útilokuð. Afkomendur okkar sitja því uppi með þessa vitleysu stjórnvalda, í ofanálag við hörmulegar vitleysur hinna óvitanna, í fjármaláheiminum.
Eins og staðan er í dag, sé ég ekki fram á að lýðveldi á Íslandi nái því að veraða 100 ára; stór spurning hvort það verði 80 ára, nema þjóðin hristi af sér aumingjaskapinn og hreinsi alvarlega til að pólitíkinni og stjórnsýslunni.
![]() |
Minnisblaðinu stöðugt veifað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég hélt að við værum með þokkalega menntað fólk á Alþingi og að í framvarðarsveit stjórnsýslunnar væri einnig vel menntað fólk. Reyndar má vel vera að svo sé, en opinberlega er nú orðið afar ljóst að sú menntun sem þetta fólk hefur hlotið, hefur ekki aukið skynsemi þess eða dómgreind.
Sífellt talar þetta fólk um "skuldir okkar Íslendinga", þegar fjallað er um glæfralega stjórnunarhætti stjórnenda sjálfstæðs hlutafélags. Að vísu er þetta hlutafélag skráð hér á landi, en AÐ ENGU LEITI á ábyrgð ríkissjóðs.
Þá er því ekkert haldið til haga, að Íslensk lög eða stjórnunarhættir, gilda ekki um starfsemi íslenskra fyrirtækja á erlendri grundu. Í slíkum tilvikum gilda lög hvers lands fyrir sig. Í tilfellum Landsbankans, varðandi IceSave reikningana, giltu lög Bretlands og Holands um starfsemi bankans í þeim löndum.
Eftirlitsskykldan var því ALFARIÐ á ábyrgð stjórnenda fjármálastarfsemi í þessum löndum, en á ENGAN hátt hægt að tengja hana ábyrgð ÍSLENSKS samfélags. Vankunnátta, vanþroski og helber aumingjaskapur svokallaðrar "menntaelítu" okkar, verður þess hins vegar valdandi að meginþorri þessara kunnáttulausu og vanþroskuðu aumingja, ÞORA EKKI að standa með þjóð sinni og verjast ódrengilegu áhlaupi þekktra ofbeldisafla.
Sagt hefur verið, að ef við Íslendingar stæðum á rétti okkar og færum með kröfu Breta og Hollendinga fyrir, til þess bæran dómstól, værum við að vega að undirstöðum Evrópska fjármálakerfisnins. Enginn þessara vanþroskuðu aumingja okkar virðast átta sig á að áhættan af slíku er ALLS EKKI hjá okkur Íslendingum, og því engin ástæða fyrir okkur að taka á okkur óþægindi vegna vitlausra lagaforsendna hjá ESB samsteypunni. Við áttum engan þátt í samningu slíkra laga og því verður engin sök felld á okkur vegna hættulegra áhrifa frá þeirri vitleysu, í þeirra eigin lögsögu.
Sú staðreynd, að öll áhætta málsóknar okkar vegna framkomu Breta, voru þau áhrif sem slíkt hefði haft á fjármálaumhverfi Breta sjálfra; sem og aðrar þjóðir innan Evrusvæðisins. sýnir þessi stað, lítið þjálfuðum skákmanni, hve gífurlega sterka stöðu við höfðum í þessu máli, starx í upphafi. Við höfum í raun afar litlu tapað af réttarstöðu okkar enn, því þær kröfur sem uppi eru, snerta á engan hátt ríkissjóð Íslands, heldur beinast ALGJÖRLEGA að Íslensku hlutafélagi, sem ríkissjóður á engan eignarhlut í, og bar ENGA ÁBYRGÐ á starfsemi þessa hlutafélags á erlendri grundu, þar sem Íslensk lög eða reglur náðu ekki til afskipta af daglegum rekstri þess.
Það er afar sorglegt, þegar maður hlustar ítrekað á helstu fyrirsvarsmenn þjóðfélags okkar, og flesta þá menntamenn sem fjölmiðlar ræða við, telja háskalega starfsemi Landsbankans á erlendri grundu, vera á ábyrgð ríkissjóðs okkar. Þessir menn opinbera svo alvarlega heimsku sína að þeim ætti ekki að vera treystandi fyrir ábyrgðarmiklu stjórnunarstarfi; og alls ekki til að fara með fyrirsvar eða ábyrgð ríkismálefna.
Það mætti skrifa langa greinargerð um þá heimsku sem viðgengist hefur í öllum þessum IceSave umræðum. Kannski verður það gert síðar, en hér verður látið staðar numið í bili.
Bloggfærslur 8. júní 2009
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 166179
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur