Varla vandamál að selja íslenskan þorsk

Miðað við þann samdrátt sem orðið hefur á framboði og framleiðslu íslensks þorsks á undanförnum áratug, eru varla erfiðleikar að selja þessi kíló sem Svisslendingar vilja ekki.

Það er athyglisverð opinberun um litla þekkingu á meginstoðum atvinnulífs í viðskiptalandi, ef innflytjendur og seljendur íslenska fisksins í Sviss vita ekki að fiskveiðar á Íslandi hafa verið stundaðar með sjálfbærum hætti alla tíð. Mér finnst þessir viðskiptaaðilar sýna athyglisverða fáfræði og ótrúlega lítinn vilja til að kynna sér og kynna neytendum hvaða gæðavöru þeir eru að selja.

Getur verið að þeir séu búnir að fyrirgera trausti neytenda á þeim upplýsingum sem þeir gefa sjálfir um þær vörur sem þeir eru að selja?  Sé það svo, ættu þeir fyrst og fremst að líta í eigin barm, en ekki gera kröfur á þá þjóð sem í áratugi hefur verið þekkt er fyrir að vera bestu fiskframleiðendur í heimi, um að þeir láti aðila sem takmarkaða þekkingu hafa, fá að leggja gjald á framleiðsluna fyrir stimpil sem engu breytir um áratuga gæði íslenska fisksins.

Það er nægur markaður fyrir þorskinn okkar í heiminum þó Svisslendingar vilji hann ekki.              


mbl.is Lokað á villtan þorsk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við skulum nú ekki vera svo heimatamir og halda að þorskurinn bara renni út eins og heitar lummur. Á mörgum stöðum og jafnvel veitingahúsum erlendis eru þeir hættir að selja þorsk.

Austursjóþorskur er að eyðast út og þetta hefur verið mikið til umræðu sérstaklega á Norðurlöndum. Þorskur er þorskur, og sama hvar hann kemur frá. Íslenskur eða ekki, þá er staðreyndin sú að fólk er farið að hugsa sig um áður en það verslar fisk og annað.

Það er bara að sjá till þess að merkja þorskinn eins og kúninn vill hafa hann. Það er sama lögmál um fisk eins og aðra vöru. Viðskiptavinurinn ræður.

gunnar (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 11:02

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Sæll Gunnar!  Þakka þér fyrir innlitið og athugasemdina. En mig langar til að spyrja þig hvort þú vitir um einhverjar birgðir af óseldum þorski hjá okkar?  Ég veit að það er hægt að selja töluvert af þorskinum okkar, einkanlega af því að hann er veiddur í svo hreinum sjó.

Þó þorskkvótinn yrði aukinn um 100 þúsund tonn, myndu ekki safnast upp neinar birgðir hjá okkur.  Eigum við að fara að skjálfa yfir sérvisku Svisslendinga?  Ekki ég:

Guðbjörn Jónsson, 10.8.2008 kl. 13:17

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Gleymist okkur kannski að leita uppruna þessarar ákvörðunar?

Hafró hefur boðað það leynt og ljóst að ástand þorskstofnsins við Ísland sé svo alvarlegt að sé ábyrgðarhluti að veiða nema þriðjung þess afla sem við drógum á land fyrir aldarfjórðungi!

Hefur fjallaþjóð eins og Sviss betri upplýsingar til að byggja á?

Árni Gunnarsson, 10.8.2008 kl. 23:40

4 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Góðir punktar hjá þér Árni. Takk fyrir.

Guðbjörn Jónsson, 11.8.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 164810

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband