Óhugnanleg frétt um ásetningsmorð á saklausum borgurum

Ef einhver hefur efast um ásetning ísraelsmanna um að drepa samklausa borgara annars ríkis, þá er staðfestingu þess að fá í þessari frétt. Í henni er staðfest að Ísraelsher lagði á sig umtalsverðan kostnað og fyrirhöfn, til að ÆFA innrás á annað menningarsamfélag, utan landamæra ríkis þeirra.

Í fréttinni segir að allt að 300 þúsund manns hafi særst á Gasa á fáeinum dögum. Athyglisvert, í ljósi þess að þetta er svipuð tala og fjöldi Íslendinga er. Þetta jafngildir því að Ísraelsher hafi sært eða limlest nánast ALLA Íslensku þjóðina á u. þ. b. tveimur vikum.

Eru Íslensk stjórnvöld tilbúin að horfa þegjandi á svona framkomu öflugs herveldis, gagnvart fólki sem það hefur kúgað í áratugi?  Er það manngildið, sem býr í brjóstum stjórnmálamanna okkar og þá sérstaklega ráðherrana? Að rétt aðeins orða það, svona eins og fyrir siðasakir, að þetta sé óheppileg framkoma hjá Ísraelsher.

Ísraelar segjast vera Guðs útvalda þjóð.  Er þetta skilningur þeirra á mannkærleika Guðs?  EÐA - er ríki þeirra stjórnað af mönnum sem bera djúpt hatur til annarra kynþátta; og þá kannski sérstaklega þess kynþáttar, sem á árþúsunda sögulegan rétt til landsins sem þeim var fengið til afnota.

Heimsbyggðin getur ekki lengur horft á þessa atburði eins og leikmynd. Þarna er um raunveruleika að ræða, sem öllu siðuðu fólki er smán að, ef ekki verður VARANLEGA stöðvaður yfirgangur ísraela gagnvart Palestínumönnum.                        


mbl.is Æfðu innrásina í átján mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er tvennt í þessu, annaðhvort ertu ekki meðalgefinn og fattar ekki að hér er um ritvillu að ræða, og þarna ætti að standa 3000, eða þú ert ekki meðalgefinn og heldur að þessi nauðgun þí á staðreyndum skilji eftir sig meiri samúð með hryðjuverkamönnum Hamas.

Hilmar (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 22:50

2 Smámynd: Þorgrímur Gestsson

Sá sem ber í bætifláka fyrir það að einum besta her heimsins er beitt gegn mönnum með nokkrar heimasmíðaðar eldflaugabyssur er minna en meðalgefinn. Sá sem getur horft upp á sundursprengd lík og blóðugt, stórslasað fólk, karla, konur og börn, borin inn í yfirfull sjúkrahús, bara til þess að deyja, hann er tilfinningalaus. Sá sem reynir enn að finna einhver rök fyrir þeim hryllingi sem þarna er að gerast, skriðdrekum beitt á fólk sem þegar hefur verið girt inni af háum múr svo það getur ekki forðað sér undan sprengjunum, svelt vikum saman, samfélagið eyðilagt, allt lagt í rúst, hann er siðspilltur. Þetta er FÓLK, það er verið að drepa FÓLK, murka úr því lífið, þetta er þjóðarmorð, sem hefur í rauninni staðið í  60 ár. Enda má sjá á ritsmíðum þessara manna að þeir eru ekki burðugir.

Þorgrímur Gestsson, 4.1.2009 kl. 23:34

3 identicon

Af hverju er Ísraelsher jafn "góður" her og raun ber vitni Þorgrímur? Jú, af því að þeir hafa meiri æfingu en aðrir herir. Því enginn her hefur þurft að berjast jafn oft og jafn lengi gegn "fólki" sem hefur það á stefnuskránni að eyða heilu þjóðfélagi.

Engin þjóð hefur þurft að þola jafn takmarkalausar árásir hryðjuverka"fólks" og Ísrael. Það gildir jafnt innan sem utan landamæra Ísrael. Og við skulum muna það, að þessi þjóð barðist ein og óstudd þar til ríkisstjórn Richard M. Nixon ákvað að veita henni stuðning árið 1973.

Kannski það sé málið, ykkur vinstrimönnunum hefur alltaf sviðið að skjólstæðingar Sovétssins hafi tapað öllum stríðum gegn þessari fámennu þjóð eins oft og illa eins og sagan sýnir, og tengingin við hið illa í Bandaríkjunum hafi verið það sem gaf ykkur hina endanlegu ástæðu til að gefa hatrinu lausan tauminn.

Þorgrímur, ég sé á þinni síðu að þú titlar þig blaðamann. Ef þú ert enn blaðamaður, þá er það "blaðamennska" gamla Þjóðviljans sem spilar í þér. Gamla kaldastríðshatrið sem sumum tekst ekki að komast yfir. 

Þessi tilraun þín til tilfinningakláms er tilgangslaus. Það er búið að sprengja, skjóta, stinga og kyrkja saklaus börn í Ísrael frá því 1929,  án þess að vinstrisinnaðir Þjóðviljablaðamenn heimssins hafi haft neitt sérstakt við það að athuga. 

Hilmar (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 05:27

4 identicon

Hilmar: "Það er búið að sprengja, skjóta, stinga og kyrkja saklaus börn í Ísrael frá því 1929..."

Þú sakar blogghöfund um staðreyndanauðgun en hikar ekki við það sjálfur. Ísrael var ekki til 1929.

Karma (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 10:57

5 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Mbl.is leiðrétti fréttina þannig að hinir særðu eru 3000 en ekki 300 þúsund, eins og stóð fyrst í fréttinni. Þó umtalsverður munur sé á þessum tveimur tölum, breytir það ekki þeim óhæfuverkum sem Ísraelar eru að gera á Gasa.

Guðbjörn Jónsson, 5.1.2009 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 164835

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband