Að ábyrgjast eigin skrif og orð.

Undanfarna mánuði hef ég verið afar hugsandi vegna þeirrar þróunar sem mér hefur fundist vera á siðferði og ábyrgð afmarkaðs hluta fjölmiðlafólks, sem þó er einna mest áberandi. Þessi hópur virðist umgangast mörg viðfangsefni sín af nokkru kæruleysi fyrir eigin orðspori og áberandi virðingarleysi gagnvart mannréttindum þeirra sem fjallað er um.

Ég býst við að það séu fleiri en ég sem finnst að framganga þessa hóps fjölmiðlafólks sé á tiltölulega hröðu breytingaferli, frá kurteislega yfirvegaðri frásögn byggðri á traustum heimildum, yfir í ábyrgðarlausan æsifréttastíl, þar sem ósannindum er flaggað sem traustum heimildum en varin gagnrýni undir hjúp lögverndar vegna nafnleyndar heimildarmanns.

„Ólyginn sagði mér“ var sagnastíll Gróu á Leiti. Hún hélt vel hulinshjáp yfir meintum heimildarmönnum sínum og fannst það jafnast á við árás á sig sjálfa ef frásögn hennar var véfengd. Áþekk staða er fyrir hendi hjá umræddu fjölm iðlafólki nútímans, þar sem sögumanni (fjölmiðlamanni) finnst það nánast eins og árás á hans eigin persónu þegar efast er um sannleiksgildi orða hans, sem einungis styðjast við frásögn þriðja aðila, hins nafnlausa heimildarmanns.

Fréttamennska, í ætt við það sem hér hefur verið vikið að, einkennist iðulega af rætinni ósvífni í garð þolanda. Slíku viðhorfi virðist iðulega beitt þar sem frétt eða frásögn byggist eingöngu á frásögnum, með litlum eða engum dómtækum skjölum til sönnunar.

Kveikjan að því sem í slíkum tilvikum virðist stýra efnistökum fjölmiðlamannsins sem segir frá, virðist iðulega lenda í lægri hvötum en starfsreglur geri ráð fyrir að stjórni. Metnaður framsetningar virðist liggja í lítt duldum ásetningi að koma sem alvarlegustu höggi á þolanda umfjöllunar. Og í hita árásarinnar er í engu gætt laga eða siðferðisreglna eða annarri réttarstöðu þolanda.

Það sem hér að framan er dregið saman er ekki fljótfærnishugsun. Að baki þessu liggur langtíma skoðun á vinnubrögðum þess fjölmiðlafólks sem hvað mest hefur verið áberandi á undanförnum árum.

Nokkrum sinnum hefur undirritaður vakið máls á þessari þróun og þeim óhjákvæmilegu afleiðingum sem vaxandi virðingarleysi flestra fjölmiðla fyrir mannréttindum þolenda umfjöllunar hlýtur að hafa.

Einnig virðist vaxandi misnotkun á gildandi lögum um verndun heimildarmanna, hafa orðið til þess að auðveldlega er hægt að koma í umfjöllun fjölmiðla næsta ómenguðum ósannindum, í skjóli þess að gæta þurfi nafnleyndar heimildarmanns.

Þessari þróun verður að snúa við hið bráðasta áður en fleiri stórslys hljótast af. Já ég hika ekki við að taka svona sterkt til orða því engum vafa er undirorpið að næsta vísvitandi ósannindi fjölmiðla, eða alvarlegur þekkingarskortur fjölmiðlafólks, sem og afar alvarleg þöggun sömu fjölmiðla á mikilvægum og alvarlegum glæfraverkum gagnvart íslensku efnahagslífi og sjálfbærni samfélags okkar, hafa að mati undirritaðs valdið umtalsverðu tjóni á efnahag þjóðarinnar.

Tjáningarfrelsið er eitt mikilvægasta vopnið sem almenningur hefur til varnar kúgun og yfirgangi valdhafanna, er af tilteknum hópi fjölmiðlafólks alvarlega misnotað. Af þessu leiðir að tjáningarfrelsið, sem er fyrst og fremst mikilvægt fyrir almenning í landinu, er að verða almenningi algjörlega gagnslaus lagabókstafur.

Þróun mála hefur orðið sú undanfarna áratugi, að tjáningarfrelsi almennings hefur stöðugt verið að skerðast. Ástæða þess er sú að fjölmiðlafólk, í dægurmálum og fréttaflutningi, hefur sérstaklega tileinkað sér og sínu starfssviði ákvæði laga um tjáningarfrelsi og viðurkennir í litlu rétt almennings til slíks frelsins.

Það lítur afkáralegt út, frá sjónarhóli hins almenna borgara, þegar fjölmiðlafólk er svo upptekið af mikilvægi eigin notkunar á hugtakinu tjáningarfrelsi, að það beiti umfangsmikilli lokun og þöggun á heilbrigðar og eðlilegar gagnrýnisraddir gagnvart þeirra eigin efnistökum sem og á athafnir opinberra aðila.

Fjölmiðlafólk er yfir höfuð, án spursmáls um raunhæfa þekkingu á viðfangsefninu, sett í hlutverk móttakanda efnis, rannsakanda þess og síðan talandinn efnisins, út frá eigin þekkingarheimi. , tjáningsaðilinn til hlustenda, að nánast öllu sem fjölmiðillinn lætur frá sér fara til almennings í gegnum fréttir eða dægurmál.

Þrátt fyrir að mikil fjöldi fólks hafi á undanförnum áratugum farið í fjölþætta þekkingaröflun eftir þeim mörgu leiðum sem í boði eru til, er það einungis afar fámennur hópur svonefndra „sérfræðinga“ sem fjölmiðlafólk kallar sér til ráðgjafar þegar því finnst þörf á að auka trúverðugleika þess sem það setur fram sem þann sannleika sem hlustendur eiga að tileinka sér og trúa.

Hinir tilkölluðu „sérfræðingar“ leita jafnan engra upplýsinga frá þeim sem greiningarnar unnu. Í sjónhendingu fara þeir yfir samandregnar niðurstöður úr efnisöflun og úrvinnslu aðila sem þeir þekkja lítið eða ekkert til og fella þann úrskurð að niðurstöðurnar séu ekki raunhæfar og jafnvel að þær geti valdið skaða.

Þegar horft er yfir það ferli sem hér hefur verið lýst og það borið saman við hugarfar fjölmiðlamannsins, um mikilvægi þess að tjáningarfrelsið verði ekki skert gagnvart honum, er einkar athyglisvert að sjá hvert viðhorf þessa fjölmiðlamanns er gagnvart þeim niðurstöðum þekkingar sem fyrir hann eru lagðar en eru utan hans þekkingarsviðs.

Leiðir fjölmiðlamaðurinn fram þekkinguna frá þeim aðila sem lagði fram samandregnar niðurstöður yfirgripsmikillar rannsóknarvinnu, til fjölmiðilsins? NEI, fjölmiðlamanninum finnst tjáningarfrelsi þess aðila sem, þekkinguna hefur, ekki eiga að sitja við jafningjaborð með kröfu fjölmiðlamannsins um að hann sjálfur njóti óskerts tjáningafrelsis á hugsunum sínum og meintri þekkingu að mati hans sjálfs.

Getur þjóðfélag sem rekur samfélagsþætti sína af álíka virðingarleysi fyrir raunhæfri þekkingu og opnu tjáningarferli eins og að framan er lýst, með góðri samvisku kallað sig lýðræðislegt samfélag sem beri virðingu fyrir stjórnarskrá landsins og lögteknum fjölþjóðlegum mannréttindum?

Með kveðju, Guðbjörn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband