Þeir sem veitast að lögreglu..........

eru ekki að mótmæla ríkisstjórn eða alþingismönnum, bankamönnum eða öðrum þeim sem komið hafa þjóðinni í þá erfiðleika sem við erum nú í.  Þeir sem veitast að lögreglunni eru aðilar sem leita eftir tækifærum fyrir ofbeldishneigð sína. Þeir bera enga virðingu fyrir eignum eða réttindum annarra, líkt og ljóst hefur orðið að undanförnu.

Ég vil ekki skipta úr því þjóðfélagi sem við höfum lifað undanfarið, yfir í það þjóðfélag sem þessi hópur kynnir fyrir okkur. Það er greinilega litla hamingju að finna í þannig þjóðfélagi.                 


mbl.is Hættið að kasta sprengjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sumir sem vita af skaphita sínum ættu að sitja heima. Ofbeldishneigð er bæld í mörum einstaklingum og þeir fljótir að finna útrás sinni farveg og málefnin skipta þá engu máli. Og eitthvað er þá vinna þeir í þágu þeirra sem verið er að mótmæla að nokkru leyti.

Júlíus Björnsson, 21.1.2009 kl. 18:37

2 identicon

það er gott að sumir láta heyra í sér opinberlega. og aðeins örfáir í þessum stóra hópi haga sér eins og fífl. Áfram með mótmælin!

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 19:02

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mig grunaði það örfáir athyglisjúklingar

Júlíus Björnsson, 21.1.2009 kl. 19:48

4 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Þakka ykkur innlitið og athugasemdina, Júlíus og Hrafnhildur. Ég get svo hæglega tekið undir með ykkur báðum. Sá öfgafulli minnihluti mótmælenda sem ævinlega stefnir mótmælafundum til ögrandi ásóknar á hendur lögreglu, sem hefur lýðræðislegum skyldum að gegna, ætti helst að halda sig heima og fara á samskiptanámskeið. Haldi þessi hópur svona áfram, mun allt eðlilega hugsandi fólk forðast þessa mótmælafundi. Það væru miklir hagsmunir spillingaraflanna.

Ég vil heilshugar geta tekið undir með Hrafnhildi og sagt: Áfram með mótmælin! Ég vildi sjá  Raddir fólksins, gera svipaðar kröfur og Gunnar gerir hjá Opnum borgarafundum. Hann gerir kröfur um fullkomna kurteisi og málefnalega framgöngu. Slík mótmæli eru til fyrirmyndar og gefa mun meiri upplýsingar og skapa mun meiri þrýsting, vegna þeirra upplýsinga sem þar koma fram.

Ég held að ég sé nokkuð sammála Júlíusi, að nokkrir athyglissjúkir einstaklingar hleypi átökunum af stað, fyrst og fremst til að sjá og heyra fjölmiðlaumfjöllun um sín eigin "afrek".  Endalaust virðast fjölmiðlar falla í þessa grifju. Þeir sniðganga vilja og markmið meginþorra þeirra sem þessa fundi sækja, en einblína á hina örfáu einstaklinga sem fyrir öfgum og ólátum standa.

Mig þyrstir í að upplifa fjölmiðla sem sniðganga öfgaöflin (þeir kunna flestir að sniðganga), en beini athyglinni meira að jákvæðum hópvilja fjöldans. Sá vilji er vel sýnilegur, þó hann keppi ekki um hávaða og óspektir við lítt siðaða öfgahópa.

Guðbjörn Jónsson, 21.1.2009 kl. 21:15

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Eimitt 4.valdið kyndir óbeint undir ofbeldi án þess  að gera sér grein fyrir því.

Júlíus Björnsson, 21.1.2009 kl. 21:20

6 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Sauðnautið geir var að hvetja óbeint til ofbeldis með bullinu sem kom úr honum í dag

Alexander Kristófer Gústafsson, 22.1.2009 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 164808

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband