Fyrst og fremst vanvirðing við forseta okkar

Líklega verður seint toppuð þessi vitleysa flutningabílstjóra, að vanvirða forseta okkar með þessum hætti. Allir vita að hann hefur engin áhrif á gang mála í þeirri pressu sem bílstjórar eru að setja á ríkisstjórn og Alþingi.

Að trufla fund forseta og hádegisverð, með þeim þjóðarleiðtoga sem hvað harðast verður úti vegna yfirgangs nágranna sinna og þagnar heimsbyggðarinnar gagnvart þeim órétti sem þjóð hans er beitt, er fyrst og fremst niðurlægjandi fyrir þjóð okkar og henni til mikillar skammar.

Mér finnst bílstjórar endanlega hafa sýnt það þarna, að þeir hafa enga ráðgjöf í áróðurstækni en láta stýrast af heimskulegum uppþotum. Slík barátta hefur aldrei skilað miklum árangri, því gagnaðilarnir missa virðingu fyrir fólki sem hagar sér svona og leggja því lítið á sig til að vinna að hagsmunamálum þeirra.

Einföld staðreynd sem legið hefur fyrir í nokkra mannsaldra.


mbl.is Bílstjórar fóru með friði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Ekki hægt að vanvirða þann sem ég ber ekki virðingu fyrir... hehe

Johnny Bravo, 22.4.2008 kl. 14:21

2 Smámynd: Krummi

Það ríkir lýðræði á Íslandi og ef fólk er eitthvað ósátt þá getur það bara kosið eitthvað annað næst.

Krummi, 22.4.2008 kl. 15:48

3 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Baddikeli! Ég nefndi enga persónu í mínum pistli. Ég nefndi æðsta sameiningartákn lýðræðsi okkar, forsetann. Getir þú ekki virt þetta tákn, er það að sjálfsögðu þitt vandamál, sem óhjákvæmilega setur þig afar neðarlega hjá þeim sem virða kurteisi og eðlilega samskiptahætti.

Sama svarið á við þig Johnny.

Jón Grétar!  Ég er sammála þér að þú þurfir að leiðrétta aðeins Af ummælum þínum að dæma virðist þú þurfa að leiðrétta innibirgða reiði, út í einhverjar aðstæður sem þú hefur ekki enn haft kjark til að hreinsa út. Þeir þættir hreinsast ekki með því að troða illsakir við stjórnvöld eða aðra sem ekki eiga hlut að því sem veldur reiði þinni.

Lílega gæti ég kennt þér ýmislegt, því ég hef í tæp 40 ár fengist við þjóðfélagslega gagnrýni og  nokkuð mörgu góðu komið til leiðar án mikils trumbusláttar eða lúðrablásturs. Það hefur alla tíð sýnt sig að hávaðinn og fyrirgangurinn er ekki það sem skilar bestum árangri, heldur skynsemi, ásamt markvissum og traustum rökum.

Það mikilvægasta, sem ævinlega þarf að gæta þegar leita þarf úrbóta hjá atvinnurekendum eða stjórnvöldum,  er að ævinlega sé til staðar leið fyrir þessa aðila til að koma standandi frá  átökunum.  Gæti menn ekki þessa,  fá þeir ævinlega afar lítið af draumum sínum uppfylltum, en þurfa oft að sleikja sárin.

Svona er nú raunveruleikinn og hann breytist ekki þó margir hafi óafgreidda innibyrgða reiði í farteski sínu.   Gangi þér vel. 

Guðbjörn Jónsson, 22.4.2008 kl. 16:27

4 Smámynd: Krummi

Það meiga ALLIR bjóða sig fram til alþingis, meira að segja þú Jón Grétar

Krummi, 22.4.2008 kl. 17:03

5 identicon

Krummi, Já það er rétt hjá þér að það mega allir bjóða sig fram til Alþingis ef þú uppfyllir ákveðin skilyrði og helst þaftu að eiga lágmark 20-30 milljónir sem þú ert tilbúinn að borga með þér í framboðið. Eins og leikreglurnar eru núna þá er ekki nema brot af Íslendingum sem GETA það.

Glanni (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 19:43

6 identicon

PS.  Ég hef aldrei borið virðingu fyrir Ólafi Ragnari Grímssyni, mér fannst hann með endemum leiðinlegur pólítíkus og eins finnst mér hann "uppskrúfaður" sem forseti og hann virðist ekki vera í nokkrum tengslum við fólkið í landinu nema þá helst fjármálastofnanirnar

Glanni (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 19:48

7 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll aftur Jón Grétar!  Ég get tekið undir margt af því sem þú segir þarna um það sem við getum kallað "kerfið okkar". Þar hafa áhrifaöflin komið sér upp ákveðnu siðamunstri sem fólk verður að falla inní ef það ætlar að njóta náðar hjá kerfisráðinu. Ég er löngu búinn að sjá þetta, og í raun að sjá að þjóðfélag okkar er mun Sovéskara en Sovétríknin sjálf voru. Aðferðarfræðin sem notuð var til að fjörta fólk í skuldasúpu er þekkt sem aðferðarfræði við múgsefjun, en hún byggist á að halda fólki uppteknu við spennuhugsun og að alltaf sé mikið að gerast. Í slíku umhverfi eiga ráðamenn auðvelt með að brjóta á fjöldanum, því áður en fjöldinn hefur myndað samstöðu til að beita sér gegn ranglætinu, er komið nýtt ranglæti í umræðuna og tekur eldinn frá fyrra málinu.

Í slíku umhverfi vex streita líka fljótt.  Hægt væri að fjalla mikið meira um þessa þætti en ég get ekki gert meira af því í dag, heilsu minnar vegna.

Það voru nú ansi margir góðir molar í því sem ég hef komið til leiðar. Má þar t. d. nefna hugmyndafræðina í skuldbreytingum lána, óformlega nauðasamninga, að ekki megi bjóða upp venjulegt innbú hjá fólki, að hanna formatið sem Ráðgjafastofa heimilanna er byggð á og margt fleira sem ég nenni ekki að telja upp núna.  Allt kostaði þetta mikil átök og harðar rökræður en ævinlega tókst að forðast múgæsingu. Það var stærsti þátturinn í að farsælar lausnir fengust.

Gangi þér vel. Það eru góðir punktar í því sem þú skrifaðir núna síðast. 

Guðbjörn Jónsson, 22.4.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 164820

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband