Hvaðan eiga aurarnir að koma ???

Það er afskaplega fallega hugsað hjá VG að vilja styrkja Seðlabankann en afar nauðsynlegt að gera grein fyrir hvaðan sá styrkur eigi að koma. Það er t. d. talað um að auka gjaldeyrisvaraforðann um allt að 80 milljarða. Hvaðan eiga þessir 80 milljarðar að koma? Það er hvergi nefnt.

Annað er að VG vill styrkja eigið fé Seðlabankans, til viðbótar, um allt að 40 milljarða króna með innlendu skuldafjárútboðiÉg veit ekki hvar höfundar þessara hugmynda hafa lært reiknishald en ég hef aldrei heyrt um að hægt sé að auka eigið fé sitt með því að stofna til skulda.  Það er hins vegar hægt að auka lausafé sitt með þeim hætti, en ekki eignafé eða eigið fé eins og það heitit á bókhaldsmáli.

Það er gott að vilja vel, en afar mikilvægt að vekja ekki væntingar sem ekki virðast byggðar á traustari undirstöðum en þarna kemur fram.           


mbl.is VG vilja styrkja Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Jónsson

Eigum við ekki barasta að vera þakklátir fyrir að menn með slíka hagfræðikunnáttu, séu utan ríkisstjórnar og í frekar litlum flokki

Magnús Jónsson, 7.3.2008 kl. 20:35

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Eigum við ekki bara að bæta við íslenska orðaforðan okkar.."íslenskir vaxtaflóttamenn" sem geta leitað hælis á meginlandinu þar sem fólk hugsar eins og fólk eða manneskjur..

Óskar Arnórsson, 7.3.2008 kl. 21:36

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég er sammála Magnúsi, við erum heppin að karlinn stjórni þessu ekki.

Hallgrímur Guðmundsson, 8.3.2008 kl. 00:16

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

Bara til að koma með eina hugmynd sem er á svipuðu stigi og "lausnir" stjórnvalda:

"Skellum við ekki bara vírum utanum Vatnajökul og seljum hann til landa sem búa við vatnsskort?" "Drögum hann bara þangað með öllum fiskiflotanum sem hvort eð er, fær ekki að veiða fisk!"

Er ég ekki bara efni í stjórnmálamann komandi með svona visku?..

Óskar Arnórsson, 8.3.2008 kl. 00:31

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það væri nú lítið vit í því að styrkja Seðlabankann, hvað svo?  Ég get ekki betur séð  en að efnahagsvandi okkar sé tilkominn vegna arfaslakrar efnahagsstjórnar og stjórnleysis þar sem Seðlabankinn gerir eitt og stjórnvöld annað og viðskiptabankarnir það þriðja og svo vilja menn STYRKJA Seðlabankann, til hvers?  Eins og Guðbjörn segir hvaðan eiga peningarnir að koma?

Jóhann Elíasson, 8.3.2008 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðbjörn Jónsson
Guðbjörn Jónsson
F.v. ráðgjafi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 164811

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband