Lánveitingar lífeyrissjóðanna

Í Morgunblaðinu í dag, laugardaginn 16. maí 2009, er frétt á bls. 26, sem greinir frá því að Bakkavör Group geti ekki greitt skuldabréf sem var á gjalddaga í gær (15. maí) að fjárhæð sem næst 20 milljörðum króna.  Meðal kaupenda þessara skuldabréfa voru lífeyrissjóðir "sem nú fá lán sín ekki endurgreidd" eins og segir í fréttinni.

Í fréttinni er lýst hinni lögformlegu innheimtuleið, með fjárnámi og síðar kröfu um gjaldþrotaskipti. Síðan segir í fréttinni:

"Þetta er ekki borðleggjandi ákvörðun fyrir þessa kröfuhafa. Bakkavör Group á engar eignir sem hægt er að ganga að. Stórir lánveitendur eru með veð í rekstrarfélögunum, sem eru undir Bakkavör Group. Lífeyrissjóðir og aðrir sem keyptu skuldabréfin halda því á bréfum án nokkurar trygginga eða veða."   (leturbreyting er mín)

Það vekur athygli mína að lífeyrissjóðir hafi keypt skuldabréf sem ekki höfðu trygg veð.  Ég veit ekki betur en að slík meðferð fjár hjá lífeyrissjóðunum sé með öllu bönnuð, enda eru lífeyrissjóðirnir ekki áhættusjóðir og stjórnendum þeirra ber skylda til að ávaxta höfuðstól sjóðanna á tryggan máta, þar sem höfuðstóllinn er undirstaða lífeyris sjóðsfélaga.

Í ljósi þess sem þarna kemur fram, sem og mörgum fyrri fréttum af gífurlega tapi lífeyrissjóða í bankahruninu, virðist augljóst að stjórnendur þessara sjóða hafi farið æði frjálslega með starfsumboð sitt. Þeir ættu því að sjá sóma sinn í að víkja sjálfviljugir úr starfi NÚ ÞEGAR, svo ekki þurfi að safna liði til að reka þá. Þeir hafa augljóslega nú þegar fyrirgert öllu trausti sjóðsfélaga, til gæslu hagsmuna þeirra. Áframhaldandi seta þessara manna við stjórnun og við rekstur þessara sjóða, er því  augljós yfirgangur gagnvart eigendum þessara sjóða og blind frekja til að halda þeim völdum sem þeir telja sig hafa, í skjóli eigna sjóðsfélaga.

Betra er seint en aldrei, að gripið sé í taumana og hreinsað út úr sukkhreiðri lífeyrissjóðanna. 

       


mbl.is Bakkavör í vanskilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heilbrigð skynsemi tekur undir alla þína speki, enda er meiriháttar gaman að lesa þína gagnrýni, hún er málefnaleg & rétt....!  Augljóst að þeir sem stýrðu lífeyrissjóðunum hafa algjörlega brugðist sjóðsfélögum, bæði stjórnirnar og forstjórar þessara félaga.  Þeir spiluðu með "skúrkunum..." og ég leyfi mér að efast um heiðarleika þessara manna..!  Ég vil að þetta lið verði allt rekið og látið sætta rannsókn, sú rannsókn á að ná 10 ár aftur í tímann...!

kv. Heilbrigð skynsemi

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 16.5.2009 kl. 13:48

2 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Takk fyrir Jakob, og ég tek undir það sem þú segir hér.

Kveðja, G.J. 

Guðbjörn Jónsson, 16.5.2009 kl. 16:42

3 Smámynd: LM

Þú veist nú greinilega lítið um starfsemi lífeyrissjóða og fjárfestingaheimildir þeirra.  Það er enn fullkomlega löglegt fyrir lífeyrissjóð að kaupa fyrirtækjaskuldabréf, þ.e. ef það væru einhver fyrirtæki að selja slík bréf ...

LM, 16.5.2009 kl. 16:47

4 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

LM:  Það efr alveg rétt af þér að láta ekki vita af nafni þínu, miðað við þá glöggskyggni sem fram kemur í skrifum þínum.

Guðbjörn Jónsson, 17.5.2009 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband