Færsluflokkur: Dægurmál
6.3.2010 | 11:09
Það ER mikilvægt að kjósa
Ef litið er til sögunnar, teljast þetta líklega mikilvægustu kosningar sem fram hafa farið frá lýðveldisstofnun. Af hverju skildi ég segja þetta.
Þátttakan í þessum kosningum færa stjórnvöldum skilaboð um vilja þjóðarinnar til virkara lýðræðis og vakandi aðhalds að störfum stjórnmálamanna; að þau séu ævinlega sem best í samhljómi við vilja meirihluta þjóðarinnar.
Aðalefni þessara kosninga er hvort þjóðin vilji gangast í ábyrgð fyrir ótilteknum upphæðum af skuldum einkafyrirtækis í gjaldþrotastöðu, og greiða þær samkvæmt gerðum samningi (Svavarssamning) og þeim ákvæðum sem tiltekin eru í lögunum sem kosið er um.
Ef lítil þátttaka verður í kosningunum, má reikna með að Bretar og Hollendingar túlki það sér í hag og verði lítt sveigjanlegir í endurskoðun þegar gerðra samninga.
Verði þátttakan lítil, lítill munur á milli JÁ og NEi atkvæða og óvenjulega margir sem skila auðu, mun það verða túlkað sem lítil andstaða þjóðarinnar við fyrirliggjandi samning og þau lög sem kosið er um. Það mun draga verulega úr áhuga Br. og Holl. við að endurskoða þegar gerða samninga.
Fari svo að meirihluti kjósenda segi JÁ, kemst á bindnandi ríkisábyrgð á skuld einkafyrirtækis, sem engar lagaskuldbindingar voru um að ríkissjóður bæri ábyrgð á. Í slíkri stöðu væri engin ástæða fyrir Br. og Holl. að breyta þegar gerðum samningum, þar sem lagastaðfesting er þá komin fyrir ríkisábyrgð og algjöru réttleysi okkar til að bera hönd fyrir höfuð okkar, vegna endanlegra kröfuupphæðar. Áskrift að áratuga fátæktarbasli, þar sem flestar auðlindir þjóðarinnar mundu líklega lenda í höndum erlendra aðila.
Ef kosningaþátttaka verður meiri en samanlagður atkvæðafjöldi stjórnarflokkanna, í síðustu alþingiskosninum, og umtalsverður meirihluti kjósenda svöruðu með NEI, er fram komin skýr afstaða stórs hluta þjóðarinnar, fyrir andstöðu við þá samninga (Svavarssamninginn), sem er undirstaða laganna sem kosið er um staðfestingu á.
Verði þátttakan mikil og mikill meirihluti segi NEI, er ekki kominn á neinn bindandi samningur, þar sem Br. og Holl. hafa ekki samþykkt lögin frá síðasta sumri (með öllum fyrirvörunum). Það mun einnig færa Br. og Holl. heim þau skilaboð að þjóðin láti ekki viðgangast að stjórnmálamenn hennar séu blekktir til skuldbindinga sem enginn lagagrundvöllur sé fyrir.
Slík ákveðni þjóðarinnar gæti skilað álíka árangri og landhelgisstríðið gerði.
ALLIR ÚT AÐ KJÓSA
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.2.2010 | 11:27
Er það gjaldeyisskapandi ???
![]() |
Framtakssjóður bauð í Sjóvá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.2.2010 | 14:04
Íslenskt eða erlent lán, auðveld skilgreining
Vegna fyrri starfa minna í hagdeild banka, get ég sagt að afar auðvelt er að ákvarða hvort lánasamningur er í íslenskri- eða erlendri mynt. Líta ber einungis á hið þinglýsta skjal, lánasamning eða skuldabréf, og sjá í hvaða mynt lánsfjárupphæðin er tilgreind.
Ef upphæð lánasamnings eða skuldabréfs er tilgreind í íslenskri mynt, er verið að lána íslenskar krónur.
Eins og vikið er að í dómnum sem hér er fjallað um, eru allar "myntkörfur" ólögmætar, sem ekki eru tilgreindar og útreiknaðar af Seðlabankanum og birtar mánaðarlega og vægigildi þeirra gagnvart ísl. krónu þar tilgreindar.
Ef lán á að teljast vera í erlendri mynt, verður höfuðstóll skuldabréfs eða lánasamnings að vera tilgreint í þeirri mynt sem um er að ræða.
Þannig að ef við tökum þetta umrædda dómsmál til viðmiðunar, hefði lánasamningurinn geta hljóðað upp á samtals 605.550 ísl.krónur, miðað við gengi samningsmynta á útgáfudegi. Að baki samningnum hefðu hins vegar þurft að vera 4 skuldabréf. Það fyrsta 50% samningsupphæðar í íslenskum krónum að fjárhæð kr: 302.775. Annað að jafnvirði 15% samningsupphæðar í JPY, miðað við gengi útgáfudags samnings. Þriðja skuldabréfið að jafnvirði 20% samningsupphæðar í EUR, miðað við gengi útgáfudags samnings. fjórða skuldabréfið að jafnvirði 5% samningsupphæðar í CHF, miðað við gengi útgáfudags samnings.
Hefði verið gegnið frá fjármunahlið lánasamningsins með þessum hætti, hefði hann staðist skoðun sem margmynta lánasamningur. Þar sem þetta var ekki gert, og skuldabréfið að baki lánasamningnum einungis eitt, með heildaupphæð lánasamnigsins sem höfuðstól í íslenskum krónum, er lánið ótvírætt veitt í íslenskum krónum.
![]() |
Hæstiréttur þarf að skera úr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.1.2010 | 14:46
Þetta eru smánarbætur
Þessi greiðsla er sveitarstjórn Rangárþings eystra til verulegrar smánar. Eggert var þvingaður til að greiða vel á aðra milljón vegna skuldabréfs sem sveitarstjórnin skuldaði. Auk þess þurfti Eggert að kaupa lögfræði- og sérfræðingaaðstoð, til varnar ákærunum. Hann mun hafa greitt fyrir slíkt umtalsvert hærri fjárhæð en hann fékk dæmdar í Hæstarétti sem varnarkostnað.
Ég yrði ekki hissa þó í ljós kæmi, ef ALLT aðfararmálið yrði gert upp, að það hefði kostað Eggert 4 - 5 milljónir, umfram dæmdar bætur og þær smánarbætur sem sveitarfélagið er nú að greiða. Þessi greiðsla dugar ekki einu sinni til að endurgreiða Eggert, með verðbótum og vöxtum, þær afborganir, af skuldum sveitarfélagsins, sem hann var þvingaður til að greiða.
Ef Rangárþing eystra ætlar að ljúka málinu svona, verður það ÆVARANDI smánarblettur á þeim aðilum sem slíkt gera.
Ef þetta væri það eina sem Rangárþing eystra hefði brugðist Eggerti, væri í raun kannski hægt að snúa sér undan. En því miður er það ekki svo. Í búsetumálum Eggerts hefur Rangárþing eystra algjörlega brugðist honum og er sveitarfélagið raunverulega brotlegt við lög landsins, vegna skeytingarleysis síns um réttarstöðu hans.
![]() |
Eggert og Rangárþing eystra semja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2010 | 23:40
Hvaða kröfur vill stjórnarandstaðan gera um breytingar á samningnum??
Þjóðin hlýtur að eiga rétt á því að heyra hvaða breytignar stjórnarandstaðan vill gera á Icesave samningnum. Ekki er sanngjarnt að krefja stjórnina um forystu í breytingum á þeim samning sem hún sjálf lagði fyrir Alþingi, og fékk naumlega samþykktan þar.
Frumkvæði að breytingum hljóta að vera að koma frá þeim sem voru og eru andsnúnir núverandi samning.
Sigmundur og Bjarni! Látið okkur heyra tillögur ykkar.
![]() |
Langur en rýr fundur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2010 | 18:07
Þá þurfa þeir greinilega að skera niður útgjöldin
Ég hélt að flestum væri orðið ljóst hin mikla útþensla þjóðfélagsins var fjármögnuð með erlendum lánum, en ekki með okkar eigin fé. Ég hélt einnig að flestum væri orðið ljóst að erlendar skuldir okkar eru, nú þegar, orðnar það miklar að við fáu ekki meira lánsfé, til að halda við þeirri útþennslu sem orðið hafði undanfarinn áratug, eða svo.
Af þessum ástæðum kemur einkennilega flatt uppá mig að heyra svona kvartanir úr þessari átt. Ég hélt að margir væru í erfiðari fjárhagsstöðu en vélstjórar og málmtæknimenn.
Hvað ætli við, eldri borgarar, og öryrkjar megum segja? Við megum ekki einu sinni fá smá lottóvinning, án þess að það skerði hundrað þúsund kallinn sem við þurfum að lifa af.
Ég fékk t. d. 802 þúsund króna uppsafnaða greiðslu frá lífeyrissjóðum á síðasta ári. Vegna þeirrar greiðslu vill Tryggingastofnun fá endurgreitt frá mér, vegna ofgreidds lífeyris, kr. 825 þúsund. Ég þarf því að borga með greiðslunni frá lífeyrissjóðunum.
Kannski þið (vélstjóra og málmtæknimenn) viljið kaupa námskeið af eldri borgurum, um hvernig á að lifa spart??????
Ef reiknað er með að við, eldri borgarar og öryrkjar, framfleitum okkur á þeim greiðslum sem við fáum, hljótið þig að geta fundið leið til þess að lifa af ykkar greiðslum.
Gangi ykkur vel.
![]() |
Telja launin ekki duga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2010 | 15:23
Hugsunarháttur LÍÚ er hvorki nýr né óþekktur.
Sá hugsunarháttur sem birtist í framgöngu framkvæmdastjóra LÍÚ hefur í aldanna rás verið talinn mann-fjandsamlegur, því hann byggir á því að sölsa undir sig auðlindir annarra, til þess að geta sjálfir drotnað yfir í umhverfi sínu.
Þannig pískuðu landeigiendur þræla sína til forna. Síðan tóku við óðalseigendur, sem arðrændu landseta sína. Þá tók við tími kaupmanna, sem seldu vörur dýru verði en keyptu afurðir bænda á lágu verði.
Nútíminn býður upp á stórtækari arðrán. Þar fara fremstir í flokki hópar sem sölsa undir sig auðlindir þjóða, sem þeir nýta fyrst og fremst í eigin þágu í stað þess að auðlindin efli efnahagslíf og velsæld meðal þjóðarinnar.
Í þennan flokk falla hugsuðir og forystusveit LÍÚ, með einræðisherrum afríkuríkja. Ásamt öðrum þeim aðilum sem stunda arðrán af samlöndum sínum, sem og öðrum þjóðum, þegar þeim gefst tækifæri til.
Hugsunarháttur LÍÚ leynir sér ekki. Í hjarta sínu finnur maður þessa siðblindu þeirra, en þar fyrir utan er hún áþreifanlega tölulega staðfest, svo ekki verður um deilt.
Er það ekki partur af NÝJA ÍSLANDI að losa þjóðina úr hlekkjum þessara hugarfarslega skemmdu hokagikkja ????????
![]() |
Óvitaskapur í sjávarútvegsráðuneytinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.1.2010 | 12:10
Hótanir - líkt og óþroskuð dekurbörn
Ég horfði á Kastljósið í gærkvöldi og var nokkuð skemmt yfir vanþroskaðri framgöngu framkvæmdastjóra LÍÚ. Ekki kemur mér heldur á óvart að Verðandi, í Eyjum, taki undir með hótanir LÍÚ forystunnar; þar virðist vera traust bakland heimtufrekjunnar sem LÍÚ forystan drífur áfram.
Það er raunar ekkert nýtt að hlusta á svona ferkju frá forystu LÍÚ. Ég hef ekki tölu á þeim skiptum sem ég hef óskað eftir, meðal annars við framkvæmdastjóra LÍÚ, að hann sendi mér afrit af þeim lögum sem heimila svonefndum "rétthöfum aflaheimilda" ótvíræðan forgang við úthlutun aflaheimilda. Enn hefur enginn geta framvísað þessum lögum, því þau eru ekki til.
Af þessu leiðir að aldrei hafa verið til neinar lagaheimildir fyrir því sem kallað hefur verið "varanlegar aflaheimildir", sem menn hafa verið að selja sín á milli, án allra lagaheimilda. Réttarstaða kaupenda aflaheimilda er því hin sama og þeirra sem kaupa þýfi eða annað sem seljandinn hafði ekki lögformlegan eignarrétt yfir. Því er hægt að svipta þá verðmætinu án fyrirvara eða bótaskyldu. Kaupendur aflaheimilda eiga hins vegar bótarétt á hendur þeim er seldu þeim aflaheimildir, því engar lagaheimildir eru fyrir því að "selja" megi þessar heimildir, þó heimilt sé að "framselja" (afhenda án gjalds), frá úthlutunaraðila til annars skips.
Sem fyrrum umsjónamaður afurða- og rekstrarlána hjá banka, finnst mér nokkuð broslegt að hlusta á hótanir LÍÚ forystunnar um að sigla flotanum í land, ef hreyft verði við úthlutunarreglum aflaheimilda. Þessu ráða þeir að sjálfsögðu ekki; ekki frekar en þeim sé heimilt að selja aflaheimildir frá skipi, hafi það verið veðsett fyrir hærri fjárhæð en tryggingaverð þess er. (Það sem í daglegu tali er kallað að kvótinn hafi verið veðsettur). Í þeim tilvikum sem hér er vikið að, er það hinn raunverulegi eigandi skipsins (lánastofnunin), sem hefur endanlegt vald um það hvort skipið heldur áfram veiðum eða siglir til lands.
Hinn þátturinn er sá, sem við höfum að undanförnu orðið vitni að, því að Alþingi getur brugðist hratt við, sé þjóðarahgsmunum ógnað. Það þyrfti því ekki að taka marga daga að samþykkja lög á Alþingi sem heimiluðu ríkissjóði eignaupptöku á einhverjum af skipum þeirra útgerða sem í land silgdu, á verðgrunni tryggingaverðs skipanna.
Yrði niðurstaðan sú, væru miklar líkur á að bankarnir riðuðu aftur til falls, því enn er ekki komið á jafnvægi vegna uppgjörs og afskrifta erlendra lána gömlu bankanna. Í ljósi þessarar áhættu, myndi líklega engin lánastofnun ljá máls á því að styðja áform forystu LÍÚ um að sigla flotanum í land.
Fyrirsjáanlegt er að skuldsettustu útgerðirnar muni ekki ráða við afborgnir lána sinna, þegar "kvótaleigutekjurnar" hafa verið teknar af þeim. Þessum mönnum er því alveg óhætt að fara að losa sig við hrokann og yfirganginn, því það er líka komið að skuldadögum hjá þeim, líkt og útrásarvíkingunum.
![]() |
Sammála að sigla flotanum í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2010 | 21:16
Á ekki atvinnulífið á Ísalndi að vera sjálfbært ???
Ég hélt að það væri mikilvægast að atvinnulíf þjóðarinnar væri sjálfbært, þyrft ekki erlenda fjármögnun, nema til afmarkaðra stórra framkvæmda.
Eins og staðan er núna, og verður óhjákvæmilega næstu misserin, mun ekki fást meira rekstrar- eða framkvæmdafjármagn, sem lánsfé til Íslendinga. Það eigum við að þakka langtíma fjármálaóstjórn, í boði Sjálfstæðisflokksins.
Reyndar naut hann aðstoðar Samfylkingarinnar, undir lokin. Hún aðstoðaði við að tvöfalda erlendar skuldir þjóðarinnar, sem voru um 7.000 milljarðar þegar Samfylkingin kom á landsstjórninni en voru um 14.000 milljarðar, rúmu ári síðar, er hrunið varð.
Við verðum að sýna erlendum fjármagnseigendum skilning, þó þeir séu tortryggnir út í stjórnmálaflokk sem bar stjórnmálalega ábyrgð á tvöföldun erlendra skulda þjóðarinnar. Skulda sem fyrir voru þó orðnar of miklar, þegar sami flokkur situr nú í forsæti ríkisstjórnar landsins.
Heldur fólk virkilega að það séu tómir kjánar sem eiga peningana í útlöndum ???
![]() |
Gríðarleg óvissa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2010 | 20:56
Hverra er ábyrgðin á stöðunni ???
Núverandi stjórnvöld voru í fylkingarbrjósti fyrir kröfunni um að forsetinn vísaði Fjölmiðlalögunum til þjóðarinnar. Núverandi stjórnvöld vissu að þáverandi u. þ. b. 10% atkvæðisbærra manna sendu áskorun til forseta, um að hafna staðfestingu laganna. Forsetinn varð við þessari áskorun og virkjaði í fyrsta skipti ákvæði 26. gr. stjórnarskrár, um vald forseta til að vísa umdeildu lagafrumvarpi til staðfestignar þjóðarinnar.
Alla þessa þætti vissu núverandi stjórnvöld. Þau vissu einnig að þjóðin var mjög andvíg einhliða túlkun Breta og Hollendinga á hver sú upphæð væri sem íslenska þjóðinni bæri greiðsluskyldu á. Krafa þjóðarinnar var allan tímann að íslensk stjórnvöld héldu stíft fram kröfunni um að viðurkenndur dómstóll eða fjölþjóðlegur gerðadómur, felldu úrskurð um hver greiðsluskylda íslensku þjóðarinnar væri.
Þrátt fyrir alla þessa vissu og þrátt fyrir að vita að forsetinn gæti ekki annað en hafnað þessum nýju lögum staðfestingar, hélt ríkisstjórnin áfram keyrslu málsins í gegnum Alþingi, gegn vilja meirihluta þjóðarinnar, eins og fram kom í endurteknum skoðanakönnunum.
Allar þessar forsendur hefðu átt að segja heilbrigt hugsandi fólki, að það væri á villigötu, sem væri lokaður botnlangi, án útgönguleiðar. Í ljósi allra þessara forsendna kemur ríkisstjórnin fyrir líkt og óþekkur krakki, sem stöðvaður er í ótugtarskap sem búið er að segja honum að geti ekki endað á annan veg en illa.
Er það þá forsetanum að kenna þó meira en tvöfallt stærra hlutfalla kosningabærra manna skori á hann nú, um að vísa þessum lögum til þjóðarinnar?
Er ríkisstjórnin alveg saklaus, þrátt fyrir að hafa í marga mánuði vitað að hún væri að vinna gagnstætt meirihlutavilja þjóðarinnar?
Er virkilega enginn vilji hjá stjórnvöldum að halda uppi réttlátum málstað þjóðarinnar? Við hvað er fólkið eiginlega hrætt?
![]() |
Íslendingar í vondum málum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Álfagangur varðandi lángtímaleigu á Álfabakka 2?
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
Eldri færslur
2025
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
alla
-
framtid
-
mammzan
-
hallgrimurg
-
huldumenn
-
jaxlinn
-
johanneliasson
-
maggij
-
photo
-
haukurn
-
runar-karvel
-
sigrunsigur
-
skodunmin
-
svarthamar
-
vestskafttenor
-
athb
-
thjodarsalin
-
seiken
-
skinogskurir
-
bjarkitryggva
-
bjarnimax
-
brahim
-
gattin
-
einarhardarson
-
einarorneinars
-
bofs
-
dramb
-
haddi9001
-
heimssyn
-
tofraljos
-
don
-
hordurvald
-
fun
-
visaskvisa
-
huxa
-
jonasphreinsson
-
jonl
-
jobbi1
-
jonvalurjensson
-
jonthorolafsson
-
josefsmari
-
juliusbearsson
-
ksh
-
kolbrunerin
-
kristbjorg
-
liu
-
skrafarinn
-
maggiraggi
-
markusth
-
os
-
raksig
-
rosaadalsteinsdottir
-
fullvalda
-
siggileelewis
-
duddi9
-
siggith
-
saemi7
-
tryggvigunnarhansen
-
vga
-
thjodarheidur