Færsluflokkur: Vefurinn
8.4.2016 | 00:55
ENN TEKST FJÖLMIÐLAMÖNNUM AÐ EYÐILEGGJA MANNORÐ SAKLAUSS MANNS.
Á meðan mesti hasar átaka stendur yfir eins og þeirra sem fram fóru hér síðustu daga, er afar vonlítið að koma á framfæri sjónarmiðum sem ekki falla að þeirri hugmyndalínu sem er undirstaða æsingsins. Það er því fyrst núna sem mögulegt er að fólk gefi sér andrúm til að skoða önnur sjónarmið, sem komust ekki að meðan hasarinn var mestur. En hvað var þá athugavert eða gæti talist vanhugsað í hasar undanfarinna daga?
Frá mínum sjónarhóli virðast meginátökin snúast um tvenn sjónarmið. Annars vegar að ríkir menn, eða auðmenn, eigi ekki að vera í pólitík vegna þess að þeir hafi öðruvísi hagsmuni en fólk almennt hefur. Hæfileiki til að láta gott af sér leiða hefur í raun ekkert með peningana að gera, heldur snýst um upplag og eðlislægan vilja viðkomandi einstaklings. Ríkur einstaklingur gæti t. d. náð umtalsvert betri árangri fyrir fólkið í landinu, gagnvart fjármálaöflunum, því þau gætu ekki ógnað honum með því að loka lántökuleiðum hans og gjaldfellingu lána. Hann skuldar bönkunum ekki neitt, frekar gæti verið að bankarnir skulduðu honum.
Hinn þátturinn sem mér virðist mjög ráða afstöðu fólks er sú fullyrðing sem sett hefur verið fram t. d. í sambandi við fyrrverandi forsætisráðaherra, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og konu hans. Fullyrt er að fyrst SDG sé giftur og enginn kaupmáli sé í spilinu, þá EIGI SDG 50% í félagi konu sinnar, þó hann hafi afsalað hinum skráða eignarhluta til hennar árið 2009.
Þessi fullyrðing stenst ekki því í hjúskaparlögum er tekið mjög skýrt til orða varðandi sameiginlegar skyldur hjóna. Í 4. gr. laganna er ákvæði um Forræði eigna og skuldaábyrgð. Þar segir svo um eignir hjóna:
- gr. Hvort hjóna ræður yfir eign sinni og svarar til skulda sinna eftir því sem nánar er fyrir mælt í lögum.
Þarna kemur skýrt fram að hvort hjóna fyrir sig ræður yfir eign sinni. Það staðfestir fullkomlega það sem SDG hefur ítrekað haldið fram, að þegar mistökin við skráningu félagsins var loksins leiðrétt með því að hann afsalaði sér þeim eignarhlut sem á hans nafn var skráð. Þar sem engar eignir til hans höfðu greiðst inn til félagsins var eignastaða hans engin í félaginu. Ef hann hefði afsalað sér þeim hlut sem á hann var skráður fyrir 0 krónur, hefði það verið talin vera gjöf til Önnu, sem skatturinn hefði metið sem 50% af bókfærðu verðmæti félagsins. Skatturinn hefði síðan reiknað Önnu S. Pálsdóttur gjöfina til tekjuauka á árinu 2009. Með því að selja hlutinn á 1 dollar, fær salan viðskiptalega stöðu í framtalslegu tilliti hjá skattinum og færð Önnu til eignaaukningar en ekki til tekjuaukningar. Hver reynir ekki að fara ódýrustu leiðina í gegnum skattalega umhverfið? Það ætti þjóðin að þekkja því líkur benda til að undanskot frá skatti hér eru ótrúlega mikil.
En við vorum að skoða á hvaða vegu almenn fjárhagsleg tengsl hjóna eru. Heyrst hefur t. d. að fyrst SDG og Anna S. Pálsdóttir séu gift, teljist félagið og eignir þess vera sameign þeirra. Af þeirri ástæðu hafi SDG verið skylt að gefa upp til hagsmunaskrár Alþingis 50% eignarhlut sinn í félaginu.
Þetta er ekki rétt. 4. gr. hjúskaparlaga, sem vísað er í hér að framan, skýrir ótvíræð yfirráð annars hjóna yfir eignum sínum en sameiginleg skylda hjóna er t. d. skilgreind í 2. mgr. 2. gr. hjúskaparlaga, en þar segir eftirfarandi:
(áhersluletrun G.J.)
Hjón eiga í sameiningu að annast uppeldi barna sinna, sjá þeim farborða og hjálpast að við að framfæra fjölskylduna með fjárframlögum, vinnu á heimili og á annan hátt.
Einnig segir í 1. mgr. 3. gr. húskaparlaga að:
3. gr. Hjón skulu skipta milli sín verkefnum á heimili eftir föngum, svo og útgjöldum vegna heimilisrekstrar og framfærslu fjölskyldu.
Þarna kemur skýrt fram að við hjónaband myndast einskonar sjálfstætt fjárfélag sem hjónin bera ábyrgð á að jöfnu. Hjónunum ber að leggja þessu fjárfélagi til tekjur til greiðslu rekstrargjalda fjölskyldunnar, en þar fyrir utan getur hvort þeirra um sig átt eignir sem hinn aðilinn á engan rétt á aðgangi að.
Þegar grannt er skoðað kemur í ljós að SDG sagði í öllum aðalatriðum satt og rétt frá varðandi þau eigna eða hagsmunaréttindi sem að honum sneru og honum var skylt að upplýsa Alþingi um á árinu 2010.
Í öllum þessum árásum á æru og trúverðugleika SDG hefur aldrei verið reynt að tengja hann við annað félag í skattaskjólum en félagið Wintris, sem stofnað var til varðveislu og ávöxtunar á arfgreiðslu til Önnu S. Pálsdóttur. Fyrir mistök bankamanns hjá Landsbanka í Lux. var SDG skráður helmings eigandi félagsins þó ekki væri gert ráð fyrir neinum eignum frá honum inn í félagið og ekkert fjármálalegt samband milli SDG og sambýliskonu hans.
Það vekur sérstaka undrun mína hve mikil harka er lögð í að véfengja að framangreind skráning SDG sem helmingseiganda í Wintris hafi verið mistök bankastarfsmanns í Landsbanka Lux. Hins vegar hafa á engan máta verið véfengdar upplýsingar frá öðrum aðilum, sem einnig höfðu látið Landsbankann í Lux. stofna fyrir sig félög, en aðilar hafa stigið fram og upplýst um samskonar eða sambærileg mistök bankans og um ræðir í tilviki SDG. Engin skýring er gefin á því hvers vegna SDG sé talinn segja ósatt en hinir segi satt?
Í þeim kastljósþætti sem sýndur var sunnudaginn 3. apríl 2016, brutu kastljósmenn afar alvarlega, kurteisis, jafnræðis og sannleika regluna í lögum um Ríkisútvarpið. Jóhannes Kr. hjá Reykjavik Media gerði sig hins vegar brotlegan á svo mörgum sviðum, bæði séð frá lögum um blaðamenn og fjölmiðla, stjórnarskrá varðandi mannréttindi, hegningalög varðandi ærumeiðingar og Sakamálalög vegna óheimilar innrásar á lokaðan einkafund forsætisráðherra með sænskum fréttamanni. Þar veittist Jóhannes að forsætisráðherra með frekju og dónaskap sem vel líklega verður kennsluefni um það hvernig ekki eigi að koma fram við æðstu stjórnendur ríkis.
Í þessum pistli hefur einungis að litlu leyti verið raktar rangfærslur og bein ósannindi sem viðhöfð hafa verið í þessum árásum á SDG til að ræna hann ærunni, embættinu og fella ríkisstjórn sem allt benti til að mundi starfa til loka kjörtímabils. Ekki er óhugsandi að bótakrafa geti skapast á hendur Ríkisútvarpinu og Jóhannesi, ásamt hinum Þýska fréttamanni Þýsks stórblaðs, sem sagt er vera dreifingar- og aðal úrvinnsluaðili Panamaskjalanna. Þá verður athyglisvert að sjá hvernig Sænsk stjórnvöld líta þá staðreynd að Sænskur fréttamaður hafi greinilega aðstoðaði Jóhannes við ólögmæta innrás hans á lokaðan einkafund forsætisráðherra Íslands. Hann aðstoðaði Jóhannes við innrásina með því að víkja úr sæti spyrils og hleypa Jóhannesi þar að. Hinn sænksi fjölmiðlamaður braut einnig alvarlega af sér gagnvart forsætisráðherra með því að taka upp á myndband, án heimildar forsætisráðherra, yfirgang og frekju Jóhannesar gagnvart forsætisráðherra og dreifði þeirri upptöku til fjölmiðla, án heimilar forsætisráðherra. Við slíku broti hlýtur einnig að liggja umtalsverð refsing, sem vart getur annað en aukist þegar um erlendan fjölmiðlamann er að ræða sem aðstoðar við ólögmæta aðför að forsætisráðherra landsins.
Það mun koma í ljós hvernig ríkisstjórnir Þýskalands og Svíþjóðar meta slíka framkomu þegna sinna við forsætisráðherra vinaþjóðar.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Ágætu þingmenn.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
16.3.2016 | 23:48
Sannleikurinn um hækkun lífeyris eldri borgara
Ég mikið búinn að velta vöngum yfir öllu því talnaflóði sem frá Hagstofunni kemur og undrast aðferðir til sundurliðunar og uppgjörs útgjaldaliða. Einkum er athyglisvert hvernig niðurstöðutölur breytast á hverju ári mörg ár aftur í tímann, þannig að ekki kemur fram nein áreiðanleg samantekt af rauntölum tekju- eða gjaldaliða fyrir samfélags okkar.
Þetta hefur oft valdið mér nokkru basli og einnig nú að undanförnu, því ég hef verið að leita að skýringum á því hvers vegna sagt er í kerfinu að t. d. eldri borgarar hafi fengið til baka þær skerðingar sem af þeim voru teknar eftir bankahrunið 2008.
Það ætti að vera hægt er að sjá vísbendingar um slíkt með því að skoða lykilþætti í rekstri samfélagsins okkar gegnum skráningu Hagstofunnar. Ég hef til glöggvunar verið að skoða tímabilið frá 1998 2015 varðandi skerðingar. En að hinu leytinu skoða fólksfjölgun á árunum frá 1955 2015, til að bera saman við spá Hagstofunnar um mannfjöldaþróun næstu 50 ára. Ýmislegt athyglisvert hefur þegar komið í ljós, sem greint verður frá síðar.
Hafa kjör eldri borgara verið leiðrétt.
Á myndinni hér til hliðar má sjá að nokkur hækkun varð á vísitölu neysluverðs á árabilinu 1998 - 2015. Er þar um að ræða álíka breytingu og varð einnig á heildar útgjöldum hins opinbera á sama tímabili, eins og næsta mynd sýnir.
Þegar myndin hér til hliðar er skoðuð kemur í ljós að báðar línurnar eru með sömu þætti heildarútgjalda 13 ár aftur í tímann. Árið 2015 sótti ég skrá inn á vef Hagstofunnar sem hafði að geyma mestu sundurliðun á útgjöldum stjórnvalda fyrir árabilið 1998-2013. Er það rauða línan. Þegar ég var að vinna þau gögn sem hér birtast fór ég aftur á vef Hagstofunnar til að sækja meiri upplýsingar, sem þá væru til ársloka 2014. Tók ég þá eftir því að aðrar tölur voru komnar í nákvæmlega sömu skrána sem ég hafði sótt upplýsingar í ári fyrr. Óheimilt á að vera, í öllum tilvikum, að breyta niðurstöðutölum útgjalda fyrri ára eftir að rekstrarreikningi ársins hefur verið lokað og Ársreikningur gefinn út. Engu að síður breytir Hagstofan niðurstöðutölum rekstrarliða fyrri ára, án áberandi athugasemda. Engin leið er að vera viss um, hvort þær upplýsingar sem koma fram í bláu línunni, muni vera á sömu skrá á næsta ári.
Af myndinni hér til hliðar má sjá hlutfallsleg útgjöld til Almannatrygginga og velferðar, sýnt með blárri línu. En hins vegar sama viðmið varðandi öldrun (rauða línan), örorku og fötlun (græna línan) og fjölskyldu og barna (fjólublá línan). Glögglega má sjá þarna að tilgreindir málaflokkar halda ekki hlutdeild sinni í heildarupphæð málaflokksins. Öldrun er einnig nokkuð víðtækur flokkur. Þess vegna leitaði ég frekari sundurliðunar hjá Hagstofunni.
Til frekari glöggvunar á lífeyrismálum eldri borgara, tengdi ég sundurliðun Hagstofunnar á safnliðnum ÖLDRUN, við þá sundurliðun Öldrunarliðar sem ég fékk senda. Ég setti upp línurit sem sýnir hvert sé hlutfallið af heildarútgjöldum sem fer til liðsins Almannatryggingar og velferð. Einnig er frá sama viðmiði heildarútgjalda skoðað hlutfall liðsins Öldrun og helstu sundurliðunarþættir þess liðar, sem eru: Ellilífeyrir, Tekjutrygging, Heimilisuppbót og Aðrar bætur vegna aldraðra. Allir þessir liðir voru teknir út sem hlutfall af heildarútgjöldum.
Á myndinni hér til hliðar má sjá það hlutfall heildarútgjalda hin Opinber sem fara annars vegar til liðsins Almannatryggingar og velferð (Blá lína), en hins vegar til liðsins Öldrun (Rauð lína). Heildar útgjöldum hins opinbera á árinu 2014 námu 908,2 milljörðum króna.
Samkvæmt þessum virðist málaflokkurinn Öldrun vera rétt um eða yfir 5% af heildarútgjöldum hins opinbera. Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara eru líklega nálægt helmingi af kostnaðarliðnum ÖLDRUN og því líklega nálægt 2,5- 3% af heildarútgjöldum.Varla er það hlutfall útgjalda óyfirstíganlegt.
Ef við lítum hins vegar til mikils vaxtar margra útgjaldaliða undanfarinna ára, t. d. á safnliðnum Almannatryggingar og velferð, þar sem liðurinn Öldrun er undirflokkur, virðist ljóst að aldraðir hafi ekki haldið hlutdeild sinni í heildarútgjöldum. Kemur það glöggtt fram þegar borið er saman vöxtur liðsins Almannatrygginga og velferð og vöxt liðsins ÖLDRUN, sem er undirflokkur Almannatrygginga.
Hér til hliðar gefur að líta í meginatriðum hvernig uppgjörsliðurinn Öldrun sundurliðast sem hlutfall af heildarútgjöldum liðsins Öldrunar.
Eins og fyrri myndin sýndi var liðurinn Öldrun rétt rúm 5% af heildarútgjöldum. Af þessari sundurliðun hér til hliðar má sjá að heildarútgjöld Tekjutryggingar hafi verið að hækka aðeins að undanförnu. Þegar skoðað er hver breytingin hafi orðið á hvern mann sem nýtur slíkra greiðslna, virðist breytingin ekki vera mikil.
Svona segir Hagstofan skiptinguna vera á hvern bótaþega. Þarna er tekið saman ellilífeyrir, tekju-trygging, heimilisuppbót og aðrar greiðslur vegna öldrunar. Þarna sést að árið 2014 var upphæð á hvern mann að verða svipuð og á árinu 2003. En á það hefur verið bent að frá árinu 2003 hefur vísitala neysluverðs hækkað töluvert, eins og sjá má á fyrstu myndinni. Þannig að greiðsla á mann nú, sem nær álíka verðgildi og 2003, ætti að vera umtalsvert hærri en þarna sýnir.
Ef heildarútgjöld hefðu verið svipuð upphæð og á árinu 2003, væri ekki mikið hægt að setja út á þetta. Hins vegar er ljóst að launakjör og verðlag hafa hækkað umtalsvert frá árinu 2003 en þær hækkanir hafa eldri borgarar ekki fengið bættar ennþá. Á þessari síðustu mynd má sjá hve lítið hlutfall af heildarútgjöldum er verið að tala um. Það ætti ekki að vera mönnum ofviða að leiðrétta kjör eldri borgara strax.
Vefurinn | Breytt 17.3.2016 kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2016 | 11:04
1. Athugasemd við Frumvarpsdrög um náttúruauðlindir
Ég velti fyrir mér hvort geti verið að það skorti málskilning og málvitund í þann hóp sem samdi textann í hina nýju væntanlegu 79. gr. stjórnarskrár Íslands? Þegar litið er til þess sem segir í 2. kafla greinargerðar með frumvarpinu, vakna enn fleiri spurningar því þar segir eftirfarandi: (Ath. feitletrun og litabreytingar texta eru undirritaðs.)
Við undirbúning frumvarpsins hefur verið lagt til grundvallar að markmið auðlindaákvæðis yrði að setja löggjafanum skýr mörk varðandi nýtingu og ráðstöfun á náttúruauðlindum og réttindum til þeirra.
Þegar maður les svo hina væntanlegu lagagrein, eins og hún birtist í frumvarpinu, og ber það saman við markmiðin um að setja löggjafanum skýr mörk, fer um mann ónotalegur hrollur. Lítum á 1. mgr. hinnar væntanlegu 79. gr. stjórnarskrár. Þar segir eftirfarandi:
Auðlindir náttúru Íslands tilheyra íslensku þjóðinni. Þær ber að nýta ၠsjálfbæran hátt og til hagsbóta landsmönnum öllum. Ríkið hefur eftirlit og umsjón með meðferð og nýtingu auðlindanna í umboði þjóðarinnar.
Hvað skildi orðið tilheyra eiga að merkja þarna í 1. málslið 1. mgr. Ég tilheyri t. d. íbúum fjölbýlishússins sem ég bý i. Ég tilheyri einnig tiltekinni fjölskyldu, en ég hef ákvörðunarvald í fjölbýlishúsinu í samræmi við eignarhlut minn en EKKERT ákvörðunarvald innan fjölskyldunnar. Ég verð að viðurkenna að ég skil alls ekki hugtakið tilheyra þarna í 1. málslið, því augljóst er að ef náttúruauðlindirnar eru innan 200 sjómílna efnahagslögsögu þjóðarinnar, þá tilheyra þær íslensku þjóðinni.
Í 2. málslið 1. mgr. er einnnig verið að tala um auðlindirnar en þar segir að þær beri að nýta á sjálfbæran hátt og: til hagsbóta landsmönnum öllum. Hagsmunir landsmanna eru áreiðanlega svo tugþúsundum skiptir og einnig ólíkir að umfangi og gerð. Því verður að telja víst að markmiði 2. málsliðar 1. mgr. verði ógerningur að koma í framkvæmd. Líklegast er að stjórnunarþáttur sé þar með brostinn. Í 3. málslið 1. mgr. þykir mér þó sett eftirtektarvert met í skilningsskorti á eðli og stjórnskýringu stjórnarskrár. Í frumvarpinu er málsliðurinn svohljóðandi:
Ríkið hefur eftirlit og umsjón með meðferð og nýtingu auðlindanna í umboði þjóðarinnar.
Hvernig skildu textahöfundar þessa 3. málsliðar 1. mgr. hinnar væntanlegu 79. gr. stjórnarskrár sjá þetnnan 3. málslið 1. mgr. fyrir sér í framkvæmd. Hvaða skilning skildu þeir hafa lagt í orðið Ríkið? Hvernig sjá þeir fyrir sér að Ríkið hafi eftirlit og umsjón í umboði þjóðarinnar? Hvaða merkingu leggja þessir textasmiðir í orðið Ríkið? Lítum aðeins á hvað segir um þetta orð á VIKIPEDIA, frjálsa alfræðiritinu. Þar segir eftirfarandi um orðið RÍKIÐ:
Ríki eru stjórnmálalegar einingar ábúenda tiltekinna landsvæða sem eru fullvalda. Skilgreining Max Webers um að ríki hafi einokun á lögmætri valdbeitingu á afmörkuðu landsvæði er viðtekin. Innlent fullveldi hefur ríki ef íbúar þess líta á það sem lögmætt. Alþjóðlegt fullveldi hefur ríki hljóti það einnig slíka viðurkenningu frá samfélagi þjóðanna.
Af því sem hér hefur verið skoðað virðist ljóst að RÍKIÐ, hefur hvorki sjálfstæða skynjun, eftirtekt eða huglæga getu til að hafa umsjón með nokkrum sköpuðum þáttum. Ljóst virðist að RÍKIÐ getur ekki gætt hagsmuna þjóðarinnar. Sú hugmyndafræði er álíka og að hús eigi að gæta hagsmuna íbúa sinna. Það mundi treglega ganga upp.
En hvernig gæti þá 1. mgr. væntanlegra 79. gr. stjórnarskrár litið út, í ljósi þeirra fyrrnefndu markmiða sem sett eru fram í greinargerð með frumvarpinu. Skoðum dæmi:
Auðlindir náttúru ́slands utan þinglýstra eignamarka og/eða lögmætra samninga, einstaklinga eða lögaðila, skal teljast ótvíræð eign íslensku þjóðarinnar. Slíkar auðlindir ber að nýta ၠsjálfbæran hátt til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð, eða til samfélagslegra verkefna, samkvæmt nánari ákvæðum þar um í almennum lögum.
Alþingi setur lög og staðfestir reglur sem viðkomandi ráðherra setur um nýtingu auðlindanna. Ráðherra eða undirstofnun ráðuneytis hans hefur umsjón með meðferð og nýtingu auðlindanna í umboði Alþingis og þjóðarinnar. Eftirlit til lands verður í höndum Ríkislögreglustjóra og lögreglu í hverju umdæmi en til sjávar verður eftrlit í höndum Landhelgisgæslunnar.
Með hliðsjón af því útþynnta og tilgangslausa orðavali sem notað er í 1. mgr. væntanlegrar 79. gr. stjórnarskrár okkar læt ég staðar numið í bili við frekari skoðun á þeim texta sem þarna hefur verið lagður fram sem lagatexti fyrir stjórnarskrá Íslands. Reynist áhugi fyrir bættu orðfæri og beinni meiningu í væntanlegan lagatexta gæti e. t. v. komið fleiri athugasemdir. M.bk. Guðbjörn
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2015 | 01:05
Framkvæmdastjóri ABC á Íslandi í árásarham
Ég hafði ekki ætlað mér að láta þessar upplýsingar koma fram opinberlega, því sem fyrrverandi sjálfboðaliði hjá ABC hefur mér verið einkar hlýtt til starfseminnar, enda VAR hugsjónin fögur meðan hún snerist fyrst og fremst um að hlúa að börnum sem ættu bágt. En stöðugur ósannindaflaumur framkvæmdastjóra ABC um Þórunni Helgadóttur gerir það að verkum að héðan af er best að allur sannleikurinn komi fram á sjónarsviðið.
Áður en ég vissi nokkuð um að ósamkomulag væri milli ABC hér á landi og ABC Children's Aid í Kenya, var ég langt kominn með skoðun á starfsháttum ABC frá síðustu aldamótum til síðasta árs. Á árinu 2006 og 2007 fór ákveðið ferli í gang hjá ABC, sem var í raun að hætti útrásarvíkinga, enda var ætlunin um tíma að þeir tækju þátt en af því varð ekki.
Starf ABC hefur í meginatriðum gengið út á að hafa milligöngu um að fólk á Íslandi tæki að sér fjármögnun á framfærslu tilgreinds barns í tilteknu landi og greiddu mánaðarlega gjald til barnsins, þar sem ABC á Íslandi væri milliliður. Ég tók snemma eftir því í ársreikningum ABC, að öll þessi fjárframlög fólksins til barnanna úti í heimi, voru færð í bókhald ABC sem gjafir fólksins til ABC og fjármagn fólksins til barnanna var því bókfært sem TEKJUR ABC og þar með sem eign ABC, en ekki sem vörslufé til áframsendingar til rétts eiganda.
Á árinu 2006 urðu afgerandi breytingar á starfsemi ABC. Það var stofnað sem almennt FÉLAG á árinu 1988, af GEORG ÓLAFI TRYGGVASYNI og hét þá ABC HJÁLPARSTARF. Það virðist hafa verið rekið sem félag til ársins 2006 en þá er því breytt í Sjálfseignarstofnun í einkaeigu Guðrúnar Margrétar Pásdóttur og eiginmanns hennar, Hannesar Lentz. Hjá Sýslumanninum á Sauðarkróki er stofnunin skráð sem stóreignastofnun sem deili árlega út styrkjum á grundvelli ávöxtunar eigin sjóða. Í ársreikningum stofnunarinnar koma hins vegar ekki fram neinar eignir eða fastafjármunir aðrir en að stofnunin eigi kr. 230.000 sem stofnframlag í ABC barnahjálp International, sem einnig er eignalaus Sjálfseingastofnun, en eins og ABC, skráð sem stóreignastofnun sem árlega deili út styrkjum af ávöxtun eigin sjóða.
Ég hef reynt á hljóðlegan hátt að fá þessum vanköntum á eðlilegri skráningu breytt og var með væntingar um að svo gæti orðið. Þegar maður hins vegar sér, heyrir og les hinar ósvífnu árásir framkvæmdastjóra ABC á hendur Þórunni Helgadóttur, er öll framganga stjórnenda ABC eingöngu ANDKRISTIN viðhorf, sem einungis vinna að niðurrifi og að valda sem mestum skemmdum á því starfi sem Þórunn hefur verið að byyggja upp, með samstarfi við fleiri lönd en Ísland. Auk þess sem starf hennar í Kenya fékk frá einstakling gefna lóðina undir starfsaðstöðuna sem nú er verið að byggja.
Þórunn hefur af djúpum kærleiksanda tekið sér búsetu við eitt stærsta fátækrakverfi Nairobi í Kenya, lifað þar við lítil efni en mikið vinnuálag, þar sem hún hlúir af mikilli umhyggju og kærleika um stóran hóp barna og hugsar einungis um það eitt að láta þeim líða sem best og mennta þau til sjálfbærs lífs í framtíðinni
Vegna hinnar grófu ósvífni framkvæmdastjóra ABC, tók ég þá ákvörðun að birta þær greinargerðir sem ég sendi Sýslumanninum á Sauðárkróki og aðra er ég sendi Ríkisendurskoðanda, ásamt þeim fjárhagsúttektum sem ég gerði á starfsemi ABC barnahjálpar á Íslandi. Ég hef vakið athygli þessara aðila á augljósri svikastarfsemi í sambandi við ABC barnahjálp International, þar sem árlega eru taldar upp hundruðir milljóna í tekjur og útgjöld, þó í raun hafi aldrei nein slík starfsemi farið fram í þeirri stofnun.
Lítum aðeins á fáein dæmi varðandi söfnun fjár, aðallega frá stuðningsforeldrum barnanna og rekstur ABC barnahjálpar á Íslandi.
Frá árinu 2001 til og með árslokum 2013 er samtals safnað hjá ABC að stórum hluta frá stuðningsfjölskylædum til barnmastarfs í öðrum löndum en Íslandi kr. 2.662.992.090. Af þessu söfnunarfé er samkvæmt ársreikningum ABC skilað til starfslandanna, samtals kr. 2.572.022.962. Óútskýrður mismunum á söfnunarfé og því fé sem sent var til starfslandanna er kr. 90.969.128. Þegar rekstur ABC starfsins er skoðaður, samkvæmt ársreikningum, kemur fram að framlög til reksturs starfsins á þessum 13 árum, hafði einungis verið kr.42.351.028, eða að meðaltali kr. 3.257.771 á ári. Rekstrargjöld voru hins vegar samtals kr. 152.219.048. Útgjöld umfram rekstrartekur voru því samtals kr. 109.868.020.
Þó þær kr. 90.969.128 sem eftir voru af söfnunarfénu hefðu verið notaðar til að greiða hallarekstur upp á tæpar 110 milljónir og fjármagnstekjur tímabilsins einnig verið notaðar í slíkt, verður samt eftir óútskýrður hallarekstur upp á kr. 13.840.831, eða sem nemur rúmri einni milljón á hvert þessara 13 ára.
Hér hefur einungis verið drepið á fáeina þætti úr miklu fleiri atriðum sem dregin voru fram í greinargerðunum til Sýslumanns og Ríkisendurskoðanda. Þeir sem vilja kynna sér þetta nánar verða að hafa fyrir því að lesa greinargerðirnar og skoða gögnin. Þá sér fólk af hve einlægum Guðs kærleika starfsemi ABC hefur verið rekin undanfarin átta ár.
Sagt er að ABC hafi hugleitt að kæra Þórunni til efnahagsbrotadeildar, þó framkvæmdastjórinn hafi sagt beint við mig og í áhreyrn Guðrúmar Margrétar, að ekkert væri út á rekstur Þórunnar að setja.
Það sama var einnig sagt í utanríkisráðuneytinu varðandi skýrslu hennar um notkun þess opinbera styrks sem veittur var til skólabyggingar á lóð ABC Children's Aid í Kenya. Þar var mjög mikil ánægja með þau störf Þórunnar sem að þeim lutu.
Það er nokkuð merkilegt að verða vitni að því að staurblind eignarréttargræðgi fólks sem telur sig starfa á vegum Guðs kærleika, skuli ekki einu sinni fást til að fara eftir þeim samstarfssamning sem þau sjálf útbjuggu varðandi samstarf félaganna ABC á Íslandi og ABC Children's Aid í Kenya. Þegar sá samningur er lesinn kemur í ljós að þar er samningur á milli tveggja sjálfstæðra félaga með tvær óskildar stjórnir. Í þeim samningi er þriggja mánaða uppsagnarákvæði, af beggja hálfu en eftir þeim samningi er stjórn ABC á Íslandi ófáanleg til að fara. Þau ganga hins vegar fram af ótrúlegum fantaskap gagnvart börnunum í Kenya, sem líta á Þórunni og Samúle manninn hennar, sem einskonar foreldra sína og öryggisvörn.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.6.2015 | 19:46
Frá Barnahjálpinni ABC Children´s Aid Kenya
Fréttatilkynning.
Frá Barnahjálpinni ABC Children´s Aid Kenya
Upp er komin sú staða að félögin ABC Barnahjálp og ABC Children´s Aid Kenya eiga ekki lengur samleið. Þó að félögin deili nafninu þá eru þetta tvö sjálfstæð félög, annað skráð í Kenýa og hitt á Íslandi, með hvort sína stjórn. Formaður félagsins í Kenýa er ég, Þórunn Helgadóttir. Síðustu ár hefur verið náið samstarf á milli félaganna tveggja um uppbyggingu starfsins í Kenía en nú skilja leiðir. ABC Barnahjálp á Íslandi hefur einhliða hætt samstarfi við ABC í Kenía. Það þýðir að ABC Barnahjálp sendir ekki lengur neinar greiðslur stuðningsaðila barna í Kenýa til félagsins í Kenýa.
Takið eftir: Engar greiðslur stuðningsaðila barna hjá ABC í Kenýa hafa verið sendar út frá ABC Barnahjálp á Íslandi til starfsins í Kenýa í Maí og í Júní.
Á heimasíðum ABC Barnahjálpar hefur einnig verið birt tilkynning sem segir að Þórunn Helgadóttir og Samuel Lusiru Gona séu hætt störfum í Kenýa en við stjórn starfsins séu tekin Samúel Ingimarsson og Ástríður Júlíusdóttir.
Þessi tilkynning er röng. Ég, Þórunn Helgadóttir og Samuel Lusiru eiginmaður minn erum enn við störf sem stjórnendur starfsins í Kenía.
Ástæðan fyrir þessum samstarfs slitum er fyrst og fremst sú að ABC á Íslandi hefur tekið þá ákvörðun að sameinast sænskum samtökum sem kallast Children´s Mission. Það þýðir að öll yfirstjórn verkefna og meðferð fjármuna mun færast til Svíþjóðar. Stjórn ABC Kenýa óskaði eindregið eftir því að fá að standa utan við þessa sameiningu við sænsku samtökin og því skilja leiðir.
Hugsjón okkar og hjarta slær enn heitt fyrir börnin í Kenýa. Við höfum helgað þessu starfi allt okkar líf síðustu 9 árin og hyggjumst halda því ótrauð áfram. Til að starfið geti haldið áfram hafa verið stofnað önnur samtök á Íslandi sem munu standa við bakið á starfinu í Kenýa í framtíðinni. Hið nýstofnaða félag heitir Íslenska Barnahjálpin og mun héðan af halda utan um allar greiðslur stuðningsaðila barna í Kenýa sem og aðra styrki og gjafir.
Við viljum beina þeim tilmælum til stuðningsaðila barna ABC í Kenýa að þið setjið ykkur í samband við Íslensku Barnahjálpina ef þið getið hugsað ykkur að halda áfram að styrkja börnin ykkar í Kenía. Netfangið er: postur@barnahjalpin.is. Vefsíðan er www.barnahjalpin.is. Eins er hjálp nýrra stuðningsaðila vel þegin eða einstakar gjafir á þessum tímamótum. Söfnunar reikningsnúmerið okkar er: Banki 0515-14-410660 Kt. 410615-0370
Þó að þessi viðskilnaður við ABC Barnahjálp á Íslandi sé okkur hjá ABC Kenýa mjög sár og ekki samkvæmt okkar óskum, þá erum við mjög þakklát fyrir það góða samstarf sem við höfum átt við samtökin ABC Barnahjálp á Íslandi síðustu ár. Við þökkum þeim hjartanlega fyrir þann tíma sem við höfum átt saman og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni. Sömuleiðis þökkum við ykkur stuðningsaðilum barnanna og öðrum velunnurum fyrir stuðningin undanfarin því án ykkar gætum við ekki starfað.
Virðingarfyllst,
Þórun Helgadóttir,
Formaður ABC Children´s Aid Kenya
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2015 | 21:35
Umsögn um Makrílfrumvarpið
Alþingi Íslendinga, nefndasvið,
- þing 2014 2015
Reykjavík 30. apríl 2015
Umsögn um mál nr. 691,
um stjórn veiða á Norðaustur-Atlandshafsmakríl.
Undirritaður sýnir með áhresluletri eða litabreytingum á letri, hvaða atriði hann beinir athygli sinni að.
2. gr. Ákvörðun heildarafla.
Ráðherra skal ákveða árlega með reglugerð heildarafla makríls sem íslenskum fiskiskipum er heimilt að veiða.
Ef tekið er mið af því hvernig 2. gr. Stjórnarskrár Íslands hljómar, liggur nokkuð ljóst fyrir að Alþingi sé óheimilt að afhenda ráðherra ákvarðanirsem bera í sér löggjafargildar. Umrædd ákvörðun 2. gr. er t. d. slíkt dæmi, þar sem Ísland hefur ekki viðurkennda nýtingarhlutdeild í hinum sameiginlega makrílstofni með öðrum þjóðum Norðaustur-Atlandshafsins sem nýta stofninn. Meirihluti þessara þjóða hefur gert með sér nýtingarsamning en ráðherra okkar hefur engan slíkan samning við hin ríkin til að styðjast við. Spyrja má hvort ákvarðanir ráðherra okkar í svona tilviki, hafi lögformlegt gild gagnvart öðrum þjóðum sem nýta stofninn? Hvort þær þjóðir geti hafnað að þeim heimildum sem hann gefi út. Þar sem um að ræða einhliða ákvarðanir minnihlutaaðila sem ekki hafi lögformlegan gildisþátt í þessu samstarfsverkefni. Þeir gætu bent á að einhliða ákvörðun ráðherra á Íslandi hafi ekki lagagildi, sem m. a. ræðst af ákvæðum 2. gr. stjórnarskrár þar sem segir eftirfarandi:
2. gr. Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Forseti og önnur stjórnarvöld samkvæmt stjórnarskrá þessari og öðrum landslögum fara með framkvæmdarvaldið. Dómendur fara með dómsvaldið.
Eins og sjá má, stendur þarna skýrum stöfum að: Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið. Ráðherrar tilheyra allir framkvæmdavaldinu og samkvæmt sjálfstæðri þrígreiningu megin valdsþátta í stjórnskipan okkar, samkvæmt 2. gr. stjórnarskrár, hafa ráðherrar ekki löggjafarvald á hendi. Þeir geta því ekki tekið ákvarðanir sem hvorki byggjast og lögum frá löggjafarvaldinu eða milliríkjasamningum sem löggjafarvaldið hefur samþykkt. Heimild þeirra til stjórnunar með beinni ákvarðanatöku, án greinilegra lagafyrirmæla þar um frá Alþingi, er augljóslega ekki fyrir hendi.
3. gr. Tímabundnar aflahlutdeildir.
Aflahlutdeildir sem úthlutað er skv. 4. gr. eru tímabundnar og halda gildi sínu í sex ár frá gildistöku laganna. Óheimilt er að fella þær úr gildi, að hluta eða öllu leyti, með minna en sex ára fyrirvara. Sex ára gildistími aflahlutdeilda framlengist sjálfkrafa um eitt ár í senn hafi ákvæði þessu ekki verið breytt fyrir 1. janúar ár hvert.
Vakin er athygli á því að engar lagareglur hafa verið búnar til um hugtakið Aflahlutdeild. Hvað felst í þessu hugtaki? Hvernig ávinna aðilar sér slíka hlutdeild? Hvaða réttindi gefur hún og hvort telst hún vera EIGN viðkomandi handhafa hennar eða einungis nýtingarréttur á auðlind þjóðarinnar? Ef um EIGN handhafa hlutdeildar er að ræða, eru engin lög til um það hvernig fara beri með þá eign. Hvort henni skuli þinglýst á skip og hvert sé grunn verðgildi einingar, pr. kíló eða tonn. Engar reglur eru um hvaða skyldur gagnvart eiganda auðlindarinnar, þjóðinni, fylgi handöfn slíkrar hlutdeildar. Hvort heimilt verði að svipta aðila slíkri hlutdeild ef þeir sækja ekki þau þjóðaraverðmæti sem í hlutdeildinni felast.
Þá vaknar spurning um fjölþjóðlegt lagagildi þess að ráðherra, sem ekki hefur löggjafarvald, ákveði einhliða og án yfirlýsts stuðnings löggjafans, tiltekna aflahlutdeild lands okkar úr deilistofni sem margar þjóðir nýta. Einkanlega þar sem ekki væri um að ræða ákvörðun til eins árs, heldur í raun fasta varanlegta hlutdeild sem ekki megi fella úr gildi að hluta eða öllu leyti, með minna en 6 ára uppsagnarfresti.
Ég get ekki annað en spurt um lagaforsendur fyrir slíkri ákvörðun? Við höfum ekki enn, frá öðrum aðilum sem nýta stofninn, viðurkenndan nýtingarrétt á þessum stofni. Og hvað gerist ef hitastig sjávar breytist þannig að makríllinn komi ekki inn í lögsögu okkar? Hver er þá réttarstaða handhaga 6 ára samnings um tiltekna hlutdeild í einhverri huglægri stofnstærð sem ekki kemur á veiðisvæði okkar? Eiga þá handhafar hlutdeildar rétt á bótakröfu á hendur löggjafarvaldinu, sem færði þeim þessi merkilegu réttindi? Hver gæti kostnaður af slíku verið í 6 ár, þ. e. a. s. ef löggjafinn mundi bregðast strax við og segja upp hlutdeildinni á fyrsta ári aflabrests?
Hægt væri að gera ýmsar athugasemdir við 4. gr. frumvarpsins en læt þetta duga að sinni. Ef þingheimur virðir ekki þær athugasemdir sem þegar eru fram komnar, skiptir það sem eftir er litlu máli. Ég hef lengi haft orð á því að brýn þörf sé á mikið vandaðari vinnu við samsetningu lagafrumvarpa. Yfir höfuð bera þau með sér að vera samin af fólki með takmarakaða yfirsýn og þekkingu á því málefni sem stýra á með lögunum. Eru lögin um stjórn fiskveiða engin undantekning þar frá.
Ég óska ykkur velfarnaðar í starfi ykkar, landi og þjóð til heilla.
Virðingarfyllst,
Guðbjörn Jónsson kt: 101041-3289
Kríuhólum 4, 111 Reykjavík.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2015 | 12:39
Bréf til Ríkisskattstjóra
Spurningar
Um kaup á aflaheimildum á árinu 1989
sem fór ótrúlega leið um hið opinbera kerfi okkar, uns það varð að
Hæstaréttardómi nr. 291/1993 og fleiri tengd atriði.
Erindið, sem hér er borið fram, er vonandi dálítið sérstakt en þó mikilvægt, vegna þeirrar heimilda sem ég er að taka saman um sjávarútveg á Íslandi frá lýðveldisstofnun árið 1944. Ég varð dálítið undrandi þegar ég rakst á ofangreindan dóm, sem hér er vísað til. Að öllu eðlilegu hefði það mál sem þar er deilt um, ekki átt að geta komið fyrir dómstóla sem átök um skattaskil og eignfærslu í efnahagsreikning einkafyrirtækis, því þau viðskipti sem í dómnum var fjallað um, áttu ekki að geta farið fram með lögmætum hætti. Söluaðili var ekki löglegur eigandi þess sem hann seldi. Eigandi þess sem selt var hafði ALDREI gefið lögformlega heimild til sölunnar og EKKERT var til í lögum eða öðrum reglum, viðurkenndum af eiganda þess sem selt var, sem gat flokkast sem ótímabundinn langtímakvóti. Að hinu leytinu var um að ræða sölu á nýtingarétti sem útgerð fékk úthlutað ókeypis forgangsrétti til veiða tiltekið magn af fiski. Þar sem eigandi auðlindarinnar varð að forgangsraða úthlutun veiðiheimilda en jafnframt fá fulla nýtingu heildaraflans, er ljóst að þeim handhafa veiðiréttarins, sem ekki ætlaði sjálfur að nýta heimildina til veiða, bar að skila aflaheimildunum aftur til sjávarútvegsráðuneytis, án gjalds, svo ráðuneytið gæti úthlutað aftur án gjalds þeim aflaheimildum til annars skips. En kryfjum nú málið.
FORSAGA MÁLSINS.
Upphaf málsins virðist felast í því að árið 1989 kaupir útgerðarfélag aflaheimildir af öðru útgerðarfélagi. Hvernig þau viðskipti gátu farið fram fyrir opnum tjöldum er í raun afar áhugavert í ljósi þess að EKKERT útgerðarfélag hafði á þeim tíma, og hefur ekki enn, nauðsynlega og löglega eignarstöðu yfir aflaheimildum til að geta verið seljandi aflaheimilda. Þeim sem til þekkja á að vera ljóst að frá upphafi fiskveiðistjórnunar í ársbyrjun 1984 hefur sjávarútvegsráðherra einungis úthlutað aflaheimildum til eins árs í senn. Þá er til þess að líta að á árinu 1989 voru enn í gildi lög nr. 3/1988 um stjórn fiskveiða í takmarkaðan tíma eða til ársloka 1990.
Frá upphafi stjórnunar á aðgangi að fiskimiðum okkar, í ársbyrjun 1984, voru fyrstu tvenn lögin til eins árs hvert. Þá voru sett lög til tveggja ára, 1986 og 1987 og í ársbyrjun 1988 voru sett lög sem gilda áttu til ársloka 1990. Þau lög, nr. 3/1988, voru því í gildi þegar framangreind viðskipti áttu sér stað.
Þau viðskipti sem fram koma í umræddu dómsmáli eru í raun tvennskonar. Annars vegar kaup á aflaheimild ársins, sem dómurinn kallar (skammtímakvóta). Hins vegar voru kaup á því sem dómurinn nefnir AFLAHLUTDEILD, (langtímakvóta), sem veitir ótímabundna heimild til fiskveiða á nytjastofnum hér við land.
Það merkilega við þessi viðskipti er aðallega tvennt. Í fyrsta lagi að í lögum um stjórn fiskveiða á þessum tíma, lögum nr. 3/1988, var EKKERT talað um aflahutdeild eða langtímakvóta. Eins og áður var getið var aflaheimildum einungis úthlutað til eins árs í senn og í lögunum er talað um AFLAMARK, aflaheimild og veiðiheimild. Hugtakið AFLAHLUTDEILD eða (langtímakvóti), kemur ALDREI fyrir í þeim lögum sem giltu þegar viðskiptin áttu sér stað. Í þessu sambandi, og öðrum, er óskað svara frá Ríkisskattstjóra við eftirfarandi spurningum.
- Með fiskveiðistjórnun er verið að hefta frjálsan aðgang útvegsmanna að fiskimiðum okkar, vegna meintrar of mikillar sóknar í tiltekna veiðistofna. Grundvöllur fyrir úthlutun veiðiheimilda byggir á forgangsröðun leyfa til að veiða það heildarmagn sem talið er óhætt að veiða það árið. Þar sem fiskurinn er ein af meginundirstöðum tekjuöflunar þjóðfélagsins, gefur auga leið að fullnýting auðlindarinnar er þjóðinni afar mikilvæg. Út frá því sjónarmiði getur það aldrei orðið valkvætt fyrir þann, sem vegna forgangs síns fær úthlutað tilteknu magni aflaheimilda, hvort og þá hvernig hann nýtir hina úthlutuðu aflaheimild. Þjóðin þarfnast teknanna sem aflaheimildin gefur af sér í útflutningstekjum, þannig að útgerðin sem sækir fiskinn er einungis einn hlekkur í keðju tekjuöflunar þjóðarinnar. Komi eitthvað fyrir er hindri að úthlutunarhafi geti sótt það aflamagn sem honum var úthlutað, á honum að vera skylt að tilkynna það strax til Fiskistofu svo úthluta megi óveiddum hluta af úthlutun ársins til annars skips, í samráði við sjávarútvegsráðuneytið.
Eins og texti laganna hljóðar fylgir úthlutun veiðiréttar engin eignarréttindi í neinum skilningi, heldur tiltekinn forgangur að veiðum úthlutaðs aflamagns til tekjuöflunar fyrir þjóðfélagið. Í ljósi framanritaðs er spurt: Hvernig sér Ríkisskattstjóri lagaforsendur fyrir söluheimild á úthlutun forgangsréttar til veiða?
- Hugtakið AFLAHLUTDEILD, (langtímakvóti) hefur aldrei verið finnanlegt í lögum nr. 3/1988. Spurt er: Hvernig byggir Ríkisskattstjóri lagastoð undir þau viðskiptaheiti sem nefnd eru í framangreindu dómsmáli og hvernig útskýrir hann sölu á langtímakvóta á árinu 1989, t. d. með hliðsjón af 40. gr. stjórnarskrár?
- Eignfærsla verðmæta í efnahagsreikning, krefst sannanlegrar eignar seljandans á viðkomandi verðmætum. Sú sönnun felst t. d. í undirritun löglegs heimildaskjals til seljandans, frá skráðum eiganda, um að hann megi selja þau verðmæti sem seld eru. Kaupandinn sem hyggst eignfæra hinar keyptu aflaheimildirnar í efnahagsreikning sinn og fyrna samkvæmt skattalögum, verður að hafa undir höndum löglegan sölureikning frá skráðum eiganda hinna seldu verðmæta. Í þessu sambandi er spurt: Var sú sala sem að framan er getið og fór fram árið 1989, byggð á lögmætum skjölum, þar með lögum frá Alþingi (samanber 40. gr. stjórnarskrár) sem heimili söluna?
- Forsendur eignfærslu aflaheimilda samkvæmt framangreindum dómi, virðast fengnar með því að telja þann sem seldi AFLAHLUTDEILD (langtímakvóta), eiga rétt á einhverju hlutfalli útdeilds heildarafla næstu ára. Fyrir þeirri kenningu finnast hins vegar engin haldbær lagafyrirmæli, gögn eða rök.
ENGIN SKYLDA hvílir á sjávarútvegsráðherra að útdeila aflakvóta næstu ár eftir úthlutun með óbreyttu fyrirkomulagi. ENGIN haldbær rök eru því til sem gera ráðherra skylt að úthluta sömu skipum sama hlutfalli heildarafla ár eftir ár. Slíkt er andstætt þeirri meginreglu sem allir hagsmunaaðilar sameinuðust um á Fiskiþingi ársins 1983, við undirbúning fyrstu lagasetninguna um fiskveiðistjórnun, sem afgreidd voru rétt fyrir jólin 1983.
Umrædd fjöldasamþykkt var send Alþingi sem niðurstaða Fiskisþings 1983 og sú niðurstaða var staðfest af Alþingi sem meginregla, með því að láta óbreytta samþykkt Fiskiþings fylgja lögum nr. 82/1983, sem lögskýringarskjal. Fylgiskjali þessu var ekki ætluð tímamörk, þar sem það hefði ekki lengur gildi. Það átti hins vegar við um lögin sjálf. Þau giltu einungis til ársloka 1984 en lögskýringarskjalið hefur aldrei verið fellt úr gildi. Meginreglan frá upphafi, um hvernig standa skyldi að úthlutun aflaheimilda, hefur því verið óbreytt allan tímann. Sú meginregla kemur fram í 4. tölulið fylgiskjals laga nr. 82/1983 þar sem kveðið er á um, að aflareynsla þriggja síðustu ára fyrir úthlutun hverju sinni, skuli mynda grundvöll til úthlutunar aflaheimilda.
Með hliðsjón af framansögðu verður ekki séð að nein lagaheimild sé fyrir því að útgerð geti talið sig hafa sölurétt á AFLAHLUTDEILD (langstímakvóta), hvorki á árinu 1989 eða þeim árum sem liðin eru, allt til dagsins í dag. Alþingi hefur ekki enn breytt þeim meginreglum sem fólust í lögskýringarskjalinu með lögum nr. 82/1983, um hvernig skuli staðið skuli að úthlutun aflaheimilda. Alþingi hefur ekki enn fellt lögskýringarskjalið úr gildi og engar nýjar reglur lögfestar í stað þeirra reglna. Þær reglur eru því enn sá löglegi grundvöllur sem vinna á eftir við mat á hlutdeild skipa í heildarafla ársins. Af þessu tilefni er spurt:
Hvaða lagaheimildir hefur embætti Ríkisskattstjóra til að fallast á að seldar aflaheimildir, þar sem sala hefur ekki verið staðfest af Alþingi, samanber 40. gr. stjórnarskrár; að slík sala skuli viðurkennd sem lögleg ráðstöfun sem heimili eignfærslu í efnahagsreikning þeirrar útgerðar sem keypti?
- Frá 1. janúar 1994 hefur fiskur verið virðisaukaskattskyldur (VSK) í lægra skattþrepi. Aflaheimildum er úthlutað í magntöluvigt, kílóum eða tonnum. Seld aflaheimild er í raun ekkert annað en fyrirframgreidd sala á fiski, rétt eins og hver önnur fyrirframgreidd sala í hvaða vöruflokki sem er. Sama á við um þá sölu aflaheimilda sem í daglegu tali gengur undir nafninu kvótaleiga. Framangreindar fyrirframsölur fisks, hafa aldrei verið felldar undir vörur sem undanþegnar eru VSK. Það þýðir í raun að frá 1. janúar 1994 hefur sala (leiga) aflaheimilda verið VSK-skyld, en sá skattur ekki innheimtur af skattayfirvöldum. Enn skal svo vísað til 40. gr. stjórnarskrár, þar sem segir að: Engan skatt má á leggja né breyta né af taka nema með lögum. Í þessu sambandi er því spurt:
Hvað tefur skattayfirvöld frá því að innheimta lögskipaðan virðisaukaskatt af ÖLLUM sölum eða leigum aflaheimilda og beina þeirri innheimtu aftur í tímann svo langt sem lög leyfa um álagningu undanskota frá skatti?
- Í ljósi 4. Spurningar hér að framan og með vísan til ársreiknings HB Granda hf. fyrir tekjuárið 2014, með samanburðartilvísun til ársins 2013, kemur eftirfarandi í ljós. Allar upphæðir í ársreikningnum eru í Evrum, en undirritaður færði þær yfir í íslenskar krónur miðað við gengi 31.12. 2014 og setur þær upplýsingar í bláan lit og skáletur, til frekari aðgreiningar. Í Rekstrarreikning ársins 2014 kemur eftirfarandi fram:
- Árið 2014 Árið 2013
Seldar vörur í Evrum 214.911.000 195.033.000
Seldar vörur í Ísl.kr 33.154.319.970 30.087.740.910
Kostnaðarverð í Evrum 154.819.000 144.633.000
Kostnaðarverð í Ísl.kr 23.883.927.130 22.312.532.910
Við skoðun ársreikningsins kemur í ljós að afar takmörkuð sundurliðun er á rekstrargjöldum. Rekstrarútgjöld upp á tæpa 24 milljarða ísl. króna bera enga sundurliðun í rekstrarreikning og ekkert skýringarnúmer, þannig að sundurliðun sé í skýringum. Undirritaður er afar undrandi á þessum vinnubrögðum, minnugur margra athugasemda frá skattayfirvöldum ef ósundurliðuð samtöluupphæð í uppgjöri fór yfir 10% af rekstrarkostnaði.
Hvað varðar rekstrarkostnað vek ég t.d. athygli á umtalsverðum fjölda tilfærslna á aflaheimildum á árinu 2014. Færslurnar eru samtals 460 með samtals rúmlega 18.518 tonn, sem færast á milli skipa. Þar af eru 9.200,5 tonn sem færast á milli skipa sömu útgerðar en samtals 9.317,8 tonn færast á milli óskyldra aðila. Sérstök athygli er vakin á því að allar þessar tilfærslur aflaheimilda skila þó fyrirtækinu HB Granda hf. ekki nema 0,10% aukningu þorskígilda.
Ef mið er tekið af verði á aflaheimildum milli óskyldra aðila, er þarna um umtalsverðar fjárhæðir að ræða, sem vart getur verið ásættanlegt að ekki komi fram í rekstrarreikningi. Þarna er óumdeilanlega um að ræða kaupa og söluferli milli óskyldra aðila, sem eiga að bera í sér veltuskatta til ríkissjóðs.
Þar fyrir utan, eins og Ríkisskattstjóri veit væntanlega, hefur fyrirframgreidd sala á fiski (kvótasala) aldrei verið undanþegin greiðslu virðisaukaskatts. Það virðist því ljóst að í þessu umfangsmikla söluferli aflaheimilda, sem stærsti handhafi aflaheimilda á öllu landinu hefur stundað á árinu 2014, hefur skilaskylda viðkomandi aðila á virðisaukaskatti af viðskiptunum verið fullkomlega sniðgengin, ásamt því að viðskiptin virðast ekki hafa verið færð á löglega sölureikninga með staðfestri söluheimild hins löglega eiganda auðlindarinnar sem selt var úr.
Í ljósi þess að undirritaður er að skrá sögu sjávarútvegs á Íslandi frá Lýðveldisstofnun til vorra daga, er lögð áhersla á mikilvægi þess að fá greinargóð og skýr svör við framangreindum spurningum. Leyfir undirritaður sér að vænta slíkra svara svo fljótt sem auðið er, því samhljóða spurningar og nokkrar til viðbótar, verða lagðar fyrir viðkomandi þingnefnd, fjármála- og atvinnumálaráðuneytin, til að afla sem gleggstra upplýsinga.
Virðingarfyllst
Reykjavík 27. apríl 2015
Guðbjörn Jónsson
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2015 | 17:17
ERU AFLAHEIMILDIR EIGN ÚTVEGSMANNA ??
Á fyrstu tveimur árum fiskveiðistjórunar eru sett einföld lög sem aðeins giltu til eins árs í senn. Fyrri lögin fyrir árið 1984 og nánast eins lög fyrir árið 1985. Síðan voru sett lög sem giltu fyrir tvö ár, þ. e. árin 1986 og 1987. Í fjórðu lotu voru svo sett lög til þriggja ára þ. e. 1988 til ársloka 1990, en það ár voru sett ótímasett lög nr. 38/1990, sem tóku gildi í ársbyrjun 1991.
Á þessum fyrstu árum fiskveiðistjórnunar voru verulegar takmarkanir á heimildum til að flytja aflaheimildir milli skipa. Var slíkt bundið við skip sömu útgerðar, skip frá sömu verstöð, eða um væri að ræða jöfn skipti, í þorskígildum talið. Annar flutningur aflaheimild var ekki heimill.
Aflaheimildum hefur frá upphafi einungis verið úthlutað í formi ókeypis nýtingarréttar auðlindarinnar til eins árs í senn. Og það heildarmagn sem veiða má af hverri fiskitegund, á hverju ári, takmarkast af tillögu Hafrannsóknarstofnunar um heildarafla úr helstu nytjastofnum, fyrir eitt ár í senn. Í upphafi var mikið deilt um aðferðir við að skipta leyfðu heildarmagni niður á einstök skip.
Á Fiskiþingi árið 1983, áður en fyrstu lögin voru sett, náðist nokkuð víðtækt samkomulag um hvernig mynda skildi áunninn rétt skipa til úthlutunar aflaheimilda. Var sú regla, ásamt mörgum öðrum ákvörðunum, sett í skjal sem sent var Alþingi sem ályktun Fiskiþings.
Skjali þessu breytti Alþingi ekkert en gerði það í heild sinni að fylgiskjali með fyrstu lögunum nr. 82/1983, einskonar (lögskýringarskjali) um fjölmörg atriði er vörðuðu takmörkun heimilda til fiskveiða. Þau lög voru með afar umdeilanlegum hætti þvinguð, með næturfundum, í gegnum Alþingi sem fyrir var að venju með yfirhlaðna dagsrkrá, rétt fyrir jól árið 1983.
Úthlutunarregla aflaheimilda, sem breiðfylking aðila í sjávarútvegi samþykktu á Fiskiþingi 1983, var af Alþingi meðtekin og send með lögunum til framkvæmdavaldsins, sem meginregla til úthlutunar aflaheimilda milli skipa. Var það reglan úr 4. tölulið skjalsins frá Fiskiþingi ársins 1983, um að meðaltals veiði síðustu þriggja ára fyrir úthlutun aflaheimilda, skildu mynda veiðireynslu til grundvallar úthlutunar aflaheimilda hvers skips úr leyfðum heildarafla komandi fiskveiðiárs.
Þessa grundvallarreglu sátta um fiskveiðistjórnun hunsaði hinn nýskipaði sjávarútvegsráðherra, sem var vanhæfur til starfans þar sem hann var sonur stórútgerðarmanns og hluthafi í fjölskylduútgerðinni. Framhjá þessu alvarlega broti á vanhæfisreglu hefur Alþingi alla tíð litið og þo ítrekað hafa verið vakin athygli á þessu broti, hefur Alþingi verið ófáanlegt til að fjalla um þau fjölþættu stjórnarskrárbrot sem falist hafa í fiskveiðistjórnun alveg frá upphafi slíkrar stjórnunar á árinu 1984.
Nafn þessa pistils er spurning sem um nokkurt skeið hefur brunnið í huga mikils meirihluta þjóðarinnar, án þess að Alþingismenn okkar hafi séð sóma sinn í að svara umbjóðendum sínum af hreinskilni varðandi spursmálið. Getur raunveruleikinn verið sá að þingmenn þjóðarinnar hafi ekki nauðsynlega þekkingu til að geta tekið afstöðu til mikilvægustu spurningar sem þjóðin ætlast til að þeir svari. Spurningar sem lengi hefur verið uppi varðandi eina af helstu gjaldeyrisauðlindum þjóðarinnar? Hver getur ástæða verið fyrir því að þingmenn allra flokka hafa í áratugi verið eins og kettir í kringum heitan graut, í þessu máli. Enginn þorað að hverfa frá málinu og segja það ekki koma Alþingi við. Enginn hefur heldur þorað að taka af festu og einurð á því óréttlæti sem viðgengist hefur í fiskveiðistjórnun frá upphafi slíkrar stjórnunar árið 1984.
Segja má að frá upphafi hafi framganga við stjórnun fiskveiða í öllum meginatriðum verið í hrópandi andstöðu við stjórnarskrá, virtar laga- og siðferðisreglur. Heildarhagsmunum þjóðarinnar hafi stöðugt verið fórnað fyrir sérhagsmuni lítils hluta þjóðarinnar. Flest bendir til að sú þróun sem verið hefur, hafi náð að festast í sessi vegna raunverulegs þekkingarskorts þingmanna á mikilvægi sjávarúrtvegs í fjármunaveltu, fjölbreytni atvinnulífs og verðmætasköpun fyrir flestar sjávarbyggðir landsins m. a. með úrvinnslu sjávaraflans.
Hér eru stór orð höfð uppi, en ekki af ástæðulausu. Ég er að skrá sögu sjávarútvegs á Íslandi frá lýðveldisstofnun til vorra daga. Sú saga er fjarri því að setja útvegsmenn okkar í einhvern dýrðarljóma. Því miður eiga þingmenn hvers tíma líka svo sannarlega sinn skerf af hörmungunum, því segja má að gegnum sneitt komi þeir fram eins og efnahagslegir óvitar sem ekki kunni heimilum sínum forráð í fjármálum. Raunveruleikinn sýndi þó annað um fjármálavit þeirra til eigin hagsbóta. Það vekur hins vegar spurningar um hvers vegna þeir virtust iðulega öllu slíku viti fyrrtir, í störfum sínum á Alþingi, þegar um var að ræða að gæta hagsmuna þjóðarheildarinnar, sem þeir þó tóku að sér að stjórna.
Við skulum grípa niður í söguna við upphaf áttunda áratugs síðustu aldar, þegar mikil umræða var um of stóran fiskiskipaflota hjá okkur og að erlendir Ryksugutogarar væru að mati útvegsmanna, að eyðileggja fiskimið okkar. Sameiginlegt átak útvegsmanna og Alþingismanna þessa tíma var, samhliða útfærslu landhelginnar, að auka togaraflota landsmanna úr 20 gömlum síðutogurum, í 116 skuttogara á fáeinum árum. Samhliða útfærslu landhelginnar í 50 sjómílur færðist erlendi veiðiflotinn burtu af helstu fiskimiðum landsmanna en nýir og öflugri íslenskir skuttogarar komu í staðinn.
Á fystu árum níunda áratugsins fór af stað umræða um að takmarka yrði aðgang hins alltof stóra íslenska fiskiskipastóls landsmanna, að fiskimiðum landsins, svo helstu nytjastofnum yrði ekki eytt með öllu. Bent var á reynslu frá öðrum löndum, þar á meðal frá Nýfundnalandi, þar sem togarafloti flestra landa heims, ofveiddi fiskistofna, með of miklu álagi. Engu var líkara en ráðamenn hér færu á taugum því skynsemi virtist hafa flúið Alþingishúsið og stjórnarráðið.
Á árinu 1983 urða ráðherraskipti í sjávarútvegsráðuneytinu hjá okkur. Steingrímur Hermannsson, sem verið hafði sjávarútvegsráðherra, lét af því starfi. Í ljósi þess að fyrir dyrum stóð að hefja takmörkun á aðgangi útvegsmanna að fiskveiðiauðlind þjóðarinnar, var augljóst að mikilvægt var að vanda vel til vals á nýjum sjávarútvegsráðherra. Í þeirri vandasömu stöðu brugðust Framsóknarmenn þjóðinni alvarlega, þegar þeir völdu son eins stærsta útgerðarmanns landsins til að taka við starfi sjávarútvegsráðherra. Mann sem á alla mælanlega vegu var vanhæfur til að taka að sér það embætti, við þær aðstæður sem uppi voru og fyrirhugaða framvindu við stjórnun fiskveiða hér við land.
Málið hefði svo sem ekki þurft að verða mjög alvarlegt ef Alþingi, og þá sérstaklega sjávarútvegsnefnd þess tíma, hefði gætt skyldu sinnar við þjóðina og framfylgt eðlilegri stjórnun löggjafans í svo mikilvægu tekjuöflunarmáli þjóðarbúsins. En því fór fjarri að Alþingi gætti hagsmuna þjóðarinnar. Alþingi framseldi hinum vanhæfa sjávarútvegsráðherra allt löggjafar-, skipulags- og framkvæmdavald við stjórnun fiskveiða, með því að segja aðeins, í þeim lögum sem Alþingi samþykkti, að sjávarútvegsráðherra ákvæði alla skapaða hluti með reglugerð eða ráðherra tilskipunum.
Þegar til þess er litið hvernig stjórnskipan okkar er uppbyggð, ætti þingmönnum að vera ljóst að Alþingi á með öllu að vera óheimilt að afhenda ráðherrum löggjafarvald sitt, því löggjafarvald má með engu móti verða til staðar hjá framkvæmdavaldinu, vegna þrískiptingar stjórnskipanar okkar.
Í 2. gr. stjórnarskrár er afar skýrt kveðið á um hvernig þrískipting valdsstjórnar okkar er háttað. Þar segir í fyrsta lagi að Alþingi og forseti Íslands fari saman með löggjafarval. Í öðru lagi segir að Forseti og önnur stjórnvöld samkvæmt stjórnarskrá þessari og öðrum landslögum fari með framkvæmdavalið. Og í þriðja lagi fari Dómendur með dómsvaldið.
Þegar þessi skipting valdssviða er skoðuð, kemur í ljós að öll þessi þrjú valdssvið eiga að vera sjálfstæð og aðskilin. Ekki er gert ráð fyrir beinni tengingu á milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds. Forsetinn tengist að vísu báðum þessum valdsþáttum en hann er ekki beinn þátttakandi í daglegri stjórnun landsins, heldur á að vera sem eftirlitsaðili með eðlilegri starfsemi bæði löggjafarvalds og framkvæmdavalds. Samkvæmt skýrum skilum milli löggjafarvalds og framkvæmdavalds, þá eiga ráðherrar ALLS EKKI að eiga þingsæti á löggjafarþingi, samhliða því að gegna embætti ráðherra. Það er brot á 2. gr. stjórnarskrár.
Af þeim sömu ástæðum á Alþingi að vera óheimilt að afhenda ráðherra löggjafarvald. Slíkt vald felst m. a. í því að ráðherra ákveði með einhliða ákvörðun sinni, mikilvæg framkvæmdaatriði við stjórnuna einhverra mikilvægra málefna þjóðfélagsins. Undir slíkan flokk fellur t. d. fiskveiðistjórnun, með hliðsjón af mikilvægi atvinnugreinarinnar fyrir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Stjórnun fiskveiða hefur því frá upphafi verið framkvæmd með ólögmætum hætti og Alþingi til mikils vansa að hafa ekki mikið fyrr gripið inn í og stöðvað hið alvarlega lögbrotaferli.
EN EIGA ÚTVEGSMENN KVÓTANN ???
Þegar maður les næsta óútskýranlegan kjánaskap eftir ýmsa lögspekinga sem þjóðin hefur vanist að megi taka mark á, þar sem þeir leitast við að færa rök fyrir eignarrétti útvegsmanna á aflaheimildum í fiskveiðilögsögu landsins, kemur glögglega í ljós að þeir eiga erfitt með að skrökva. Þess vegna er rökfærsla þeirra eins kjánaleg og raun ber vitni.
Ein helstu rök þeirra eru að við upphaf aflastýringar hafi verið ákveðið að EINUNGIS þau skip sem verið höfðu við veiðar árin 1981 1983 ættu ein rétt á allri úthlutun aflaheimilda og þau skip ein ættu rétt á að skipta á milli sín þeim heildarafla sem leyft væri að veiða á hverju ári. Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt því þessi regla var aldrei sett í lög. Sú regla sem látin var hafa löggildingu, var hin víðtæka samþykkt á Fiskiþingi ársins 1983, þar sem fram kom í 4. tölulið lögskýringarfylgiskjals með lögunum, að hverju sinni skildi veiðireynsla síðustu þriggja ára, fyrir úthlutun, gilda sem hlutfallstala skips við skiptingu heildarafla ársins á milli veiðiskipa. Þetta sveikst hinn vanhæfi sjávarútvegsráðherra þess tíma um að framkvæma og setti reglu sem stangaðist á við lögskipaða ákvörðun Alþingis.
Næstu rök hafa verið þau að útvegsmenn séu búnir að KAUPA aflaheimildir sínar dýru verði og eigi því stjórnarskrárvarinn eignarrétt til þeirra. Sannleikurinn í þessu máli er sá að útvegsmenn hafa keypt, á uppsprengdu veðri, aflaheimildir af ÖÐRUM útvegsmönnum, ýmist úthlutað aflamarks (kvóta) ársins, en hins vegar það sem útvegsmenn hafa kallað Aflahlutdeild.
Hugtakið Aflahlutdeild hefur aldrei verið skilgreint í lögum. Lítur helst út fyrir að útvegsmenn séu þar að skáka í skjóli þeirra ólögmætu sérréttinda sem þeir telja sig hafa á grundvelli þess að þeir einir sem voru við veiðar árin 1981 1983, eigi allan rétt til úthlutunar aflamarks hverju sinni. Þann rétt sem þeir fengu við skiptingu heildarafla fyrsta ársins, 1984, kalla þeir Aflahlutdeild. Hafa þeir haldið því fram að sú hlutdeild eigi að vera óbreytt milli ára, einskonar fastar aflaheimildir. Það er ein þeirra röksemda sem þeir beita í áróðri sínum fyrir því að þeir eigi rétt á sama hlutfalli heildarafla á hverju ári, óháð veiðireynslu undangenginna þriggja ára.
Þessi túlkun stenst hvorki lög né stjórnarskrá. Merkilegt er að ALLIR sjávarútvegsráðherrar, frá árinu 1984, hafi vikið hagsmunum þjóðarinnar til hliðar, til að þjóna sérhagsmunum tiltekinna útvegsmanna. Þeim hefur liðist að taka eina helstu gjaldeyrisauðlind þjóðarinnar í gíslingu til eigin tekjuöflunar. Þeim hefur verið liðið að selja úthlutaðan nýtingarrétt til fiskveiða, þó úthlutun fylgi hvorki eignarréttur né varanlegt forræði.
ENGINN útvegsmaður hefur lögformlega heimild til að SELJA aflaheimild. ENGINN útvegsmaður hefur með lögformlegum hætti yfirráð eða eignarheimild yfir svonefndri Aflahlutdeild, sem óbreytt skuli vera á mili ára. Margir þættir koma til að slíkur óbreytanleiki er ekki mögulegur í núverandi kerfi.
Má þar t. d. Nefna margháttuð inngrip sem ráðherra eru heimil samkvæmt lögunum. Þá má nefna heimildir til veiða umfram úthlutaðar aflaheimildir ársins. Slík umframveiði kemur ekki fram hjá öllum skipum, skipt eftir aflahlutdeild, heldur skekkir hlutdeild þeirra skipa sem veiða umfram heimildir. Margir fleiri þættir koma til sem gera ómögulegt að halda aflahlutdeild óbreyttri milli ára.
Má þar t. d. nefna að ef aflahlutdeild skal undanbragðalaust vera óbreytt milli ára, þá getur enginn seld aflahlutdeild frá skipi, því honum væri óheimilt að láta hana frá skipinu, þar sem lög segji fyrir um að aflahlutdeildin skuli vera óbreytt milli ára. Enginn heimild væri þá til að selja aflahlutdeild því lögskipað væri að hlutdeild skips væri óbreeytt milli ára og engar undanþágur frá þeirri reglu.
Sama ætti í raun við um það skip sem keypti aflahlutdeildina. Það skip væri fyrir með aflahlutdeild og sú aflahlutdeild skal vera óbreytt milli ára. Engin heimild er í lögum sem heimili að auka hlutdeild einstakra skipa á kostnað allra hinna. Skipið gæti því ekki fengið löglega heimild til að bæta við sig hinni keyptu aflahlutdeild, þar sem hin keypta aflahlutdeild væri ekki byggð á eigin veiðireynslu. Engin heimild er í lögum um stjórn fiskveiða sem heimili útgerðum að kaupa aflahlutdeild frá öðrum útgerðum.
Hér hefur verið bent á nokkur þeirra fjölmörgu atriða sem sýna að núverandi framkvæmd fiskveiðistjórnunar stenst engar venjulegar lagaforsendur. Tæmandi upptalning allra þeirra þátta er of viðamikið fyrir svona grein. Það virðist líka vera nokkuð sama hvort sýnt sé fram á fullkomið ólögmæti framkvæmdar við fiskveiðistjórnun. Ef svarað er, þá er þrætt fyrir að um lögbrot sé að ræða og þolendur lögbrota þannig þvingaðir til málaferla fyrir dómi, vilji þeir leita réttar síns. Það þýðir í raun að framkvæmdavaldið og löggjafarvaldið stilla sér upp við hliðina á þeim sem arðræna samfélag okkar, í stað þess að láta refsa þeim sem brjóta grundvallarlög og reglur samfélagsins.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2014 | 02:00
Er verkfallsvopnið í hættu ???
Fólki í lægri þrepum launastigans er afar mikilvægt að virðing sé borin fyrir verkfallsvopninu sem var komið á að frumkvæði láglaunafólks, í þeim tilgangi að verja lágmarkslaun við það mark að 8 tíma vinna 6 daga vikunnar, dygði til framfærslu meðalfjölskyldu. Sá draumur hefur að vísu aldrei ræst en fyrir því eru svo sem til gildar ástæður.
Verkfallsvopnið var í upphafi eingöngu heimilt til afnota fyrir fólk innan Alþýðusambands Íslands, sem þá var eingöngu samband verkafólks. Fyrstu árin gekk nokkuð vel að rétta við launakjör láglaunafólks sem varð til þess að menntafólk fór að sækjast eftir að fá verkfallsheimild en var hafnað. Sneru þeir þá blaðinu við og óskuðu eftir aðild að Alþýðusambandi Íslands, en gættu þess að nefna ekki að þeir væru að sækjast eftir að komast í stöðu til að geta beitt verkfallsvopninu í kjarabaráttu sinni.
Við þessa breytingu færðist verkfallsvopnið frá því að vera baráttutæki til varnar því að laun fyrir verkamannavinnu dygði fyrir hóflegri neyslu meðalfjölskyldu. Þar sem verkfallsvopnið hafði eingöngu verið beitt til hækkunar launataxta verkafólks, hafði hækkana jafnan verið krafist í prósentuvís. Hafði það ekki valdið neinum umtalsverðum breytingum á launahlutföllum. Það fór hins vegar að breytast með tilkomu menntafólks í raðir ASÍ fólks.
Menntafólkið var almennt á töluvert betri launum en verkafólk. Það beitti sömu aðferð og verkafólk og krafðist kjarabóta í prósentuvís, sem varð til þess að laun þess hækkuðu meira en laun verkafólks. Ástæðan var sú, sem reyndar er enn, að samtök menntafólks fór í samningaviðræður á eftir verkafólki. Náði þannig aðeins betri prósentutölu sem einnig reiknaðist á hærri laun en verkafólks, þannig að kjarabætur menntafólks urðu stöðugt meiri en kjarabætur verkafólks. Við þessar aðstæður fór launabilið að aukast og verkfallsvopnið var ekki sama baráttutæki verkafólks og verið hafði, þar sem flestar stéttir voru nú farnar að beiti því í sinni kjarabaráttu.
Þegar launahlutföll fóru að skekkjast meira, á neikvæða evginn fyrir verkafólk, fór það að krefjast hærri prósentuhækkana í sínum kjarasamningum, til að vinna upp það launabil sem hafði skapast. Gekk þetta svolítið eftir í fyrstu en menntastéttirnar voru ekki á því að leyfa þessa leiðréttingu því þær stéttir, sem almennt voru með umtalsvert hærri laun en verkafólk, fór nú fram á aðeins hærri prósentuhækkun en launafólk fékk til leiðréttingar. Afleiðingin var aðeins meira launabil en verið hafði, í stað þess að launabilið minnkaði aðeins.
Afleiðingar þess eltingaleiks sem hér var lýst er í raun annar fóturinn undir óðaverðbólgu síðustu áratuga liðinnar aldar, þar sem verðbólga fór yfir 80% og kröfur um launahækkanir náðu 30% á þriggja mánaða fresti. Á sama tíma hækkuðu tekjur þjóðfélagsins ekkert í erlendum myntum. Gengi krónunnar var því fellt til að búa til það aukna peningamagn sem launahækkanir, verðhækkanir, bæði af völdum gengisfellinga og innlendra hækkana til að fá inn fyrir hækkuðum launum. Samspil þessara þátta bjó til verðbólgu sem setti af stað vítahring sem stjórnmálamenn gátu ekki leyst.
A AÐ ENDURTAKA KAPPHLAUP ÓRAUNVERULEIKANS ??
Eftir að hafa hægt en bítandi nálgast vitræn vinnubrögð við rekstur samfélags okkar, með lækkandi launakröfum og lækkandi verðbólgu, blasir nú við opinber aðför að fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í óskiljanlegum kröfum lækna. ENGINN STÉTT innan þjóðfélagsins getur með nokkurri sanngirni miðað sig við launakjör í öðrum löndum því rekstrargrundvöllur samfélags okkar er byggður á allt öðrum forsendum. Úskýringar á því eru dálítið flóknar en í stuttu máli má segja að það stafi af því að þegar við gerðum EES samninginn, voru framleiðslugreinar fyrir innlendan markað í raun settar í þrot vegna þess að ekkert var hugað að því hve mikilvægt það væri fyrir landsframleiðsluna að efla innlenda iðnaðarframleiðslu til að auika innlenda peningaveltu.
Af hreinum óvitaskap eyðilögðum við hina raunverulegu sjálfbærni samfélagsins okkar á tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar aldar. Óvitaskap sem fyrst og fremst verður rakinn til stjórnvalda og Alþingis. Flestar þær aðgerðir sem um ræðir hefðu, hver um sig, dugað til þess að vera reknir frá stjórnun fyrirtækis. Hér voru þessir aðilar hins vegar blessaðir og umvafðir dýrðarljóma, sem svo allt í ainu slökknaði á undir árslok 2008. En af hverju skildi ég segja að kröfur lækna séu ávísun á nýja óðaverðbólgu. Skoðum það aðeins.
Hérna getum við séð hvernig við fórum með tekjur okkar frá 1997 til 2013. Ljósbláa línan er einskonar viðskiptajöfnuður, mismunur inn- og útflutnings. Greinilega sést hvernig allt jafnvægi fer þegar það fer saman að stóru ríkisbankarnir eru seldir og krónan látin fljóta frjáls í heimsviðskiptunum, líkt og um stærstu mynt veraldar væri að ræða. Við slíkar aðstæður koma algjörlega nýir menn að stjórnun stóru bankanna. Menn sem EKKERT hugsa um eðlilega þjóðfélagsþróun en setja af stað hlutafjárkapphlaup og verðmætalausa eignaaukningu verðbréfamarkaðar. Sjá má á rauðu línunni hvar fer að bera á lausafjárskorti. En hið sérstæða er fyrir tekjugreinar okkar að við hruni 2008 féll gengi krónunnar verulega en það olli verulega auknum tekjum útflutningsgreina. En innflutningur eykst einnig, þannig að tekjuafgangur varð ekki mikill. En hvernig er svo heildarmyndin?
Hér sést velta á þjóðfélaginu. Rauða línan (Verg landsframleiðsla) sýnir alla veltu í landinu. Græna línan sýnir þjóðarútgjöldin og fjólubláalínan sýnir útflutningstekjurnar. En skoðum aðeins nánar hvað er að baki þessari uppsveiflu á útflutningstekjum. Sjáum það á næstu mynd.
Á þessari mynd sést að uppsveiflan um aldamótin 2001 eru bæði af völdum magnaukningar og verðhækkunar. Uppsveiflan 2007 til 2013 er vegna verðhækkunar sem rekja má að mestu til gengisaskráningar íslensku krónunnar. En lítum þá á hvenrig þjóðarútgjöldin skiptast.
Á þessari mynd sést hvernig þjóðarútgjöld skiptast á milli einkaneyslu (allt sem rekið er af einkafyrirtækjum eða einstaklingum), samneyslu (allt sem rekið er af opinberum aðilum) og fjármunamyndunar (fjármálaumhverfið). Þegar Skoðuð er hin mikla aukning þjóðarútgjalda eftir að gengisskráning krónunnar er gefin frjáls, verður einnig að líta til þess að á þessum sama tíma eru stóru ríkisbankarnir seldir og nýir eigendur þeirra fara út í einskonar fjárhættuspil. Áhrifin frá því kemur að mestu fram í fjármálaumhverfinu (ljósbláu línunni) en hefur þó nokkur áhrif á samneyslu og einkaneyslu. Lítum þá næst á hvernig Hagstofan sundurliðar liðinn Fjármunamyndun. Sjáum næstu mynd.
Þegar litið er á þessa mynd sýnir rauða lína fjármunamyndunina sem kom fram á síðustu mynd. Þarna sést einnig að aðaláhrif uppsveiflunnar er frá atvinnuvegum landsins, þar með talið fjármálaumhverfið, bönkum og Kauphöll. Ástæða þessarar uppsveiflu eru að mínu mati hreinir fjárglæfrar nýrra stjórnenda bankanna. Þeir fóru í raun að leika sér með fjöregg þjóðarinnar. Þeir fundu glufu í lögum um fjármálafyrirtæki, þar sem þeir gátu búið til gerfi verðmætisaukningu fyrirtækja, án þess að nokkur raunverðmæti væru þar að baki. Að hluta var þetta drifið áfram með erlendum skammtímalánum en að mestu með kauphallarbraski. Þar var búin til ævintýraleg verðmætisaukning hlutabréfa sem færði upp verð á hlutabréfum fyrirtækja langt upp fyrir raunverulega veltuaukningu eða hagnað. Ekki verður eytt plássi í nákvæmar útskýringar á þessum svikamyllum hér en þessi mynd dregin fram til að sýna umfangið. Mörgum fannst mikið til að allar húsbyggingarnar á árunum fyrir hrun, en á fjólubláu línunni sést hve það var í raun lítill hluti af allri glæfrastarfseminni. Samt alltof mikið þegar þess er gætt að megnið af þeim húsbyggingum var framkaæmt fyrir erlend skammtímalán. En peningar sem steyptir eru fastir í hús, verða ekki endurgreiddir eftir 3 - 5 ár frá lántöku.
Í ljósi þess sem hér hefur verið rakið teldi ég mikilvægt að þær stéttir sem telja rekstur samfélagsins geta borið miklar launahækkanir, þeir bendi á hvar sé svigrúm eða lausir peningar til að mæta kröfum þeirra. Er kannski ætlun þeirra að steypa þjóðinni aftur út í óðaverðbólgu sem rústi á skömmum tíma öllu atvinnulífi of meginþorra heimila í landinu. Eru þessir aðilar tilbúnir að bera ábyrgð á slíku gagnvart fólkinu í landinu?
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- EES samningur og ætlað vald ESB
- Efnahags og viðskiptanefnd Alþingis 2021 / Hver er þekking ál...
- Þjóð án fyrirhyggju og dómgreindar: Fyrirlestur saminn og flu...
- Þetta jaðrar við hættulegt ábyrðarleysi hjá fomanni stærsta s...
- BREYTING ER NAUÐSYN TIL BETRA LÍFS
- YFIRSTJÓRN SEÐLABANKANS Lög 2019
- EES samningur og ætlað vald ESB
- ÓSAMRÆMI MILLI LAGA UM STJÓRN FISKVEIÐA OG FRAMKVÆMDA ...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- alla
- framtid
- mammzan
- hallgrimurg
- huldumenn
- jaxlinn
- johanneliasson
- maggij
- photo
- haukurn
- runar-karvel
- sigrunsigur
- skodunmin
- svarthamar
- vestskafttenor
- athb
- thjodarsalin
- seiken
- skinogskurir
- bjarkitryggva
- bjarnimax
- brahim
- gattin
- einarhardarson
- einarorneinars
- bofs
- dramb
- haddi9001
- heimssyn
- tofraljos
- don
- hordurvald
- fun
- visaskvisa
- huxa
- jonasphreinsson
- jonl
- jobbi1
- jonvalurjensson
- jonthorolafsson
- josefsmari
- juliusbearsson
- ksh
- kolbrunerin
- kristbjorg
- liu
- skrafarinn
- maggiraggi
- markusth
- os
- raksig
- rosaadalsteinsdottir
- fullvalda
- siggileelewis
- duddi9
- siggith
- saemi7
- tryggvigunnarhansen
- vga
- thjodarheidur